Feykir - 10.04.2014, Síða 2
2 Feykir 14/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Burtu með fordóma
Með hækkandi sól eykst að sama skapi spenningurinn fyrir
Júróvisjón. Ég er mjög ánægð með framlag okkar Íslendinga
þetta árið, hresst lag með góðan boðskap þar sem
umburðarlyndið er í fyrirrúmi –
getur ekki klikkað.
Ég held ég geti fullyrt að
umburðarlyndi sé uppáhalds
dyggðin mín, ef allir myndu sýna
meira umburðalyndi þá held ég
að heimurinn væri heilt yfir
frábær staður. Þegar manni
verður hugsað um fordóma þá
koma kannski fyrst til hugar
fordómar í garð einhverra
minnihlutahópa eða einhverra
sem eiga undir högg að sækja. En
ég var að velta vöngum yfir hugtakinu á dögunum þegar ég var
að vafra um netið og gat ekki annað en hugsað með mér hve
ánægjulegt það væri ef við gætum öll tamið okkur það í víðari
skilningi. Til dæmis virðist margir hafa mjög sterkar skoðanir á
barneignum og barnauppeldi annarra. Til að mynda hef ég
orðið vör við umræður um brjóstagjöf, þá eru sumir lastaðir
fyrir að vera ekki með barn sitt á brjósti en aðrir fyrir að vera
með börnin sín of lengi á brjósti. Það sem verra er að sumar
konur upplifa einhverskonar samviskubit eða skömm yfir því
að vera sakaðar um annað hvort. Ég hef stundum velt því fyrir
mér af hverju fólk hefur svo sterka afstöðu gagnvart þessu og
finnst í lagi að vera að slengja þeim svona fram. Ég get ekki séð
að það hvort barn sé 3 vikur, 3 mánuði eða 3 ár, eða jafnvel ekki
neitt á brjósti, skipti nokkru máli í nútíma samfélagi, eins lengi
og barnið er heilbrigt og hamingjusamt í góðu sambandi við
foreldra sína.
Mér varð einnig hugsað um þetta þegar ég rakst á grein sem
fólk var að deila á Facebook undir heitinu: „Þetta er ástæðan
fyrir því að ég kýs að eignast ekki börn“. Í greininni tjáði stúlka
sig um það hve ánægð hún væri með líf sitt, hún gæti gert það
sem hugur hennar girndist og væri ekki bundin yfir
barnauppeldi. Þegar greinin gekk á milli manna var stúlkan
gagnrýnd fyrir afstöðu sína til barneigna en ég hugsaði með
mér: „Gott hjá henni!“ . Í greininni kom nefnilega einnig fram
að hún hafði fengið þær fréttir á unglingsaldri að hún gæti
líklega ekki átt börn og að hún hafði svo ítrekað reynt en ekkert
gengið. Er þá ekki betra að hún hafi fundið lífsfyllingu og
hamingju í öðru í stað þess að gefast upp og gráta örlög sín.
Umburðarlyndi og jákvæðni smitar útfrá sér, líkt og neikvæðni
og gagnrýni, og fyrir mitt leyti þá kýs ég heldur að taka undir
með Júróvisjónförum okkar: „Burtu með fordóma og annan
eins ósóma. […] Þetta er engin algebra, öll erum við eins. Hey!“
Berglind Þorsteinsdóttir
Kjötafurðastöð KS
og SKVH
Sauðárkrókskirkjugarður
Hækka
verð fyrir
nautgripakjöt
til bænda
Fara fram á
stækkun
Kjötafurðastöð KS og SKVH
hafa ákveðið að hækka
verð fyrir nautgripakjöt til
bænda um 5%.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Kjötafurðastöð KS er
ætlunin ekki að hækka verð á
sömu afurðum til neytenda
heldur er þetta liður í að
hvetja bændur til að auka
framleiðslu, því ekki næst að
anna eftirspurn. Hækkunin
tekur gildi frá og með 7. apríl
nk. /BÞ
Sóknarnefnd Sauðárkróks-
kirkju hefur farið fram á
stækkun Sauðárkróks-
kirkjugarðs við skipulags-
yfirvöld Svf. Skagafjarðar,
einnig að unnið verði
deiliskipulag fyrir svæðið
ásamt tilheyrandi aðal-
skipulagsbreytingu.
Þetta kemur fram í fundar-
gerð skipulags- og byggingar-
nefndar sveitarfélagsins frá 1.
apríl sl. Á fundinum var lögð
fram tillaga sem unnin var á
Stoð ehf. verkfræðistofu af
Sólveigu Olgu Sigurðardóttur
/BÞ
Feykir.is
Þú finnur þínar fréttir
á...
Feykir í páskafrí
Ekki blað í dymbilvikunni
Mikill áhugi á sögu- og menn-
ingartengdum fyrirlestrum
Byggðasafn Húnaþings og Stranda
Í vetur hefur Byggðasafn
Húnvetninga og Stranda verið
með fyrirlestrarröð þar sem
fyrirlesarar hafa fjallað um
nýjar rannsóknir á sviði
sagnfræði og
menningarmiðlunar. Um var
að ræða þrjá athyglisverða
fyrirlestra sem allir tengdust
Húnaþingi og voru vel sóttir af
heimafólki.
„Nú er fyrirlestraröð safnsins
lokið á þessum vetri en við erum
þegar farin að undirbúa næsta
vetur, því við komumst að því að
það er mikill áhugi á sögu og
menningartengdum fyrirlestr-
um á svæðinu, sagði Sigríður
Bachmann og er safnstjóri í
samtali við Feyki. „Við reynum
að hafa þetta þannig að bjóða
upp á nýjar sagnfræðirannsóknir
og við erum svo heppin að þær
hafa tengst okkar svæði. Við
bjóðum líka upp á lesefni,
tímarit eða bækur ef að fólk vill
fara dýpra í rannsóknirnar,“
sagði Sigríður.
Þessa dagana er starfsfólk
safnsins á fullu að undirbúa
sýningar fyrir sumarið en safnið
mun einnig taka þátt í sagnadegi
sem verður á svæðinu í næstu
viku. /KSE
Þar sem páskavikan gengur
senn í garð fer Feykir í frí og
kemur því ekki út blað þá
vikuna. Blaðið sem kemur út
vikuna þar á eftir verður þó
fyrr á ferðinni en vanalega og
kemur út þriðjudaginn 22.
apríl.
Blaðið verður þá með stærra
sniði og verður tileinkað
atvinnulífssýningunni Lífsins
gæði og gleði og jafnframt
upphafi Sæluvikunnar. Þess má
geta að Feykir.is verður ferskur á
netinu í næstu viku, líkt og alltaf.
/BÞ
Aflafréttir 30. mars – 5. apríl 2014
Grásleppuveiðar fara hægt af stað
Í viku 14 var landað rúmum 460 tonnum á
Sauðárkróki, rúmum 17 tonnum á Hofsósi, 85
tonnum á Skagaströnd tæpum 9 tonnum á
Hvammstanga.
Aðspurður um hvernig grásleppuveiðarnar
færu af stað sagði Gunnar Steingrímsson,
hafnarvörður hjá Skagafjarðarhöfnum:
„Veiðar ganga ekkert allt of vel, þorskgengd
hefur verið að gera köllunum lífið leitt.“/KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Ólafur Magnús. HU-54 Þorskanet 5.638
Óli Gísla HU-212 Lína 4.561
Smári HU-7 Handfæri 1.573
Sæfari HU-200 Landb. lína 988
Þorleifur EA-88 Þorskanet 12.491
Alls á Skagaströnd: 85.248
Fannar SK-11 Grásleppunet 9.318
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 4.784
Hafey SK-10 Grásleppunet 6.902
Helga Guðm. KS-23 Handfæri 1.640
Hrappur SK-121 Grásleppunet 1.558
Klakkur SK-5 Botnvarpa 85.437
Málmey SK-1 Botnvarpa 327.293
Már SK-90 Rauðmaganet 688
Nona SK-141 Rauðmaganet 696
Nökkvi ÞH-27 Rækjuvarpa 13.668
Óskar SK-13 Grásleppunet 5.647
Þytur SK-18 Grásleppunet 3.151
Alls á Sauðárkróki 460.782
Brák HU-8 Handfæri 1.025
Þorleifur EA-88 Þorskfiskanet 7.619
Alls á Hvammstanga 8.644
Ásmundur SK-123 Landb.lína 1.683
Skáley SK-32 Grásleppunet 6.364
Þorgrímur SK-27 Grásleppunet 6.618
Þorleifur EA-88 Þorskfisknet 1.683
Alls á Hofsósi 17.671
Bergur sterki HU Landb.lína 4.580
Dagrún HU-121 Landb.lína 12.575
Flugalda ST-54 Grásleppunet
5.520Bergur sterki HU Landb.lína 8.582
Blær HU-77 Landb.lína 1.014
Flugalda ST-54 Grásleppunet 5.392
Garpur HU-58 Handfæri 761
Hafrún HU-12 Dragnót 28.154
Ísborg ÍS-250 Rækjuvarpa 16.094