Feykir - 13.02.2014, Blaðsíða 6
6 Feykir 06/2014
Torontó er mjög fjölmenn-
ingarleg borg og þar má sjá
ólíka menningarheima alla
daga, sem Tas segir að sé
kannski líkara Reykjavík yfir
háferðamannatímann.
Tas nefnir að maturinn sé
líka ólíkur. Sjálf er hún af
karabískum uppruna og segist
vera vön karabísku fæði. Og
maturinn er raunar það sem
hún saknar mest. „Ég kann
ekki að matreiða hann sjálf,
allt þetta
krydd og það, annars myndi ég
gera það,“ segir hún og hlær.
„Ég held ég sakni matarins
mest,“ bætir hún við, „og að
sjálfsögðu minna nánustu,
fjölskyldunnar og vinanna.“
Tas lætur sér þó alls ekki leiðast
og hún kann raunar vel við
rólegheitin, sem ekki var að
finna í stórborginni. „Eitt af
því sem ég kann mjög vel að
meta hér er kyrrðin. Mér finnst
ég hafa tækifæri til að hugsa.
Það er ekki eins mikil erill og
heima. Hérna gefst færi á að
slaka á inn á milli.“
Tas segist strax hafa náð
góðu sambandi við amer-
ísku leikmennina sem
leika með meistara-
flokki karla, og
það sé eins og
þau hafi alltaf
þekkst, lík-
Heimaborg Tas, Torontó, er
höfuðstaður Ontariofylkis í
Kanada og er fjölmennasta
borg Kanada, með tæplega 2,5
milljónir íbúa. Staðurinn þar
sem borgin stendur var
fundarstaður indíána og er í
dag miðstöð menningar og
efnahagslífs í landinu. Tas segir
að Torontó og Sauðárkrókur
séu mjög ólíkir
staðir.
Skemmtilegt
í vinnunni
Tashawna Higgins hefur verið þjálfari meistaraflokks og 8. og 10. flokks kvenna í körfuknattleik
hjá Tindastól í vetur. Hún kemur frá Toranto í Kanada, þar sem hún hafði unnið sem
einkaþjálfari frá því hún lauk háskólanámi. En þegar henni bauðst að gerast körfuboltaþjálfari í
litlum bæ á Íslandi var hún ekki lengi að slá til. Þar með lét hún gamlan draum um að gerast sjálf
þjálfari rætast. Tashawna, eða Tas eins og hún er oftast kölluð, er kát og lífglöð og hefur gaman af
því að tileinka sér nýja menningu og segist ætla að deila reynslu sinni af Íslandi með vinum
og vandamönnum þegar hún kemur aftur heim til Kanada.
við það í fjögur ár og mun
halda því starfi áfram eftir að
hún kemur aftur heim. Einnig
þjálfaði hún kvennalið fyrir
eitt mót, en hafði fram að því
einkum tekið að sér þjálfun
einstaklinga í körfubolta,
ásamt einkaþjálfuninni á lík-
amsræktarstöð. Þetta er því í
raun frumraun hennar sem
þjálfari körfuboltaliðs og kann
hún vel við nýja starfið. Tas
segist fara heim að tímabilinu
loknu en allt sé opið með að hún
komi aftur og getur hún vel
hugsað sér það.
Gamall draumur
að rætast
Ástæðan fyrir því að Ísland
varð fyrir valinu var einfald-
lega sú að það tækifæri kom
upp í hendurnar á henni. Allt
frá útskrift úr háskóla hafði
Tas langað að reyna fyrir sér
sem atvunnumaður í körfu-
bolta og hafði samband við
umboðsmann sem lét hana
síðan vita að þjálfara og
leikmann vantaði til Íslands.
Hún tók tækifærinu fagnandi,
enda opin fyrir öllu og vildi
gjarnan kynnast framandi
menningu um leið. Tas segist
lítið hafa þekkt til landsins en
hún hafði tækifæri til að lesa
sér til um landið og kynna sér
það áður en hún kom. „Við-
skiptavinir mínir gáfu mér
bækur um Ísland í kveðjugjöf,
ég fékk fjórar bækur, gat
reyndar ekki tekið þær allar
með mér, en í þeim
var mikill fróð
Tashawna Higgins þjálfari kvennaliðs Tindastóls í körfubolta
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
lega af því þau eiga það
sameiginlegt að vera frá öðru
landi. Hún segir það líka hafa
komið sér vel að hafa verið í
tölvusamskiptum við nokkra
sem tengjast körfuboltanum
áður en hún kom. Hún er
félagslynd, en hefur einnig
þörf fyrir að vera ein og á
auðvelt með að vera sjálfri sér
nóg. Hún tekur þó undir að án
tölvutækninnar væri þetta
mun erfiðara, internetið sé
bæði góð afþreying og auðvelt
og ódýrt sé að ná sambandi við
vini og ættingja.
Eftir útskrift frá háskól-
anum í Nordfolk State í
Virginíu fékk Tas vinnu sem
einkaþjálfari og
starfaði
i 06/2014