Morgunblaðið - 13.09.2017, Síða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bandaríska hipphopp-útgáfufyrir-
tækið 300 Entertainment og ís-
lenska tónlistarútgáfufyrirtækið
Alda Music hafa gert með sér sam-
komulag um samstarf sem felst í því
að Alda Music verður sérstakur
samstarfsaðili 300 Entertainment á
Íslandi. 300 Entertainment hefur
rennt hýru auga hingað til lands
undanfarin misseri vegna sérlega
blómlegrar útgáfu í hipphopp-
tónlist og virkilega frambærilegra
listamanna sem sprottið hafa fram á
sjónarsviðið hérlendis, eins og segir
í tilkynningu um samstarfið. Útgáf-
an hyggst einnig víkka út starfs-
vettvang sinn hingað til lands og til
hinna norrænu landanna en í því
starfi verður Alda Music í lykilhlut-
verki.
„Samkomulagið felur í sér að
listamenn undir merkjum Alda
Music fá aðgang að víðfeðmu
tengslaneti 300 Entertainment auk
aðgangs að nýjum mörkuðum bæði
fyrir útgáfur og til hljómleikahalds.
Þetta samstarf mun því fela í sér
mikla verðmætaaukningu á ís-
lenskri tónlist sem útflutningsvöru,“
segir í tilkynningunni.
300 Entertainment hóf starfsemi
fyrir þremur árum og hefur á sínum
snærum marga af fremstu og vin-
sælustu hipphopp-tónlistarmönnum
samtímans, m.a. Migos og Young
Thug sem haldið hafa tónleika hér á
landi á árinu. Að baki fyrirtækinu
eru þungavigtarmenn sem störfuðu
áður fyrir útgáfufyrirtæki á borð
við Def Jam og Warner Music.
Alda Music tók yfir tónlistar-
útgáfuhluta Senu árið 2016 með
Ólaf Arnalds og Sölva Blöndal í
fararbroddi og á útgáfurétt að
miklu safni íslenskrar tónlistar sem
nær allt aftur til sjötta áratugarins.
Alda Music hefur gefið út nokkrar
plötur frá því útgáfan hóf starfsemi
og þá m.a. nýjustu plötur Úlfs Úlfs
og Páls Óskars, EP-plötu Hildar og
fyrstu sólóplötu Ella Grill.
Eitt farsælasta tónlistarútgáfu-
fyrirtæki Bandaríkjanna
„Þetta er eitt af því sem lagt var
upp með í byrjun þegar við stofn-
uðum fyrirtækið,“ segir Sölvi Blön-
dal, spurður að því hvernig þetta
samstarf Öldu Music og 300 Enter-
tainment hafi komið til. „Markmiðin
voru að nútímavæða íslenska tón-
listarútgáfu, búa til infrastrúktúr og
umhverfi sem gæti lyft íslenskri
tónlist upp. Við höfum alltaf haft
augun á þessum erlenda vinkli, að
koma íslenskri tónlist á framfæri
erlendis og finna alvöru samstarfs-
aðila vestra, sérstaklega í Banda-
ríkjunum því hipphopp-senan er
auðvitað stór þar. Og þar eru aðilar
sem ég hef þekkt lengi, áratugum
saman, sem stofnuðu þetta fyrir-
tæki, 300 Entertainment, fyrir
nokkrum árum. Þeir stofnuðu á sín-
um tíma Def Jam sem er auðvitað
mjög þekkt fyrirtæki og þetta fyrir-
tæki er að verða ein farsælasta
músíkútgáfa í Bandaríkjunum í dag,
með risastóra listamenn á sínum
snærum. Þeir höfðu áhuga og vissu
af íslenskri hipphopp-senu,“ segir
Sölvi.
Hann segir Ísland lítinn markað
og því þurfi að leita út fyrir land-
steinana. „Íslenskir tónlistarmenn
eiga sér frábæra sögu erlendis,
margir hverjir, og við lítum á það
sem okkar hlutverk að opna þessar
dyr,“ segir Sölvi. Samstarfið við 300
Entertainment taki til allrar þeirrar
tónlistar sem Alda Music gefur út.
„Auðvitað er stór hluti af útgáfunni
hipphopp en ekki eingöngu, það er
líka rokk og ról þarna,“ segir Sölvi.
Pípan opnuð
Sölvi er spurður að því hvort út-
gáfan á íslenskri tónlist erlendis
verði að mestu í stafrænu formi og
svarar hann því játandi. „Þó svo við
gefum tónlist líka út í föstu formi
verður alltaf minna og minna um
það, vöxturinn er gríðarlegur í sölu
á stafrænni tónlist og við vitum,
eins og allir sem eru í þessu, að þar
er framtíðin,“ segir hann.
–Geturðu nefnt mér dæmi um ís-
lenskar hljómsveitir og tónlistar-
menn á ykkar vegum sem munu fá
dreifingu erlendis, í gegnum 300
Entertainment?
„Við erum á horfa á alla okkar
listamenn, Úlf Úlf og Hildi o.fl.
Menn frá 300 Entertainment koma
á Iceland Airwaves og þar munum
við væntanlega setjast niður með
fleirum. Þetta er ekki bara Alda
Music heldur lítum við svo á að við
séum að opna ákveðnar dyr þarna
út,“ svarar Sölvi. „Við erum sér-
fræðingar í því sem er í gangi á Ís-
landi og þeir í 300 Entertainment
hafa áhuga á því. Þetta eru sam-
starfsaðilar mínir og félagar til
margra áratuga margir hverjir, þeir
sem stofnuðu þetta fyrirtæki, þann-
ig að við erum alla vega búnir að
opna núna pípuna út og það er mjög
jákvætt.“
Sölvi segir félaga sína hjá 300
Entertainment gera sér grein fyrir
mætti streymisins, tónlistarveitna á
borð við Spotify, og að þeir hafi allt-
af verið mjög meðvitaðir um þann
mátt, þ.e. allt frá því farið var að
bjóða upp á slíkar veitur. „Við erum
á sama báti þar,“ segir Sölvi.
Samstarf Sölvi Blöndal og David Giberga, listrænn stjórnandi 300 Enter-
tainment, í höfuðstöðvum fyrirtækisins í New York á dögunum.
Alda Music í
samstarf við 300
Entertainment
Eykur verðmæti íslenskrar tónlistar
The Square
Metacritic 74/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 17.15, 22.00
The Limehouse
Golem
Bíó Paradís 17.45
Hjartasteinn
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 18.00
Forældre
Bíó Paradís 20.00
Kongens nei
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.30
BPM
Með þekkingu, hugrekki og
þrautseigju berst hópur
fólks sem aðgerðasinnar til
að fræða fólk um alnæmi.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 78/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 22.00
American Made 12
Frásögn af ævi Barry Seal,
fyrrverandi flugstjóra sem
gerist smyglari fyrir glæpa-
klíkur Suður-Ameríku,
Metacritic 63/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.05
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 20.40
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Everything,
Everything
Madeline hefur ekki farið út
fyrir hússins dyr í sautján ár.
Metacritic 52/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.50,
20.00
Sambíóin Akureyri 17.50,
20.00
Annabelle:
Creation 16
Brúðugerðarmaður og kona
hans skjóta skjólshúsi yfir
nunnu og nokkrar stúlkur.
Metacritic 62/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 22.10
Dunkirk 12
Myndin fjallar um Operation
Dynamo árið 1940.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 94/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00
Emojimyndin Metacritic 12/100
IMDb 2,0/10
Smárabíó 15.30, 17.40
Kidnap 12
Karla er fráskilin móðir sex
ára stráks, Frankies. Hún
vinnur á veitingastað og er
bara nokkuð sátt við lífið og
tilveruna.
Metacritic 44/100
IMDb 6,0/10
Smárabíó 22.35
Borgarbíó Akureyri 18.00
Spider-Man:
Homecoming 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 73/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 17.30
Stóri dagurinn IMDb 6,4/10
Háskólabíó 18.10
The Big Sick Metacritic 86/100
IMDb 8,1/10
Smárabíó 19.50, 22.30
Once Upon a Time in
Venice 12
Einkaspæjari í Los Angeles
leitar að glæpagenginu sem
stal hundinum hans.
Metacritic 28/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Logan Lucky
Bræðurnir Jimmy, Mellie og
Clyde Logan skipuleggja
meiriháttar rán.
Metacritic 78/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 22.30
Atomic Blonde 16
Lorraine Broughton er
njósnari sem notar kyn-
þokka sinn og grimmd til að
lifa af.
Morgunblaðiðbbbmn
Metacritic 63/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 20.00
Ég man þig 16
Morgunblaðiðbbbbn
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 18.00, 20.50
David Gilmour:
Heimsútsending frá
Pompeii Háskólabíó 21.00
Skrímslafjölskyldan
Til að þjappa fjölskyldunni
betur saman skipuleggur
Emma skemmtilegt kvöld en
þau breytast öll í skrímsli.
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 17.50
Sambíóin Akureyri 17.50
Sonur Stórfótar
Adam er ósköp venjulegur
strákur sem uppgötvar að
faðir hans er Stórfótur.
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30, 17.40
Háskólabíó 18.10
Borgarbíó Akureyri 18.00
Storkurinn Rikki Metacritic 55/100
IMDb 5,9/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Bílar 3 Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífs-
myndband, hendir honum út og meinar honum að
umgangast fjögurra ára dóttur þeirra. Atli flytur
inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í
garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna,
sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn.
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.00
Smárabíó 15.30, 17.20, 17.40, 19.30, 19.50, 21.40, 22.00
Háskólabíó 18.00, 20.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.10
Undir trénu 12
The Hitman’s Bodyguard 16
Besti lífvörður í heimi fær nýjan viðskiptavin, leigumorðingja
sem þarf að bera vitni hjá alþjóða glæpadómstólnum. Þeir
þurfa að leggja ágreiningsmál sín til hliðar rétt á meðan.
Metacritic 55/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni
22.20
Sambíóin Akureyri 22.10
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
It 16
Sjö vinir í bænum Derry í
Bandaríkjunum komast á
snoðir um að í holræsum
bæjarins er á kreiki óvættur.
Metacritic 70/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.10, 22.50
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50
Sambíóin Keflavík 19.20, 22.05
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna