Feykir - 10.04.2014, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
10 apríl 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
www.skagafjordur.is
verður í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
dagana 26.-27. apríl nk.
Sýningin er með sama sniði
og fyrri sýningar árin 2010 og 2012.
Samhliða sýningunni munu fara fram málstofur um
fjölbreytt málefni, auk þess sem boðið verður upp á
skemmtiatriði á sviði.
Sæluvika Skagfirðinga 2014 verður sett á
sýningunni sunnudaginn 27. apríl.
Sýningin verður opin á laugardegi frá kl. 10-17
og sunnudegi frá kl. 10-16.
Skagafjörður2014
Lífsins gæði & gleði
ATVINNA, MANNLÍF OG MENNING : SÝNING Á SAUÐÁRKRÓKI DAGANA 26. - 27. APRÍL
Skagafjörður
Lífsins gæði & gleði
SÝNING Á SAUÐÁRKRÓKI 26. - 27. APRÍL
Lífsins gæði & gleði
SÝNING Á SAUÐÁRKRÓKI 26. - 27. APRÍL
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
Forvitnast í fataskápa:
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
Finnur gersemar í gömlum flíkum!
Spakmannsspjaraspekúlant sein-
asta innlits, Laufey Kristín
Skúladóttir, sá fulla ástæðu til
þess að benda á Grétu Sjöfn Guð-
mundsdóttur sem næsta gestgjafa
og erum við hérna í tískuhorni
Fabjúlössmans spenntar að sjá
hvað Gréta Sjöfn hefur fram að
færa.
Gréta Sjöfn er fædd og uppalin á
Blönduósi þar sem himininn
stendur í ljósum logum við
sólarlag við ósa Blöndu eins og
hún kemst svo ljóðrænt og fallega
að orði. Ættirnar rekur hún í báðar
Húnavatnssýslur og á sunnanverða
Vestfirði. Eftir búsetu í Höfuð-
borginni lá leiðin til Skagafjarðar
árið 1982 í smá sumarstopp með
betri helmingnum, en eitthvað
teygðist úr sumrinu og hefur hún
verið alsæl í Skagafirðinum síðan
En hvernig er það Gréta, hvað er
svo algjörlega uppáhalds hjá þér
í fataskápnum?
-Þetta er erfið spurning sem gefur
ólík svör frá degi til dags, enda er
ég hrifnæm persóna sem elska
fjölbreytni. Þessa dagana eru það
Scarpa fjallgönguskórnir, appelsínu-
guli Cintamni útivistajakkinn
ásamt nýju göngubroddunum
sem ég festi kaup á um daginn sem
eru í uppáhaldi enda er ég forfallin
í vetrar-fjallgöngum. Skemmti-
legast sem ég geri er skapa minn
eigin stíl óháð tískustraumum og
finnst gaman að fara óhefðbundnar
UMSJÓN MEÐ
FRÖKEN FABJÚLÖSS
Hrafnhildur Viðarsdóttir
[ frokenfab@feykir.is ]
leiðir í fatavali, en passa gjarnan að
velja nýjan fatnað í takt við það
sem er í fataskápnum. Það er
nefnilega endalaust hægt að poppa
upp gamla jakkann, buxurnar eða
pilsið með útsjónarsemi og nýtni.
Ég nýti mér gjarnan verslanir
Rauða krossins, sem eru víða, en
þar má finna allt mögulegt á
frábæru verði. Rauði krossinn í
Skagafirði er með fata-
markað einu sinni í
mánuði og þar hef ég
fundið gersemar sem ég
hef notað mikið. Að vísu
hafa leðurstígvél verið
nauðsynjahlutur í fata-
skápnum mínum allt frá
10 ára aldri, þeirra get ég
alls ekki verið og á ansi
mörg pör af leður-
stígvélum eða alveg fullan
skáp. Á myndinni er ég í
uppáhaldsdressinu mínu
þessa dagana; buxum
sem ég keypti í Lindex í
Smáralind, einum af
mínum uppáhalds leður-
stígvélum sem ég hef átt í
fjöldamörg ár og skyrtu
sem ég keypti á
fatamarkaði Rauða kross-
ins í Skagafirði. Þessi
skyrta er efri partur af
samsettri flík, þ.e. skyrta
og pils. Ég stytti pilsið og
nota það síðan við svarta
peysu og leðurstígvél.
Yndislegt að endurnýta
og búa til nýja flík úr
gamalli.
Hverjum ætla þú svo að
afhenda tískukyndilinn?
-Ég ætla að tilnefna
heiðurshjónin Dóru
Heiðu Halldórsdóttur og
Þorstein T. Broddason.
Þau eru alltaf smekkleg,
elegant og skemmtileg í
fatavali hvort sem er í
vinnu, útivist eða á
hátíðarstundum.