Feykir - 27.02.2014, Blaðsíða 5
08/2014 Feykir 5
Körfuknattleikur karla : ÍA - Tindastóll 93-122
Tindastólshraðlestin
örugg á réttu spori
Þó Tindastólsrútan væri ekki alltaf inni á veginum á leiðinni
á Akranes á föstudaginn þá létu leikmenn liðsins það
ekkert á sig fá og unnu góðan sigur á Skagamönnum,
93-122. Þegar þrjár umferðir eru eftir í 1. deildinni eru
Stólarnir í góðri stöðu efstir í deildinni en enn er þó ekki
búið að gulltryggja sæti í úrvalsdeildinni. Hver er maðurinn?
-Arnar Bjarki Sigurðarson, 21 árs sunnanmaður en á þó ættir
að rekja í Skagafjörðinn.
Hvaðan ertu?
-Ég kem frá Sunnuhvoli í Ölfusi þar sem fjölskyldan stundar
hrossa- og hundarækt.
Við hvað starfar þú?
-Ég starfa sem tamningamaður, það er fullt starf á sumrin en
á veturna er í ég námi, núna er á 3. ári í Bs námi í reiðkennslu
og reiðmennsku í Hólaskóla. Sem þýðir að ég útskrifast sem
reiðkennari í vor. Eftir námið mun ég hella mér í tamningar
og reiðkennslu.
Hefurðu tekið þátt í KS deildinni áður?
-Fyrir tveimur árum síðan tók ég þátt í úrtökunni en það
klikkaði hjá mér skeiðið þannig að því miður komst ég ekki
inn.
Hvernig líst þér á KS deildina í ár?
-Mér líst mjög vel á deildina í ár. Það er frábært að sjá þessa
breytingu sem hefur orðið með að nú séu lið. Þetta setur meiri
spennu í deildina og ég held að það geri hana sterkari.
Varstu sátt við sæti þitt í fimmganginum?
-Já ég var það, það getur alltaf gengið betur, en þar sem þetta
var í fyrsta skipti sem hesturinn fer í keppni þá er ég sáttur.
Hvaða hrossum teflir þú fram í vetur og hverjir eru aðalkostir þeirra?
-Ég er með frekar lítið reynd hross í keppni núna, en góð hross
engu að síður. Fimmgangarinn minn heitir Engill frá
Galtastöðum og er óreyndur en hefur mikla getu. Síðan er ég
með ungan fjórgangara sem heitir Mímir frá Hvoli og er
undan Auð frá Lundum, ungur hestur með góðar
gangtegundir.
Ætlar þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum keppnum í vetur?
-Ég mun líklega reyna að einbeita mér bara að deildinni og
skólanum, en við sjáum til, það getur vel verið að maður keppi
eitthvað meira.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá þér fyrir keppni?
-Nei, ég held allavega ekki.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
-Hlakka mikið til að taka þátt í deildinni sem verður vonandi
sterkari en nokkru sinni áður og vonast til að sjá sem flesta
uppí stúkum. /KSE
Sunnanmaður sem
rekur ættir sínar í
Skagafjörðinn
Þá er komið að öðrum knapanum sem við kynnum
nýjan til leiks í KS-deildinni. Það er Arnar Bjarki
Sigurðarson, sunnanmaður sem á ættir að rekja í
Skagafjörðinn, sem situr fyrir svörum að þessu sinni.
Kynning á nýjum knöpum KS deildarinnar
Körfuknattleikur kvenna : Tindastóll - Stjarnan
Stelpurnar í toppbaráttu
Það var toppslagur í hjá
stúlkunum í meistaraflokki
Tindastóls í 1. deild kvenna á
laugardaginn en þá kom
sterkt lið Stjörnunnar í
heimsókn í Síkið. Stelpurnar
reyndust ólseigar og unnu
frækinn baráttusigur á
lokametrunum, 71-67.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að leikurinn hafi verið
mikil skemmtun, hnífjafn og
bæði lið að spila fínan
körfubolta. Um miðjan fjórða
leikhluta fékk máttarstólpi
Stólanna, Tashawna Higgins
spilandi þjálfari, sína fimmtu
villu og kom því ekki meira við
sögu. Þá stigu ungu stúlkurnar í
liðinu upp og kláruðu leikinn
með glæsibrag.
Eftir þennan sigur eru
Fjölnir, Tindastóll og Stjarnan
öll með 16 stig í deildinni í 2.–4.
sæti en Breiðablik er á toppnum
með 18 stig. Næst eiga stelp-
urnar leik gegn Laugdælum
sem enn hafa ekki unnið sigur í
deildinni. /ÓAB
Skákfélag Sauðárkróks
Jakob enn
ósigraður
Fjórða umferð Meistara-
móts Skákfélags Sauðár-
króks fór fram í síðustu
viku. Jakob Sævar
Sigurðsson og Hörður
Ingimarsson gerðu jafntefli
í mikilli baráttuskák. Að
lokinni 4. umferð er Jakob
efstur með þrjá og hálfan
vinning.
Þá sigraði Þór Hjaltalín
Einar Örn Hreinsson, Birkir
Már Magnússon sigraði
Guðmund Gunnarsson og
loks sigraði Jón Arnljótsson
Sigurð Ægisson.
Sem fyrr segir er Jakob
efstur en fast á hæla honum
fylgja Birkir Már Magnússon
með þrjá vinninga og Jón
Arnljótsson og Hörður
Ingimarsson með tvo og
hálfan vinning. Flestir hinna
hafa tvo vinninga.
Í lokaumferðinni mætast
Jakob Sævar og Birkir Már í
hreinni úrslitaskák um sigur í
mótinu. Jón Arnljótsson
mætir Þór Hjaltalín, Unnar
Ingvarsson mætir Herði
Ingimarssyni og þeir Einar
Örn Hreinsson og Guð-
mundur Gunnarsson leiða
saman hesta sína. /KSE
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls
Darrell Flake hefur
framlengt samning sinn við
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls út næstu leiktíð.
„Lýsir stjórn KKD mikilli
ánægju með það að hann
verði áfram í herbúðum
liðsins og hjálpi til við
uppbygginguna sem er að
eiga sér stað hjá klúbbnum,“
segir í fréttatilkynningu frá
körfuknattleiksdeildinni.
Darrell hefur leikið að
meðaltali 29 mínútur með
liðinu í vetur en samkvæmt
fréttatilkynningu hefur hann
á þeim mínútum skorað 17.5
stig og tekið 8,1 frákast í leik.
„Darrell Flake er mikill
viskubrunnur og frábær
liðsmaður sem kallar ekki allt
ömmu sína,“ segir í til-
kynningunni. /BÞ
Flake
framlengir
við Stólana
Arnar Bjarki Sigurðarson ætlar að einbeita sér að KS-deildinni.
Proctor sá til þess að
Stólarnir voru með forystu,
23-24 að loknum leikhlut-
anum en Skagamenn byrjuðu
annan leikhluta vel og voru
komnir í 31-26 eftir eina
mínútu. Þá snérist leikurinn
gjörsamlega og á næstu rúmu
fjórum mínútum gerðu
Tindastólsmenn 22 stig en
heimamenn 0. Staðan 31-48
og geim óver. Proctor gerði
11 stig á þessum kafla.
Skagamenn klóruðu aðeins í
bakkann og minnkuðu
muninn mest í níu stig en
Stólarnir gáfu ekkert eftir og
Pétur Birgis setti niður fyrstu
af fimm 3ja stiga körfum
sínum í leiknum með síðustu
körfu fyrri hálfleiks. Staðan í
hálfleik 48-63.
Munurinn á liðunum var
yfirleitt þetta 15-20 stig út
þriðja leikhluta og staðan 71-
89 að honum loknum. Það
bar helst til tíðinda í fjórða
leikhluta að Hannes Ingi
Másson kom inná hjá
Stólunum og hann gerði sér
lítið fyrir og setti 15 stig á
síðustu 5-6 mínútum leiks-
ins. Skagamenn áttu því ekki
roð í Stólana í fjórða leikhluta
og lokatölur 93-122.
Darrell Flake var stiga-
hæstur Tindastólsmanna
með 26 stig og 11 fráköst og
var traustur út í gegn en
meira mæddi á honum en oft
áður þar sem Helgi Rafn kom
lítið við sögu, hóf leikinn en
varð snemma frá að hverfa.
Proctor gerði 23 stig en
unglingarnir Pétur, Viðar
Ágústs, Ingvi Rafn og Hannes
Ingi áttu skínandi leik. /ÓAB
Antoine Proctor á vítalínununni..