Feykir - 24.01.2014, Qupperneq 1
BLS. 6-7
BLS. 10
Ásrún og Kolbrún eru
stúlkurnar í ruslinu
Gefa strákunum
ekkert eftir
BLS. 8
Ferðalangurinn Sigyn Björk
Sigurðardóttir í opnuviðtali
Á flakki að hætti
innfæddra
Söngvarakeppni Grunn-
skóla Húnaþings vestra
Jóhann Smári og
Hrafnhildur Kristín
sigruðu
03
TBL
23. janúar 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Meira í leiðinni
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Menningarhúsið Miðgarður var
troðfyllt á föstudagskvöldið þegar
árshátíð eldri nemenda í
Varmahlíðarskóla var haldin þar.
Verkið sem hópurinn sýndi var í
anda 80´s tímabilsins, Wake me up
before you gogo, eftir Hallgrím
Helgason. Sýningin tókst með
miklum ágætum og mikil stemning
ríkti bæði á sviði og í sal.
Þaulæfðir leikarar og söngvarar
skiluðu sínu með miklum sóma og leik-
gleðin leyndi sér ekki. Litrík tíska tíma-
bilsins sem skilaði sér í sviðsmynd og
búningum setti hressilegan svip á sýn-
inguna og ætla má að foreldrar og aðrir
í salnum hafi kannast við tískuna.
Að venju voru það nemendur 10.
bekkjar sem léku burðarhlutverk í
sýningunni, en nutu til þess aðstoðar
9.bekkinga. Það voru svo nemendur í 7.
Árshátíð Varmahlíðarskóla
Frábær 80’s stemning
Það ríkti sannkölluð 80’s stemning á árshátíð eldri nemenda í Varmahlíðarskóla. Mynd: Jóndís Inga Hinriksdóttir
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
DELL Inspiron 5521
Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur ·
15.6“ HD WLED · Windows 8
ÚTSALA
ÚTSALA
ALLT A
Ð 40%
AFSL
ÁTTUR
og 8. bekk sem bættust við í dans-
atriðum. Að lokinni sýningu fór þorri
áhorfenda og leikenda í hefðbundið
kaffi í skólanum, sem var í boði 10.
bekkjar og skólans. Að venju var sýn-
ingin tekin upp og verður geisladisk-
urinn til sölu í næstu viku hjá Margréti,
ritara skólans. /KSE
Samningar felldir naumlega
Aldan – stéttarfélag
Talningu atkvæða í kosningu um
nýja kjarasamninga lauk hjá
Öldunni stéttarfélagi í
gærmorgun.
Á kjörskrá voru 618 félagsmenn
og þar af skiluðu 142 félagsmenn inn
atkvæði sínu eða 23%.
Nei sögðu 51% en já sögðu 49%.
Aðeins tvö atkvæði ráða úrslitum
og sýnir það mikilvægi þess að menn
greiði atkvæði, en á vefsíðu félagsins
furða menn sig á slakri kjörsókn í ljósi
þess hve umdeildir samningarnir
hafa verið. Kjörsókn var heldur minni
en þegar síðast voru greidd atkvæði
um samning við SA, árið 2011, en þá
var hún 27%.
Niðurstaðan þýðir að launakjör
haldast óbreytt hjá félagsmönnum því
þeir munu áfram starfa samkvæmt
eldri kjarasamningi þar til nýjum
kjarasamningi hefur verið náð við SA
og hann samþykktur af félagsmönn-
um í póstatkvæðagreiðslu. /KSE