Feykir - 10.04.2014, Blaðsíða 3
14/2014 Feykir 3
Hafðu samband
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is
...allir með!
Íþróttir
Knatt-
spyr-
Hestar
Húnvetnska liðakeppnin
Skagfirsku mótaröðinni lokið
Draumaliðið sigraði
Síðasta mót vetrarins í
Skagfirsku mótaröðinni fór
fram í síðustu viku en þá
var keppt var í tölti,
fjórgangi og skeiði. Tryggvi
Björnsson var í 1. sæti á
Vág frá Höfðabakka með
6,83 í 1. flokki T2 og Elvar
Einarsson var í 1. sæti í 1.
flokki – Skeið með 33 stig.
Stigahæsti knapinn í
barnaflokki - T7 eftir
veturinn var Björg
Ingólfsdóttir með 36 stig.
Stigahæsti knapinn í
unglingaflokki - T3 var Ásdís
Ósk Elvarsdóttir með 40 stig.
Laufey Rún Sveinsdóttir var
stigahæst í Ungmennaflokki
– V2 með 34 stig og Halldór
Þorvaldsson var stigahæstur í
2. flokki með 32 stig. Nánari
úrslit má finna á Feyki.is
undir Hestar. /BÞ
Lokamót Húnvetnsku
liðakeppninnar var haldið
laugardaginn 5. apríl og var
keppt í tölti. Draumaliðið
sigraði liðakeppnina með
169,13 stig, í öðru sæti varð
LiðLísuSveins með 165,23
stig, í þriðja sæti Víðidalur
með 157,96 stig og í fjórða
sæti 2Good með 147,37
stig.
Í fyrsta sæti í 1. flokki í
einstaklingskeppninni var
Ísólfur Líndal Þórisson með
28 stig, í 2. sæti var Fanney
Dögg Indriðadóttir 23,5 stig
en í 3. sæti var Vigdís
Gunnarsdóttir 21,5 stig. Í 2.
flokki var Halldór Pálsson í 1.
sæti með 22 stig, í 2. sæti
Sveinn Brynjar Friðriksson 18
stig en því 3. var Helga Rún
Jóhannsdóttir með 15 stig.
Stine Kragh sigraði í 3. flokki
34 stig og Eva Dögg Pálsdóttir
í unglingaflokki. Nánari úrslit
má finna á Feyki.is undir
Hestar. /BÞ
Ásgerður Pálsdóttir og Ágúst
Sigurðsson á Geitaskarði í
Langadal hlutu útnefninguna
heiðursfélagar Félags
ferðaþjónustubænda.
Ásgerður og Ágúst hafa rekið
ferðaþjónustu á Geitaskarði í
fjölda ára en samkvæmt vef
Ferðaþjónustu bænda hafa
félagsmál verið þeim afar
hugleikin.
Ágúst hefur komið bæði að
stjórnarstörfum fyrir Félag
ferðaþjónustubænda sem og
Ferðaþjónustu bænda hf.
Útnefningin fór fram á á
nýafstöðnum aðalfundum
Ferðaþjónustu bænda hf. og
Félags ferðaþjónustubænda sem
haldnir voru 24. og 25. mars á
Hótel Dyrhólaey í Mýrdal. /BÞ
Félag ferðaþjónustubænda
Hjónin á Geitaskarði
útnefnd heiðursfélagar
Ásgerður Pálsdóttir og Ágúst Sigurðsson á Geitaskarði í Langadal, útnefnd heiðursfélagar Félags
ferðaþjónustubænda. Mynd/Sigurður Már Harðarson
Alls voru um 140 innsendar
vörur þetta árið svo úrvalið var
mikið. Frá þessu er sagt á
heimasíðu SAH afurða. Þetta er í
fyrsta sinn sem fyrirtækið tekur
þátt í keppninni. Þrír
kjötiðnaðarmenn sem tóku þátt
frá fyrirtækinu hlutu allir
gullverðlaun í keppninni.
„Fyrirkomulag keppni var
þannig að keppendur sendu inn
ómerktar vörur sem fóru fyrir
dómnefnd. Þar mátu dómarar
fjölmarga þætti er varða bragð,
útlit, áferð og fl. Eftir að allir
dómar lágu fyrir komu fram
upplýsingar um framleiðendur
og kjötiðnaðarmenn. Keppend-
ur frá SAH Afurðum voru þau
Elmar Sveinsson, Bergþór Páls-
son og Gunnhildur Þórmunds-
dóttir og hlutu þau öll gull-
verðlaun. Auk þess fékk Bergþór
Pálsson sérstök verðlaun fyrir
bestu vöru í flokki grafinna og
reyktra laxfiska.
Fagkeppnin var mjög glæsileg
í alla staði þetta árið og gaman
að sjá allar þessar nýju
hugmyndir á einum stað. Þetta
er í fyrsta sinn sem
kjötiðnaðarmenn frá SAH
Afurðum taka þátt í Fagkeppni
Meistarafélags kjötiðnaðar-
manna. Björn Kristjánsson tók
þátt fyrir hönd Sölufélag Austur-
Húnvetninga svf. árið 1998 og
vann þá gullverðlaun fyrir
sviðasultu, kæfu og fl. . /KSE
Kjötiðnaðarmenn SAH Afurða ehf.
Nældu sér í sjö gullverðlaun
Bergþór Pálsson vann gullverðlaun í keppninni,
auk sérstakra verðlauna í flokki grafinna og
reyktra laxfiska.
Kjötiðnaðarmenn SAH Afurða
ehf. á Blönduósi hlutu sjö
gullverðlaun í Fagkeppni
Meistarafélags kjötiðnaðar-
manna 2014.
Framboðslisti
Framsóknarfélags Skagafjarðar
Sveitarstjórnarkosningar 2014
Framsóknarfélag Skagafjarðar, sem er í
meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn ásamt
Vinstri hreyfingunni grænu framboði
undanfarið kjörtímabil, hefur sent frá sér
fréttatilkynningu með framboðslista til
sveitarstjórnarkosninganna 31. maí 2014.
Framboðslistinn er eftirfarandi:
1. Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn
2. Sigríður Magnúsdóttir sérfræðingur
3. Bjarki Tryggvason skrifstofustjóri
4. Viggó Jónsson forstöðumaður
5. Þórdís Friðbjörnsdóttir forstöðumaður
6. Inga Huld Þórðardóttir talmeinafræðingur
7. Ísak Óli Traustason nemi
8. Einar Einarsson bóndi og ráðunautur
9. Hrund Pétursdóttir fjármálaráðgjafi
10. Jóhannes Ríkharðsson bóndi
11. Snorri Snorrason skipstjóri
12. Ásdís Garðarsdóttir skólaliði
13. Bryndís Haraldsdóttir nemi
14. Guðrún Sif Gísladóttir nemi
15. Ingi BJörn Árnason bóndi
16. Guðrún Kristín Kristófersd.atvinnurekandi
17. Gunnar Valgarðsson forstöðumaður
18. Einar Gíslason tæknifræðingur