Feykir - 24.01.2014, Síða 6
6 Feykir 03/2014
runninn upp. Þar með var það
ákveðið. Ég var þó ekki búin að
útfæra hugmyndina nánar. En
mér til mikillar lukku, þá frétti
Una vinkona mín úr MH, sem
var á þeim tíma bara kunningi
minn, af þessum áformum og
fékk að slást í för með mér.
Hún er góð að koma hlutunum
í framkvæmd og þekkti auk
þess aðeins til í Parísar. Hún
útvegaði okkur íbúð og var
leiðsögumaður minn um
borgina til að byrja með. Þetta
reyndist því afar auðvelt fyrir
mig, ég mætti bara á svæðið í
sumarlok 2009. Við bjuggum í
pínulítilli íbúð, eins og gengur
og gerist þar í borg, en það var
alltaf pláss fyrir gamla og nýja
vini og þaðan eigum við ótal
góðar minningar. Á árinu sem
ég eyddi í París vann ég á
veitingastað og fór á frönsku-
námskeið við Sorbonne
háskóla og síðast en ekki síst,
naut lífsins,“ segir Sigyn.
Ferðast víða þrátt fyrir
ungan aldur
Leiðir Sigynjar hafa legið til
margra landa á síðustu árum í
mismunandi tilgangi, ýmist til
náms, vinnu eða ferðalaga.
„Eins og ég nefndi að ofan, þá
erum við fjölskyldan mikið
fyrir að ferðast. Ekki síst
foreldrar mínir. En með þeim
hef ég ferðast um Evrópu og
Sigyn Björk flutti 13 ára til
Reykjavíkur með móður sinni
en hafði þó ennþá annan
fótinn á Króknum í nokkur ár
á eftir og starfaði við hin ýmsu
störf innan Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Sauðárkróki yfir
sumartímann. Sigyn lauk námi
við MH árið 2009 og ákvað í
kjölfarið að þá væri kominn
tími til að prófa eitthvað nýtt
og því var stefnan sett til
Frakklands. ,,Mig hafði alltaf
langað að flytja til Parísar og
læra frönsku, þegar sá fyrir
endann á menntaskólagöng-
unni var hinn fullkomni tími
Á flakki að
hætti infæddra
Sigyn Björk Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Önnu Kristínar
Gunnarsdóttur, deildarstjóra hjá Mími og Sigurðar Jónssonar, kennara við Árskóla. Sigyn
hefur haft í nógu að snúast frá því hún flutti frá Króknum, en auk þess að mennta sig hefur
hún ferðast heimshorna á milli í hinum ýmsu erindagjörðum. Sigyn segir fjölskyldu sína
vera mikla ferðalanga og saman nái þau að mála ansi stóran hluta af heimskortinu yfir staði
sem þau hafa ferðast til. Blaðamaður Feykis hafði samband við Sigyn, sem nú er stödd í
Kaupmannahöfn, og fékk að heyra af ferðum hennar.
farið og heimsótt vini vítt og
breytt sem ég hef safnað að
mér á fyrri ferðalögum,“ segir
Sigyn.
Lét gamlan
draum rætast
Síðasta sumar lét Sigyn lang-
þráðan draum rætast og fór til
Líbanon með systur sinni, sem
var búsett í Kína, en vinur
hennar frá Kína bjó í Beirút
svo þær nýttu tækifærið og
heimsóttu hann.
„Það var rosalega gaman að
koma til Líbanon, þar er mjög
fallegt, upp til fjalla og niður til
stranda, sólríkt á sumrin og
maturinn frábær. En það var
einmitt maturinn sem vakti
áhuga minn á Líbanon. Ég
hafði séð breskan matreiðslu-
þátt, u.þ.b. 10 árum áður, þar
sem matarmenningunni í
Líbanon voru gerð góð skil og
síðan þá hafði mig langað að
fara til Líbanon. Við vorum
kannski á síðasta séns með að
fara þangað, að svo stöddu, en
þar er hálfgert ófriðarástand
vegna borgarastyrjaldarainnar
í nágrannalandinu, Sýrlandi.
Enda voru alls ekki margir
túristar á ferli þegar við vorum
þar, um hásumar,“ segir Sigyn.
Kína, Líbanon og
Frakkland heillandi
Aðspurð hvaða land hafi
Skagfirðingurinn og ferðalangurinn Sigyn Björk Sigurðardóttir
SAMANTEKT
Guðrún Sif Gísladóttir
svo lengra, eða til Kúbu og
Kína. Systir mín bjó í Kína á
þeim tíma og með henni og
hennar innfæddu vinum
fengum við að sjá og fara margt
þar sem venjulegur ferðalangur
gerir ekki. Ég er mjög hrifin af
þeim ferðamáta, að heimsækja
fólk sem býr og þekkir til á
svæðinu og getur gefið manni
innsýn í líf almennings í
landinu. Eftir að ég var vaxin
úr grasi og farin að ferðast
uppá eigin spýtur, þá hef ég
yfirleitt haft þann mátann á,
Sigyn með Kristínu systur sinni í Líbanon. Þessi mynd er svo frá Hróaskeldu árið 2011. Alltaf klassíkt og eitt það
skemmtilegasta sem ég geri, tónlistarhátíðir.