Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er í lófa lagið að svipta hulunni
af leyndardómum í dag, ef þannig ber und-
ir, eða ná árangri í rannsóknum. Nú er lag
að leysa gamlan ágreining.
20. apríl - 20. maí
Naut Gættu þess að láta ekki neikvæðar
hugsanir ná stjórn á huganum. Og hafðu
vaðið fyrir neðan þig, ef um einhverjar
ábyrgðir er að ræða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að íhuga hvort þú haldir í
einhvern af ótta eða óöryggi. Ekki gefa
drauminn upp á bátinn þó á móti blási.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kemur aldri ekkert við en við
erum alltaf börn foreldra okkar. Ef þú minn-
ist gætilega á umkvörtunarefni heilar það
sambandið. Hertu upp hugann – þú stendur
vel fyrir þínu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt nútíminn sé nærtækastur er alltaf
viturlegt að horfa fram á veginn um leið og
mönnum er hollt að hyggja að fortíðinni. En
misstu ekki sjónar á léttleikanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hið óvænta liggur í loftinu. Ást-
arsamband gengur glimrandi vel. Ef þú
heldur bara ró þinni og leyfir látunum að
ganga yfir kemstu í gegnum allt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Viðskipti ættu að ganga vel í dag.
Gríptu til andlegra tóla til að róa þig;
möntru eða öndunaræfinga. Sinntu lík-
amanum líka, farðu í sund eða göngutúr í
góða veðrinu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef einhver passar ekki í hlut-
verkið sem þú vilt að hann/hún leiki, þýðir
það ekki að hann/hún megi ekki vera með.
Sambönd koma þér áleiðis núna, ekki
gleyma að þakka fyrir þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert aldrei of gamall til þess
að læra. Fjarlægðu stressið, með því hverf-
ur tilhneigingin til þess að fara yfir strikið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þér mislíkar eitthvað í fari
annarra gerir þú rétt í því að láta það í
ljósi. Láttu ekki vaða yfir þig, stattu fast á
þínu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhverjar hindranir verða á vegi
þínum. Læknaðu gömul sár með því að vera
fyrstur til þess að fyrirgefa. Ekki er allt gull
sem glóir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fjötrar fortíðarinnar losna af þér í
dag. Gerðu málin upp í hvelli svo þú getir
haldið ótrauð/ur áfram – reynslunni ríkari.
Helgi R. Einarsson kallar þessalimru „Óskhyggju“:
Vesalings Vigga á Bakka
vildi helst ganga með krakka.
En það gerir hún ei,
er ennþá hrein mey
og því engum er neitt að þakka.
Sagan endurtekur sig. – Fía á
Sandi skrifar á Leir að hún hafi rek-
ist á þennan gamla texta. – „Fyrir
fjöldamörgum árum var nefnilega
mikið rætt um að borga bændum fyr-
ir að hætta með kindur og varð text-
inn til þá“:
Út á græna grundu
gakktu hjörðin mín
móann hérna mundu
og mig, ég sakna þín.
Yfir allífs jötu
ærin mikla skín
með fóðurbæti í fötu
far vel, lömbin mín.
Mig hrjáir mikil mæða
mörg er fjármanns sorg.
Ég gekkst uppí að græða
og geta flutt í borg.
Seðlana ég syng um
sunnanundir vegg
á klakann allt í kringum
kindahausa legg.
Páll Imsland segir í aðdraganda
sláturtíðar að kindur hafi ekki sungið
sitt síðasta. „Varla verður alslátrað í
haust. Ég er nokkuð sannfærður um
að hvorki króna né kind heyri sög-
unni til, né heldur vísnagerðin“:
Uppá sínar ær hún bindur
allt sitt góss og dýra málma.
Þetta eru eðalkindur
albúnar í fen og tálma.
Þó eftir liggi vísa’ og vísa
varla’ er tómur skaði bara.
Þær ná ugglaust veginn vísa
vinum sem um braut þar fara.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
um Irmu:
Fellur skógur, fýkur kind,
foss af brúnum rýkur
og þruma skekur Þverfellstind
þegar Irma leysir vind.
Einar Kolbeinsson orti á facebook
á þriðjudag:
Grettist bráin gránar hár,
glittir senn í elli.
44 ár,
flogin hjá í hvelli.
Og í lokin húsgangur eftir Kjóa:
Það er passlegt prestastarf
að predika yfir kellingum
þennan gamla þulu-arf
í þessum sömu stellingum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fjármanns sorg,
sláturtíð og Irmu
„FORELDRAR MÍNIR FYLLTU ÚT
STARFSUMSÓKNINA FYRIR MIG. EF ÉG
VERÐ RÁÐINN ER ÉG VISS UM AÐ ÞAU
MUNU STANDA SIG MEÐ MIKLUM SÓMA.“
„HVAÐ HEFURÐU EIGINLEGA GEFIÐ
ÞESSUM PÁFAGAUK AÐ BORÐA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að biðjast afsökun-
ar og að samþykkja
afsökunarbeiðnina af
hugprýði.
SUMIR HAFA ÁHYGGJUR AF
ÞVÍ AÐ SOFA OF MIKIÐ
EKKI ÉG
SAMT
ÉG HEF ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ AÐ VAKA
OF MIKIÐ
HÚN SAGÐI JÁ!MAMMA ÞÍN VAR MJÖG
ÓLÍK ÖLLUM HINUM KON-
UNUM SEM ÉG ÞEKKTI…
PABBI, HVERS VEGNA
VILDIRÐU GIFTAST
MÖMMU?
FYRIR-
GEFÐU!
ALLT Í
LAGI
Víkverji hefur alltaf verið veikurfyrir njósnamyndum þar sem
söguþráðurinn er flókinn, hetjur og
varmenni keppast við að villa á sér
heimildir og engum er treystandi.
Kalda stríðið hefur verið frjór jarð-
vegur fyrir slíkar myndir.
x x x
Í sumar hefur myndin Atómljóska(á ensku Atomic Blonde) verið
sýnd á hvíta tjaldinu og Víkverji
stóðst ekki mátið að fara í bíó. Sögu-
þráður myndarinnar er reyndar ær-
ið gloppóttur og þunnur á köflum,
en myndin er bráðvel gerð og upp-
full af skemmtilegum uppákomum.
Myndin gerist árið 1989 dagana áð-
ur en múrinn féll og sögusviðið er
Berlín. Charlize Theron sýnir mikil
tilþrif í hlutverki atómljóskunnar,
sem gerð er út af örkinni til að hafa
uppi á lista gagnnjósnara, sem eru í
bráðri hættu komist hann í rangar
hendur.
x x x
Myndin er gerð eftir teikni-myndasögu og ber þess merki.
Bardagasenurnar í myndinni eru
með líflegasta móti og allt umhverfi
mjög stíliserað og poppað. Alls kyns
táknum er dreift hingað og þangað
um myndina. Í eltingaleik um kvik-
myndahús í Austur-Berlín sést til
dæmis á veggspjöldum að verið er
að sýna Stalker eftir rússneska leik-
stjórann Andrej Tarkovskí.
x x x
Jóhannes Haukur Jóhannesson áskemmtilega innkomu í mynd-
inni, er hæfilega ógnvekjandi og
tekst ágætlega að tala ensku með
rússneskum hreim. Nokkrir þýskir
leikarar skjóta upp kollinum. Barb-
ara Sukova, sem fór mikinn í þýsk-
um kvikmyndum á 9. áratugnum,
fær nokkrar línur í hlutverki krufn-
ingalæknis.
x x x
Víkverji skemmti sér vel á Atóm-ljóskunni og finnst að fleiri ættu
að spreyta sig á njósnamyndum.
Samtíminn ætti líka að bjóða upp á
nægt söguefni, ekkert síður en kalda
stríðið. Fréttir dagsins af meintum
tilraunum Rússa til að hafa áhrif á
kosningar í Bandaríkjunum og öðr-
um undirmálum sýna að af nógu er
að taka. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. (Davíðssálm. 23:1).