Feykir - 27.02.2014, Blaðsíða 3
08/2014 Feykir 3
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir
kostir
til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 2% vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu
yfir 20 milljónir, 4,20% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu,
óverðtryggð og óbundin 4,10% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS INNLÁNSDEILD
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
TIL SÖLU
NÝTT EINBÝLISHÚS Í VARMAHLÍÐ
Einbýlishús að Birkimel 22 í Varmahlíð er til sölu.
Húsið er 143 ferm. með bílgeymslu, byggt úr límtré og steinullareiningum,
klætt bæði utan og innan.
Íbúðin er 117 ferm.; 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og þvottahús.
Að innanverðu er íbúðin nánast fullmáluð, án gólfefna, innihurða og innréttinga.
Húsið er fullfrágengið að utan með viðhaldsfríu efni.
Lóð er grófjöfnuð.
Húsið selst á núverandi byggingarstigi eða eftir nánara samkomulagi.
Sjón er sögu ríkari.
Upplýsingar gefur Páll í síma 861 8815
Unnið úr því sem áður var hent
„Gömlu gullin“ í Húnaþing vestra
Í Húnaþingi vestra starfar handverkshópur
sem vinnur úr gærum, töglum, hornum,
beinum, klaufum, hófum og ýmsum öðrum
hráefnum sem til falla í Sláturhúsinu á
Hvammstanga. Áður var þessum hráefnum
yfirleitt hent, ef undan eru skildar gærurnar,
en þær verka þau með gamla laginu.
Að sögn Unnar Grétu Haraldsdóttur, sem er
ein af forsprökkum hópsins, hefur hann
vinnuheitið „Gömlu gullin.“ „Það er líka svo gott
að þýða það, old golds“ segir hún og hlær. Það
ríkir glaðleg stemning í hópnum, sem var
samankominn í húsnæði sláturhússins þegar
blaðamann bar að garði sl. laugardag. Um
fimmtán virkir meðlimir eru í hópnum og sá
yngsti er Jón Gautur, níu ára sonur Unnar sem
býr til lyklakippur úr hornum og selur á hand-
verksmarkaði. Einnig hjálpar hann til við að
verka gærurnar. Er það gert með gamla laginu
og engin kemísk efni notuð við verkunina.
Upphafið að handverksmiðju hópsins voru
námskeið sem haldin voru á vegum Grettistaks
og Bardúsu með dyggum stuðningi Menningar-
ráðs NLV. „Svo styður fyrirmyndarfyrirtækið
SKVH okkur með því að lána aðstöðu og hirða
það sem áður var hent. Þetta er því afar um-
hverfisvænt,“ segir Unnur. „Gærurnar veljum
við ýmist á fæti heima hjá bændum eða í
sláturhúsinu. Þau lömb sem þykja frekar ljót á
litinn gefa oft fallegustu gærurnar,“ bætir Guð-
rún Hálfdánardóttir við, en hún er bóndi á
Söndum í Miðfirði og fæst við fjölbreytt
handverk.
Auk þess að hittast öðru hvoru í Sláturhúsinu
til að verka gærur með hittist hópurinn reglu-
lega í bílskúr á staðnum. Unnur leggur áherslu á
að það sé hópvinnan sem geri þetta svo
skemmtilegt og haldi mönnum við efnið.
Afurðir hópsins fást meðal annars keyptar hjá
Bardúsu á Hvammstanga og á sumrin hjá Spes
sveitamarkaði í Grettisbóli á Laugarbakka.
Einnig eru einhverjir úr hópnum að selja sínar
vörur í Reykjavík og eru með sölusíður á
facebook. /KSE
Gæruskinn á mismunandi vinnslustigum.
Unnur (t.v.) og Auðunn skafa gærur með mismunandi verkfærum.
Handverk eftir Guðmund Ísfeld.