Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. Það verður önnur bankakreppa 2. Bensín og dísil hækka... 3. Edda komin með nóg af Jóni... 4. Magnús Ólafur: „Bull og vitleysa“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Myndlistargalleríið BERG Contem- porary tekur þátt í myndlistar- kaupstefnunni EXPO Chicago sem hefst í dag og lýkur 17. september á Navy Pier í Chicago. Galleríið sýnir verk fjögurra listamanna sem það fer með umboð fyrir, þeirra Finnboga Péturssonar, Monika Grzymala og Steinu og Woody Vasulka. Berg Contemporary á EXPO Chicago  Rússneskir kvikmyndadagar hefjast á morgun í Bíó Paradís og standa yfir í fjóra daga. Fjórar kvik- myndir verða sýndar og allar verðlaunamyndir sem eiga að sýna það besta í rússneskri kvikmynda- gerð nú um stundir. Kvikmyndirnar verða sýndar á rússnesku með ensk- um texta og er aðgangur að öllum sýningum ókeypis. Rússneskar verð- launamyndir sýndar  Temma Bell, dóttir Louisu Matt- híasdóttur, og Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykja- víkur, veita leiðsögn um sýningu á verkum Louisu, Kyrrð, á Kjarvalsstöðum, á morgun kl. 12.30. Kyrrð er viðamikil yfirlitssýning á verk- um Louisu þar sem veitt er yfirsýn yf- ir feril listakon- unnar. Veita leiðsögn um sýninguna Kyrrð Á fimmtudag Vestan og norðvestan 5-15 m/s, hvassast austast. Bjart með köflum, en dálítil rigning NA-lands í fyrstu. Hiti 4 til 14 stig, mildast SA-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 5-13 og léttir til S- og V-lands. Gengur í norðvestan 13-20 austast eftir hádegi og súld eða rigning NA- og A-til með slyddu til fjalla. Hiti 3 til 12 stig yfir daginn. VEÐUR Íslandsmeistarar Fram lentu í kröppum dansi gegn Gróttu í fyrsta leik liðanna á Íslandsmótinu í handknatt- leik í gærkvöldi. Framliðið mátti þakka fyrir annað stigið úr leiknum eftir að markvörður liðsins varði vítakast á lokasekúndunni og tryggði liðinu jafntefli. Á sama tíma töpuðu ríkjandi deildar- og bikarmeistarar Stjörnunnar fyrir Selfossi með eins marks mun. »3 Óvænt úrslit í upphafsleikjum „Borgin er flott, íbúðin sem ég er að flytja í lítur vel út og það er búið að taka vel á móti manni. Ég er bara spenntur,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfuknattleik, sem er að koma sér fyrir hjá Spánar- meist- urunum Val- encia. »4 Tryggvi er spenntur fyrir verunni í Valencia Íslandsmótið í íshokkí karla fer fjör- lega af stað þótt ljóst sé að Íslands- meistarar Esjunnar séu með sterk- asta liðið. Esjumenn unnu liðsmenn Skautafélags Akureyrar í tíu marka leik, 6:4, nyrðra í gærkvöldi þar sem Robbie Sigurðsson fór á kostum á svellinu og skoraði fjögur mörk. Þetta var annar sigur Esjunnar í Hertz-deildinni. »2 Boðið upp á markasúpu á svellinu á Akureyri ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir erna@mbl.is „Við tökum við konum frá 67 ára í Senjóríturnar,“ segir Silja Aðal- steinsdóttir, meðlimur í kvenna- kórnum Senjórítunum sem er um 70 manna kór full- orðinna kvenna. Silja lýsti nýlega eftir fleiri senjór- ítum í kórinn, öll- um raddgerðum, á facebooksíðu sinni, en eitthvað hafði grisjast í kórnum í sumar. „Ég fékk reyndar ekki leyfi hjá kórnum til að gera þetta, en mér fannst raðirnar eitthvað hafa þynnst,“ segir Silja og hlær. Eru með góðan kórstjórnanda „Við erum með mjög góðan stjórnanda, hana Ágotu Joó, sem er einnig stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur og hefur unnið til þrennra fyrstu verðlauna á al- þjóðlegu kóramóti með hann, þannig að það er betra að hafa einhverja reynslu af söng, nótum eða hljóð- færaleik,“ heldur Silja áfram. „Senjórítukórinn varð til upp úr Kvennakór Reykjavíkur. Þegar kon- ur eldast þá breytist röddin, þegar þær urðu of fullorðnar til að vera í honum voru þær látnar hætta. Sum- ar kvennanna vildu samt halda áfram, þannig varð Senjórítukórinn til sem deild út úr Kvennakór Reykjavíkur. Senjóríturnar voru svo stofnaðar formlega fyrir um tveimur árum, þegar við vorum orðnar svo margar að við vildum vera sjálf- stæðar,“ segir Silja. „Við tókum þátt í kvennakóramóti á Ísafirði í vor, tókum sérstakt ísfirskt þema. Við munum halda tónleika í Seltjarnar- neskirkju 28. október nk., við verð- um einar, ekki með einsöngvara með okkur, og við ætlum að syngja hress lög eins og Án þín, Vorkvöld í Reykjavík, Kenndu mér að kyssa rétt, Bíllinn minn og ég, og svo mun- um við taka syrpu úr Mamma Mia.“ Eiga trygga aðdáendur Senjóríturnar hafa enn ekki gefið neitt út af tónlist en eiga orðið trygga aðdáendur. Kórinn æfir viku- lega á mánudögum kl. 16 í matsal þjónustukjarna aldraðra við Vita- torg. Aðspurð hvort kórstarfið feli í sér fleira en æfingar, tónleika og kórferðir segir Silja að þær hafi t.d. farið um 40 saman á „singalong“- sýningu á Mamma Mia í Borgarleik- húsinu og þær sungu þar við raust við þýðingu Þórarins Eldjárns. Senjóríturnar fóru í söngferðalag til Færeyja og hyggjast fara til Dan- merkur í kórferð næsta vor. „Fær- eyska Kringvarpið hrósaði okkur í hástert og kallaði okkur „gráa gullið frá Íslandi“,“ segir Silja og hlær við. „Gráa gullið frá Íslandi“  Senjóríturnar eru kór fullorð- inna kvenna Ljósmynd/Senjóríturnar Senjórítukórinn Frá kóramóti kvennakóra á Ísafirði í vor. Silja Aðalsteinsdóttir „Starfandi kórar á landinu eru örugglega um 250,“ segir Margrét Bóasdóttir, formaður Lands- sambands blandaðra kóra, en hún segir 35 kóra vera í sambandinu, sem heldur kóramót og heldur utan um upplýsingar handa aðildarkórum. Með haustinu fer af stað kórstarf úti um land allt. Hægt er að vera í ýmsum gerðum kóra en það eru t.d. karlakórar, kvennakórar, blandaðir kórar, kórar aldraðra, barnakórar og kirkjukórar. „Markmiðið er að stuðla að sam- vinnu og efla kvennakórastarf á landinu. Á þriggja ára fresti erum við með kvennakóramót þar sem við syngjum saman eða erum með söngsmiðjur,“ segir Kolbrún Hall- dórsdóttir, varaformaður Gígjunnar, sambands íslenskra kvennakóra. Í Gígjunni eru 28 kórar, sem er þó ekki tæmandi listi yfir alla kvennakóra landsins. Karlakórar í Sambandi íslenskra karlakóra eru 32 og svo eru tveir til viðbótar að sækja um, að sögn Geirs A. Guðsteinssonar formanns. „Við gerum ráð fyrir að kór þurfi að hafa a.m.k. sextán meðlimi til að teljast kór,“ segir Geir. Sambandið er regn- hlífarsamtök fyrir karlakóra og sér um söngmót karlakóra, sem skiptast í Heklukóra og Kötlukóra sem halda mót innbyrðis eftir því hvar þeir eru á landinu. Söngvaþjóðin Íslendingar GRÍÐARÖFLUGT KÓRSTARF Á LANDINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.