Feykir - 08.05.2014, Side 2
2 Feykir 17/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Afturhvarf til bernskunnar
Það er alveg magnað hve hreyfing og líkamsrækt getur haft góð
áhrif . Ég er kannski ekki að segja neinar nýjar fréttir í þessum
leiðara en í þessu tilfelli eru sumar vísur aldrei of oft kveðnar.
Þá eru það ekki einungis augljósu
afleiðingar líkamsræktar sem ég
vill ræða, s.s. bætt líkamlegt
atgervi, aukið úthald og almennt
hreysti, heldur er það gleðin og
afturhvarfið til bernskunnar sem
vill oft fylgja. Börn eru á fullu
allan liðlangan daginn, leika sér,
stunda íþróttir og eru glaðværð
og iðjusemi einkennismerki
æskunnar. Þegar við fullorðnumst
hægist á okkur, kyrrseta og
amstur hversdagsins vill oft taka
völdin. Þá eru það stundirnar þegar hægt er að bregða sér á leik
sem gefa lífinu gildi, hvort sem það er í fótbolta með félögunum,
brunandi niður snævi þaktar fjallshlíðar, í reiðtúr í fallegu veðri
eða þá þegar maður „gleymir öllu öðru um stund“ í trylltum
dansi, eins og Linda Björk Ævarsdóttir Zumba kennari lýsir í
viðtali á bls. 6.
Öll höfum við gott af því að gleyma okkur í augnablikinu annað
slagið og hvernig er betra að vera en á fullu í leik og ekki er
verra ef það er góðra vina hópi.
Berglind Þorsteinsdóttir
314 milljón kr. afgangur
Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Ársreikningur Sveitarfélagsins
Skagafjarðar 2013 var tekinn
fyrir á fundi sveitarstjórnar
þann 30. apríl sl. Samkvæmt
fundargerð námu
rekstrartekjur sveitarfélagsins
á árinu 3.902 millj. króna af
samstæðunni í heild. Þar af
voru rekstrartekjur A-hluta
3.289 millj. króna en í
A-hluta er aðalsjóður auk
eignasjóðs og
þjónustustöðvar. Í B-hluta eru
veitustofnanir, hafnarsjóður,
félagslegar íbúðir og
Tímatákn ehf.
Í fundargerðinni kemur fram
að rekstrargjöld sam-stæðunnar,
að frátöldum afskriftum og
fjármagnsliðum, voru 3.198
millj. króna, þar af A-hluti 3.012
millj. króna.
Rekstrarhagnaður A og B
hluta fyrir afskriftir og
fjármagnsliði er 703 millj. króna,
þar af er rekstrarniðurstaða
A-hluta jákvæð fyrir afskriftir
og fjármagnsliði um 277 millj.
króna. Afskriftir eru samtals 142
millj. króna, þar af 79 millj.
króna hjá A-hluta.
Fjármagnsgjöld umfram
fjármunatekjur voru hjá
samstæðunni í heild samtals um
228 millj. króna, þ.a. eru 171
millj. króna fjármagnsgjöld
umfram fjármunatekjur í
A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrar-
hagnaður A og B hluta á árinu
2013 er 314 millj. króna og
rekstrarniðurstaða A hluta er
jákvæð um 11 millj. króna. /BÞ
Hugmyndum um samstarf fagnað hjá Svf. Skagafirði
FNV skoðar samstarf
við Háskólann í Skövde
Verið er að skoða
möguleikann á samstarfi á
milli Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra og
tölvunar- og
verkfræðideildar Háskólans
í Skövde í Svíþjóð. Ef
þessar hugmyndir ganga
eftir yrði um eins árs nám
að ræða og í kjölfarið gætu
nemendur lokið BSc námi
við Háskólann í Skövde,
eða aðra háskóla, á
tveimur árum í stað
þriggja.
Slíkar hugmyndir um fjórða
þreps nám og fjarnám í
samvinnu við aðra skóla hafa
verið til skoðunar um tíma
m.a. í samvinnu FNV við
Atvinnu-, menningar- og
kynningarnefnd Svf. Skaga-
fjarðar og var þessi leið rædd
á fundi nefndarinnar 2. maí
sl. og fagnaði nefndin
hugmyndinni og lýsti yfir
vilja til samstarfs við
skólann, Hátæknisetur
Íslands og fleiri aðila um
verkefnið. „Við ætlum að
fara í undir-búningsvinnu
með þetta og sjá hvernig
þetta gæti litið út. Ef skólinn
og skólanefnd telja verkefnið
fýsilegt eftir þá vinnu,
munum við í framhaldinu
kynna það fyrir
menntamálaráðuneytinu, en
þar höfum við notið mikils
velvilja við þróun nýrra
námsleiða við skólann. Sú
forathugun sem stefnt er að
yrði fyrsta skrefið,“ segir
Bjarni Jónsson, formaður
nefndarinnar og formaður
skólanefndar FNV, í samtali
við Feyki. Hann segir helstu
hindrunina vera skráning á
milli skólanna en til þess
þurfi sérstaka heimild frá
menntamálaráðuneytinu.
Um tilraunaverkefni yrði að
ræða þar sem fjarkennsla
færi fram fyrsta árið frá
Skövde til FNV. Þá færi fram
tilraunakennsla í tvö ár við
FNV en að þremur árum
loknum færi öll kennsla 1.
árs fram innan fjölbrauta-
skólans. En Bjarni segir hægt
sé að hugsa sér fleiri
útfærslur. „Skólanefnd FNV
leggur mikla áherslu á að
skólinn haldi áfram að sýna
frumkvæði við þróun nýrra
námsleiða og ekki síst
svokallað fjórða þreps nám
sem getur nýst sem hluti af
frekara tækni og háskólanámi
á næstu skólastigum. Þetta
verkefni ef af verður yrði í
þeim anda.“
Verkfræðideild Háskólans
í Skövde býður upp á í bygg-
ingarverkfræði, vélaverk-
fræði, iðnaðar-og fram-
leiðsluverkfræði og
hönnunarverkfræði.
Tölvunarfræðidei ldin
býður upp á nám í
tölvunarfræði, hönnun
notendaviðmóts, kerfisfræði,
kerfisfræði með áherslu á
viðskiptamódel, sérhæfingu í
stýringu og meðhöndlun á
upplýsingaflæði, forritun og
vefsíðugerð og þróun
tölvuleikja. „Háskólinn í
Skövde þykir mjög
framarlega þegar kemur að
samstarfi við atvinnulífið og
hefur hlotið viðurkenningar
vegna þessa. Nám við
skólann byggir mikið á
raunhæfum verkefnum sem
nemendur vinna út í
atvinnulífinu. Nemendur
skólans hafa átt greiðan
aðgang að atvinnulífinu að
námi loknu. FNV hefur á
undanförnum árum lagt
mikla áherslu á góða
tengingu við atvinnulífið á
Norðurlandi vestra og að
námsframboð þjóni þörfum
svæðisins. Þá hefur skólinn
lagt mikla áherslu á að bjóða
fjölbreytt og metnaðarfullt
iðn- og tækninám. Samstarf
við Háskólann í Skövde um
nám á þessu sviði væri því
kærkomin viðbót við það
námsframboð sem nú er við
skólann,“ segir í minnisblaði
skólameistara FNV sem var
lagt fyrir á fundi Atvinnu-,
menningar-, og kynningar-
nefndar. Nefndin samþykkti
að leggja allt að eina milljón
króna til skoðunar á slíku
tilrauna-verkefni. /BÞ
Elín R. Líndal leiðir
lista framsóknar
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Húnaþingi vestra var
samþykktur á aðalfundi Framsóknarfélags Húnaþing vestra
þann 7. apríl síðastliðinn.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014
Listinn er eftirfarandi:
1. Elín R Líndal, framkvæmdastjóri
og sveitarstjórnarfulltrúi,
Lækjamóti
2. Ingimar Sigurðsson, bóndi,
Kjörseyri
3. Valdimar Gunnlaugsson,
stuðningsfulltrúi, Hvammstanga
4. Sigríður Elva Ársælsdóttir, félagsliði,
Hvammstanga
5. Gerður Rósa Sigurðardóttir,
tamningamaður og leiðbeinandi á
leikskóla, Hvammstanga
6. Sigtryggur Sigurvaldason, bóndi,
Litlu-Ásgeirsá
7. Sigurður Kjartansson, bóndi,
Hlaðhamri
8. Sigrún Waage, bóndi og bókari
skólabúða á Reykjaskóla, Bjargi
9. Ragnar Smári Helgason,
viðskiptafræðingur og
bóndi, Lindarbergi
10. Anna Birna Þorsteinsdóttir,
veitingastjóri, Þórukoti
11. Guðmundur Ísfeld,
handverksbóndi, Syðri-Jaðri
12. Jóhanna Helga Sigtryggsdóttir,
leiðbeinandi á leikskóla,
Hvammstanga
13. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir,
grunnskólakennari, Hvammstanga
14. Þorleifur Karl Eggertsson,
símsmiður, Hvammstanga