Feykir - 10.04.2014, Page 11
14/2014 Feykir 11
Ingibjörg og Viktor Elvar matreiða
Fiskrétt með fylltu naan brauði og
kókospannacotta
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti að fá sér stórt
páskaegg.
Staðreynd vikunnar
Kornabörn eru með 350 bein í líkamanum. Í fullorðnum manni eru þau
um 200. Ástæða þess að þeim fækkar er að þau gróa saman.
Sudoku
• Ansi langt orð
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
• Lengsta orðið í ensku, samkvæmt Oxford English Dictionary er
pneumonoultramicroscopicsilicovolcanoconiosis sem mun merkja
lungnasjúkdóm af völdum innöndun agna af ösku eða sandryki.
Ótrúlegt en kannski satt er að annað orð með sama stafafjölda er
fleirtala þess orðs, pneumonoultramicroscopicsilicovolcanoconios
esl.
AÐALRÉTTUR
Fiskréttur
800 g þorskur
4 dl rjómi
3-4 msk tandori krydd
(frá Pottagöldrum)
1 tsk salt
1-2 msk tómatsósa
Aðferð: Fiskurinn er lagður í
eldfastmót. Hinum hráefnunum er
blandað saman í skál og hellt yfir
fiskinn. Setjið álpappír yfir
eldfastamótið og bakið við 200°C í
ca. 20 mín. Áður en fiskurinn er
borinn fram er cashew hnetum og
ferskum koríander dreift yfir
fiskinn. Með þessum rétt ber ég
fram brún hrísgrjón, salat og fyllt
naanbrauð.
Fyllt naan brauð:
2 dl volgt vatn
2 tsk þurrger
1 dl kókosjógúrt
3 msk kokosolía (hita þarf
kókosolíuna svo hún verði fljótandi)
¾ tsk salt
Aðferð: Heilhveiti blandað út í
vökvann þar til deigið er passlegt,
þannig að hægt sé að móta úr því
litlar bollur. Deigið látið lyfta sér í 30
mín.
Fylling í naan brauðið:
100 g döðlur (saxaðar)
¼ dl vatn (vatn og döðlur hitað
saman í potti, hrært í á meðan, þar
til döðlurnar eru orðnar að mauki)
½ dl kókosmjöl (hrært saman við
döðlumaukið)
Aðferð: Skiptið deiginu í litlar
bollur á stærð við tómata. Fletjið
síðan bollurnar út og setjið fyllingu
á helminginn. Lokið þá brauðinu,
þannig að það líti út eins og
hálfmáni. Fletjið aftur aðeins yfir
brauðið.
Þegar brauðin eru öll tilbúin eru
þau steikt á þurri pönnu og pensluð
með hvítlauskolíu um leið og þau
koma af pönnunni.
u
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
AUÐUR JÓHANNES., Hofsósi
Fara á Búndur og blásýrur & bingó.
HELGA SJÖFN HELGAD.,
Hátún i -Prinsessan á bænum
fermist laugardag fyrir páska og
svo njótum við páskanna heima í
sveitasælunni
FEYKIFÍN AFÞREYING kristin@feykir.is
Hvað er svart og hvítt, svart og hvítt, svart og hvítt…?
Hahahahahaha
Nunna að rúlla niður brekku.
Hvað er svart og hvítt og skellihlæjandi?
Nunna sem hrinti hinni nunnunni.
Krossgáta
Ingibjörg, Viktor Elvar og börnin þeirra Björn Viktor og Elín Anna.
„Fyrirmynd mín í eldhúsinu
Hjördís Stefánsdóttir frænka
mín, hefur skorað á mig að
opna uppskriftabókina mína.
Ég eyði mörgum klukku-
tímum á viku í eldhúsinu, því
mér finnst mjög gaman að
EFTIRRÉTTUR
Kókospannacotta
4 matarlímsblöð
½ tsk vanilluduft eða ein vanillustöng
(kljúfið stöngina í tvennt og skafið
kornin úr)
3 dl rjómi
3 dl kókosmjólk
1 dl flórsykur
Aðferð: Leggið matarlímsblöðin í
kalt vatn í 5 mín. Hrærið saman í
potti kókosmjólk, rjóma og
flórsykur. Hitið upp að suðu. Takið
þá pottinn af hellunni og hrærið
vanilluduftinu saman við. Að lokum
hrærið þið einu matarlímsblaði í
einu saman við blönduna. Hellið
blöndunni svo í falleg glös og látið
stífna í ca. 2 tíma í ísskáp. Skreytið
réttinn með söxuðum jarðarberjum
áður en hann er borinn fram
Verði ykkur að góðu!
elda hollan og góðan mat.
Uppskriftirnar sem ég ætla að
deila með ykkur eru einfaldar
og fljótlegar. Ég ætla að skora á
vin minn Orra Hreinsson. Ég
er viss um að hann lumi á
nokkrum spennandi upp-
skriftum sem hann er vanur að
hrista fram úr erminni fyrir
hana Þóru sína.“
JÓN INGI HALLDÓRSSON,
frá Miklabæ -Ég ætla að vera
heima, slappa af, og njóta þess að
vera heima hjá mér.
GUÐRÚN J. VALGEIRS.,
brottfl. Skr. -Ég fer í fermingu
hjá skagfirskri blómarós sem býr í
Grindavík. Annað er ekki planað
nema jú, fara yfir próf og verkefni
en aðallega ætla ég að slaka á og
njóta lífsins. Við skreppum jafnvel
á Krókinn og á skíði.
SVANHILDUR GUÐMUNDS.,
brottfluttur Sauðkrækingur
-Um páskana ætla ég að liggja
í leti, taka á móti góðum
gesti, leika mér, fíflast, skrifa
eitthvað skemmtilegt og gæða
mér á íslensku páskaeggi í
Noregslandinu.
[SPURT Á FACEBOOK ]
Hvað ætlar
þú að gera
um páskana?