Feykir - 13.02.2014, Side 7
06/2014 Feykir 7
leikur um landið. Þannig að ég
hafði kynnt mér margt sem
tengdist landinu þegar ég kom
hingað í byrjun september.“
Tas kann vel við land og
þjóð og segist hafa séð margt
sem er ólíkt því sem hún á að
venjast í sínu heimalandi. „Ég
er mjög víðsýn og hugsa bara
með mér, „ókei, svona gera
þau hlutina hér. Til dæmis að
geyma börnin í barnavögn-
unum fyrir utan búðirnar
meðan maður fer inn. Ég hafði
heldur aldrei heyrt um að fólk
borðaði hákarl. Svo haldið þið
ekki upp á Valentínusardaginn
og jólin voru líka öðruvísi. Þið
eruð með þrettán jólasveina,
það var áhugavert. Það er
margt öðruvísi en það er bara
skemmtilegt að spá í það.“ Tas
segir trúarbrögðin nokkuð
áþekk en sjálf kveðst hún ekki
vera mjög trúuð en hefur þó
hug á að fara í kirkju og sjá
hvernig íslensk messa fer fram.
„Svo er það íslenski hestur-
inn, ég hef aldrei haft áhuga á
hestum en svo heyrði ég að
íslenski hesturinn hefði
sérstaka gangtegund og nú
langar mig að prófa að fara á
hestbak, það verður örugglega
fljótlega. Mig langar til
að fara og sjá
Gullfoss og
Geysir og
m a r g t
annað sem ég hef ekki séð
áður. Ég hef ekki haft tækifæri
til að ferðast mikið, á meðan
keppnistíma-bilið stendur yfir,
en þegar það er á enda koma
vinir mínir í heimsókn og þá
ætlum við að ferðast um landið
og skoða hvað það hefur upp á
bjóða.“
Þessari ólíku menningu
langar Tas að deila með öðru
fólki þegar hún kemur heim,
enda ekki allir sem hafa tæki-
færi til að ferðast til framandi
landa. „Allir halda til dæmis að
á Íslandi sé svo kalt, en það er
ekki eins kalt eins og heima,
þar er snjór og 15 stiga frost en
hérna get ég farið út á peys-
unni ef mér sýnist svo.“ Hún
segir ganga sæmilega að ná
tungumálinu en það sé frekar
erfitt, sérstaklega málfræðin. Á
æfingum fær hún hinar stelp-
urnar til að þýða ef það er
eitthvað sem ein-
hverjar þeirra
ekki skilja.
E i n n i g
k o m a
handahreyfingar og bendingar
að góðum notum í samskipt-
unum. „Hér kunna líka lang-
flestir ensku.“
Mikið efni í liðinu
Tas segir mikið efni í liðinu
sem hún þjálfar. „Við erum
með tvær stúlkur sem spila í
landsliðinu. Ég sé einnig mikla
möguleika í hinum, þær leggja
hart að sér og eru að öðlast trú
á sjálfa sig, þær geta klárlega
náð langt. Þeim hefur farið
mikið fram, tvær þeirra höfðu
t.d. aldrei spilað körfubolta
áður og það er ótrúlegt hvað
þeim hefur farið fram. Hraðinn
hefur aukist mikið og þær eru
farnar að sjá að þær geta náð
langt. Fyrir mig er frábært að
sjá þennan árangur.“ Stelp-
unum í meistaraflokki hefur
gengið vel á tímabilinu og
þegar þetta er ritað er Tinda-
stóll efst í deildinni, með jafn
mörg stig og Breiðablik og
Stjarnan en Blikar eiga leik til
góða. Segir Tas þetta vera mjög
góðan árangur hjá svo nýju liði,
en þegar þetta keppnistímabil
hófst hafði Tindastóll ekki
verið með lið í keppni í
meistaraflokki kvenna í sex ár
og er árangurinn því framar
öllum væntingum og gefur góð
fyrirheit
Tas talar um að stúlkurnar í
liðinu leggi hart að sér. Hún
nefnir að stelpurnar í 10. flokki
hafi velgt Keflavíkurliðinu
undir uggum á dögunum og
hafi þær keflvísku ekki átt von
á svona erfiðum leik, enda hafi
þær unnið Tindastól með 30-
40 stigum fram til þessa, en í
þetta sinn var munurinn
aðeins 14 stig. Þar með hafi
Stólastúlkur sannað að þær
gætu keppti við slík lið og átt
möguleika á að vinna. Tas
segir að
Tas ásamt systrum sínum (til vinstri), vinkonu sinni og frænku.
yngri flokkarnir sem hún
þjálfar sé einnig að gera góða
hluti og er mjög bjartsýn á
árangur allra þriggja flokkanna
sem hún þjálfar. „Þær hafa allt
til að bera til að taka þetta alla
leið. Þetta snýst allt um að trúa
og setja inn ennþá meiri styrk.“
Tas segir liðheildina hjá
stúlkunum vera góða, en það
hafi verið eitt af því sem hún
hafi þurft að vinna með, því það
hafi vantað allan „strúktúr“ í
leikinn. Hún þurfti því að taka
tíma til að kenna þeim
„strúktúr.“ Grunnurinn sé nú
kominn, en það sé ennþá
nokkuð í land, sem komi með
tímanum. „Þetta er ábyggilega
dálítið yfirþyrmandi því þær
eru að læra allt svo hratt, en
þetta kemur smátt og smátt og
liðið verður alltaf betra og betra.
Aðspurð segir Tas daginn
ganga þannig fyrir sig að hún
fari frekar seint á fætur, nema
mánudaga og föstudaga þegar
hún þarf að þjálfa á morgnana.
Þá fer hún og æfir í Þreksport,
borðar síðan hádegismat,
kemur heim og horfir á bíó-
mynd, fer í tölvu eða les. Eftir
það er kominn tími til að fara
og þjálfa stelpurnar og síðan
sinnir hún eigin þjálfun, en auk
þess að þjálfa leikur Tas með
meistaraflokki og þarf því að
halda sér í góðu formi. Eftir
það fer hún svo heim og borðar
kvöldmat með amerísku körfu-
boltamönnunum sem spila
með Tindastól. Kvöldunum
eyðir hún í félagsskap þeirra
eða við lestur eða í tölvu.
Byrjaði 6 ára gömul
Sjálf byrjaði Tas að spila körfu-
bolta sex ára gömul og tólf til
þrettán ára var hún að spila
með full-
orðnum karlmönnum þegar
hún fór út að leika sér, og segist
raunar ekki skilja hvernig þeir
nenntu að hafa hana með. En
hún þakkar það þeirri reynslu
að hafa náð langt í íþróttinni og
segir það hafa kennt sér
hörkuna og ákveðnina. „Þeir
gáfu ekkert eftir þó ég væri
stelpa, mér var ýtt til og hrint
eins og hinum. Þetta var mín
besta reynsla.“ Tas hélt áfram
að spila í gagnfræðaskóla og
framhaldsskóla og fékk skóla-
styrk í háskóla. Mamma
hennar spilaði „netball“ sem er
nokkuð frábrugðið körfubolta
en hún segir pabba sinn ekki
hafa stundað íþróttir. „Systir
mín spilaði körfubolta og var
mjög góður varnarmaður en
hún er hætt.“
Tas segist ekki eins önnum
kafin eins og í Toronto þar sem
hún var komin með fjórtán
manns í einkaþjálfun og dagur-
inn því ansi þéttskipaður. „Mér
líður eiginlega eins og ég sé
ekkert að vinna, því mér finnst
svo skemmtilegt í vinnunni.“
Aðspurð hvort tími gefist þá
fyrir önnur áhugamál hlær Tas
og segist einfaldlega ekki vera
góð í neinu öðru! Hún segist
þó aðeins vera farin að fylgjast
með fjárfestingum og slíku,
það sé nýja áhugamálið henn-
ar. „Ég var einmitt að fylgjast
með stelpunum sem ég þjálfa,
sumar þeirra syngja eða spila á
hljóðfæri, og ég hugsaði með
mér, almáttugur, ég kann ekki
neitt nema að spila körfubolta.
Einhvern tímann langar mig að
læra að spila á píanó eða gítar,
svo ég kunni eitthvað annað.“
„Ég kann vel að meta það
tækifæri að hafa fengið að
koma hingað til Íslands, fólkið
er vinalegt og allir eru tilbúnir
til að segja mér frá landinu
sínu. Ég nýt þessa alls og er
mjög þakklát og ánægð,“ segir
þjálfarinn Tashawna Higgins
að lokum.
Myndir úr safni Tas af henni með fóstur-móður
sinni, kvennahópur sem hún þjáflaði og fyrir
neðan stelpurnar í meistaraflokki og 8.
flokki hjá Tindastóli.
Bakgrunnsmynd: Óli Arnar
06/2014 i
Tas ásamt pabba sínum, bræðrum og frændsystkinum.