Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 31

Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég hef ekki spilað þennan konsert hér áður, en fannst þetta rökrétt framhald á því sem ég hef verið að gera,“ segir Stefán Ragnar Hösk- uldsson um flautukonsert eftir Jacq- ues Ibert sem hann leikur með Sin- fóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg Hörpu annað kvöld kl. 19.30. Auk þess leikur hljómsveitin sinfóníu nr. 1 eftir Charles Gounod og konsert fyrir hljómsveit eftir Witold Lutosławski. Stjórnandi er Yan Pascal Tortelier. Stefán Ragnar er einn þeirra Ís- lendinga sem hvað lengst hafa náð í heimi klassískrar tónlistar. Á ár- unum 2008 til 2016 var hann fyrsti flautuleikari við hljómsveit Metro- politan-óperunnar, en gegnir nú sömu stöðu við Sinfóníuhljómsveit- ina í Chicago þar sem Riccardo Muti er við stjórnvölinn. Stefán Ragnar hefur leikið víða um Bandaríkin, Evrópu og Japan með hljómsveitar- stjórum á borð við James Levine, Daniel Barenboim og Valery Gerg- iev. Þá hefur hann unnið með tón- listarfólki á borð við píanóleikarana Evgeni Kissin og Alfred Brendel, fiðluleikarann Gil Shaham og sópr- ansöngkonuna Önnu Netrebko. Ekta frönsk músík eins og hún gerist best „Ég þekki konsert Ibert mjög vel, enda eru 16-17 ár síðan ég spilaði hann fyrst. Síðan hef ég spilað hann reglulega, m.a. með píanóundirleik á prufuspilum, í keppnum og öðru slíku, en aldrei áður spilað hann með hljómsveit. Þannig að það er mjög spennandi,“ segir Stefán Ragnar sem hlakkar til kvöldsins. „Ég byrj- aði að æfa hann af krafi í apríl og æfði hann í allt sumar með hléi, enda þarf maður að leyfa tónlistinni að meltast. Þó maður læri konsert eins vel og maður getur, sem tekur mikinn tíma, þá er maður aldrei bú- inn að æfa sig. Þetta er alltaf eins og málverk sem aldrei klárast.“ Að sögn Stefáns Ragnars var konsertinn saminn snemma á fjórða áratug síðustu aldar. „Þetta er ekta frönsk músík eins og hún gerist best. Ibert var sér á parti á sínum tíma og hélt sér ekkert endilega við einn stíl heldur valdi það besta úr ýmsum áttum. Í konsertinum má heyra greinilega djassáhrif og hægi kaflinn er algjör konfektmoli, bæði dreyminn og dulúðlegur. Tónlistin sjálf er frekar létt, glaðvær, fjöl- breytt og afar áheyrileg enda ein- staklega vel samin,“ segir Stefán Ragnar og tekur fram að það sé engin tilviljun að konsertinn sé einn vinsælasti flautukonsert allra tíma. Mikilvægt að koma heim „Einhverra hluta vegna samdi Ibert mikið fyrir flautuna. Eftir hann liggja m.a. verk fyrir sóló- flautu, verk fyrir flautu og píanó og kammerverk,“ segir Stefán Ragnar og rifjar upp að konsertinn hafi Ibert samið fyrir flautuleikarann Marcel Moyse. „Sem nefndur hefur verið guðfaðir flautunnar. Hann var meiriháttar flautuleikari og markaði ákveðna nálgunarleið og tækni sem ég lærði í mínu námi,“ segir Stefán Ragnar sem nam flautuleik hjá Bernharði Wilkinson í Tónlistar- skólanum í Reykjavík og stundaði síðan framhaldsnám í Royal Nort- hern College of Music í Manchester. „Marcel Moyse þróaði mjög fínan flaututón, sem er djúpur og flottur. Lengi vel var flautan á skjön, en þróaðist geysilega mikið sem hljóð- færi í Frakklandi á seinni hluta 19. aldar þegar farið var að gera flautur úr silfri og gulli. Við það tók hljóð- færið á sig meiri sólósvip,“ segir Stefán Ragnar og bendir á að París hafi verið vagga nútímaflautuleiks. Fjögur ár eru síðan Stefán Ragn- ar hélt síðast tónleika hérlendis, en þá lék hann konsert eftir Carl Niel- sen með SÍ undir stjórn Ashkenazy. „Það hefur verið erfitt að finna tíma til tónleikahalds hérlendis því það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér síðustu ár. En mér finnst mjög mikilvægt að koma heim og spila – það er skylda mín enda liggja rætur mínar hér. Það var því orðið tíma- bært að halda hér tónleika.“ Aðspurður segist Stefán Ragnar aldrei hafa unnið með Tortelier, aðalstjórnanda SÍ, áður. „Ég þekki hann úr tónlistarheiminum, en við höfum ekki unnið saman áður svo það er mjög spennandi. Reynslan hefur kennt mér að það er mikil- vægt að hafa franskan hljómsveit- arstjóra þegar verið er að flytja franska tónlist,“ segir Stefán Ragn- ar og bendir á að franskir hljóm- sveitarstjórar virðast skilja tungu- mál franskrar tónlistar betur en aðrir. Sem fyrr segir söðlaði Stefán Ragnar um þegar hann flutti sig frá hljómsveit Metropolitan-óperunnar til Sinfóníuhljómsveitarinnar í Chic- ago í fyrra. Spurður af hverju hann hafi fært sig milli hljómsveita segist Stefán Ragnar hafa eygt tækifæri sem hann gat ekki látið sér úr greip- um renna. „Það var auglýst prufu- spil og ég sendi inn umsókn vegna þess að mér fannst spennandi að vinna meira með Riccardo Muti, sem er einn af mínum uppáhalds- hljómsveitarstjórum,“ segir Stefán Ragnar og bendir á að mikill munur sé á hljómsveitunum tveimur. „Sem hljóðfæraleikari er í raun skemmtilegra að vera í sinfóníu- hljómsveit, því þar fær maður meira að njóta sín og hefur meira til mál- anna að leggja í hljómnum. Í óper- unni er hljómsveitin í hlutverki und- irleikara, en auðvitað mikilvæg sem slík. Í sinfóníuhljómsveit eru leið- arar hverrar raddar í aðalhlutverk- unum,“ segir Stefán Ragnar og bendir á að allir leiðarar hljómsveit- arinnar fái tækifæri til að leika ein- leik með hljómsveitinni einu sinni á þriggja ára fresti. „Ég reikna með að leika einleik innan næstu tveggja ára. Mér þykir mjög vænt um Niel- sen-konsertinn svo það getur vel verið að ég spili hann. Annars er aldrei að vita hvað maður gerir.“ Spennandi verkefni Stefán Ragnar er staddur hér- lendis í um þriggja vikna fríi ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonunni og fa- gottleikaranum Natalie Pilla og syni þeirra, Alexander sem er eins árs. „Hljómsveitin í Chicago er enn í sumarfríi, en upphafstónleikarnir verða 22. september þar sem við munum leika 4. sinfóníu Bruckner,“ segir Stefán Ragnar og tekur fram að margt spennandi verði á efnis- skrá Sinfóníuhljómsveitarinnar í Chicago í vetur. „Í mars munum við spila Dafnis og Klóa undir stjórn Charles Dutoit, sem ég hef aldrei spilað áður. Þannig að ég hlakka mjög til þess,“ segir Stefán Ragnar. Líkt og á undan öllum öðrum áskriftartónleikum hefst tónleika- kynning í Hörpuhorni kl. 18 á tón- leikadegi. Á morgun sér Sigurður Ingvi Snorrason um kynninguna. Að vanda verður tónleikunum útvarpað í beinni útsendingu á Rás 1. Morgunblaðið/Golli Kampakátir Flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson og hljómsveitarstjórinn Yan Pascal Tortelier. „Eins og málverk sem aldrei klárast“  Stefán Ragnar Höskuldsson leikur flautukonsert eftir Jacques Ibert á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar á morgun Málþing í tengslum við sýninguna Málverk – ekki miðill, sem nú stendur yfir í Hafnarborg, verður haldið annað kvöld kl. 20. Þar verða við- fangsefnum sýningarinnar gerð skil með sýn- ingarstjóra og listamönnum sem taka þátt í sýningunni. Sýningin fjallar um málverkið og forsendur þess í því eftir-miðla umhverfi sem einkennir list samtímans. Er hún tækifæri til að hugsa um þá hugmynd að málverk verði best skilið sem eitthvað annað en sá miðill sem listamað- urinn velur sér að vinna í, eins og segir í tilkynningu. Þátttakendur málþingsins eru Jóhannes Dagsson, sýningarstjóri, list- heimspekingur og lektor við Listaháskóla Íslands, og listamennirnir Fritz Hendrik Berndsen, Hulda Stefánsdóttir og Þorgerður Þórhallsdóttir. Málverk Jóhannes Dagsson, sýningarstjóri sýningarinnar. Málþing haldið í Hafnarborg Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Fös 29/9 kl. 20:00 15. sýn Lau 21/10 kl. 20:00 21. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sun 1/10 kl. 20:00 16. sýn Sun 22/10 kl. 20:00 22. sýn Sun 17/9 kl. 20:00 10. sýn Fös 6/10 kl. 20:00 17. sýn Sun 29/10 kl. 20:00 23. sýn Fim 21/9 kl. 20:00 11. sýn Lau 7/10 kl. 20:00 18. sýn Lau 4/11 kl. 20:00 24. sýn Fös 22/9 kl. 20:00 12. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 aukas. Fös 10/11 kl. 20:00 25. sýn Sun 24/9 kl. 20:00 13. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 19. sýn Sun 12/11 kl. 20:00 26. sýn Fim 28/9 kl. 20:00 14. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 20. sýn Þri 14/11 kl. 20:00 aukas. Sýningin sem sló í gegn síðasta vor snýr aftur. 1984 (Nýja svið) Fös 15/9 kl. 20:00 Frumsýning Lau 23/9 kl. 20:00 4. sýn Fös 29/9 kl. 20:00 7. sýn Lau 16/9 kl. 20:00 2. sýn Sun 24/9 kl. 20:00 5. sýn Lau 30/9 kl. 20:00 8. sýn Fös 22/9 kl. 20:00 3. sýn Fim 28/9 kl. 20:00 6. sýn Sun 1/10 kl. 20:00 9. sýn Stóri bróðir fylgist með þér Úti að aka (Stóra svið) Lau 16/9 kl. 20:00 1. sýn Lau 30/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 23/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/10 kl. 20:00 4. sýn Sprenghlægilegur farsi! Kartöfluæturnar (Litla svið) Fim 21/9 kl. 20:00 Frumsýning Fös 29/9 kl. 20:00 4. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 7. sýn Fös 22/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 6/10 kl. 20:00 5. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 8. sýn Fim 28/9 kl. 20:00 3. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 6. sýn Fös 20/10 kl. 20:00 9. sýn Fjölskyldukeppni í meðvirkni! Brot úr hjónabandi (Litli salur) Fös 10/11 kl. 20:00 1. sýn Mið 15/11 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/11 kl. 20:00 7. sýn Lau 11/11 kl. 20:00 2. sýn Lau 18/11 kl. 20:00 5. sýn Fim 23/11 kl. 20:00 8. sýn Sun 12/11 kl. 20:00 3. sýn Sun 19/11 kl. 20:00 6. sýn Fös 24/11 kl. 20:00 9. sýn Draumur um eilífa ást. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 29/10 kl. 13:00 48. sýn Sun 5/11 kl. 13:00 49. sýn Sun 12/11 kl. 13:00 50. sýn Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið) Fös 15/9 kl. 19:30 Sun 24/9 kl. 19:30 Sun 17/9 kl. 19:30 Sun 1/10 kl. 20:00 Lokasýning ATHUGIÐ SNARPUR SÝNINGARTÍMI. SÝNINGUM LÝKUR Í OKTOBER. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 17/9 kl. 13:00 Sun 8/10 kl. 13:00 Sun 22/10 kl. 13:00 Sun 24/9 kl. 13:00 Sun 15/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 13:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Tímaþjófurinn (Kassinn) Sun 24/9 kl. 19:30 Sun 8/10 kl. 19:30 Sun 22/10 kl. 19:30 Lokasýning Fös 29/9 kl. 19:30 Sun 15/10 kl. 19:30 Sun 1/10 kl. 19:30 Fim 19/10 kl. 19:30 Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Eniga Meninga (Stóra sviðið) Lau 28/10 kl. 13:00 Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fös 20/10 kl. 19:30 Frumsýning Fös 27/10 kl. 19:30 3.sýning Fim 26/10 kl. 19:30 2.sýning Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýning Óvinur fólksins (Stóra sviðið) Fös 22/9 kl. 19:30 Frumsýning Fim 28/9 kl. 19:30 3.sýning Lau 23/9 kl. 19:30 2.sýning Lau 30/9 kl. 19:30 4.sýning Faðirinn (Kassinn) Lau 7/10 kl. 19:30 Frumsýning Fös 13/10 kl. 19:30 3.sýning Fim 12/10 kl. 19:30 2.sýning Fös 20/10 kl. 19:30 4.sýning Smán (Kúlan) Fös 15/9 kl. 19:30 Fös 22/9 kl. 19:30 Lau 30/9 kl. 19:30 Lau 16/9 kl. 19:30 Lau 23/9 kl. 19:30 Mið 20/9 kl. 19:30 Fim 28/9 kl. 19:30 Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 14/10 kl. 13:00 Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 13:00 Lau 14/10 kl. 15:00 Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 4/11 kl. 15:00 Lau 21/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 15:00 Brúðusýning Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 4/10 kl. 20:00 Mið 18/10 kl. 20:00 Mið 11/10 kl. 20:00 Mið 25/10 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.