Feykir - 08.05.2014, Side 4
4 Feykir 17/2014
ÞURÍÐUR HARPA SIGURÐARDÓTTIR , KJÓSANDIAÐSENT
LUMARÐU Á FRÉTT?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
Hann Feykir okkar kemur út einu sinni í viku allan ársins hring,
löðrandi í málefnum líðandi stundar með ofur áherslu
á Norðurland vestra.
Sendu okkur endilega fréttaskot, pistil, mynd
eða bara ábendingu um ... eitthvað!
Hafðu samband – síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
Við minnum einnig á Feykir.is
– fullt net af fréttum og fíneríi alla daga!
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Áskriftarsíminn er 455 7171
Er „Allskonar fyrir aumingja“ á stefnuskrá?
Ég er svo heppin að hafa ekki
fatlast fyrr á lífsleiðinni, og
hafa því ekki þurft að berjast
fyrir tilveru minni og
sjálfsögðum mannréttindum
í áratugi. Hafandi farið hér
um sveitarfélagið án hækja,
göngugrindar eða hjólastóls
man ég vel að aðgengi að
hinum og þessum stöðum hér
í bæ skipti mig litlu sem engu
máli þá, ég bara pældi lítið í
því hvort eða hvernig því var
háttað.
Ég þurfti heldur ekki að spá í
að fá fólk til að þrífa heimili
mitt, glugga, bíl eða sinna garð-
verkum, hjálpa mér að halda
matarboð, baka, fara með mér í
skóla og svo mætti lengi telja, ég
gat þetta allt sjálf.
Það var því kannski svoldið
mátulegt á mig að takast á við
hugsunarleysi undanfarinna
áratuga þegar ég, komin í
hjólastól, ætlaði að fara á sömu
staði og ég hafði áður hlaupið
inn á, í hugsunarleysi mínu.
Því velti ég því upp hér og nú,
hvernig væri daglegt líf þitt
ágæti frambjóðandi ef þú
þyrftir að vera í hjólastól næsta
mánuðinn eða árin?
Vildir þú komast um bæinn
þinn og inn á þá staði sem þú
fórst á áður?
Gætir þú heimsótt vini og
ættingja eða búa þeir í lyftu-
lausum blokkum?
Vildir þú njóta NPA aðstoðar
(notendastýrð persónuleg aðstoð),
ég geri ráð fyrir að frambjóðendur
hafi kynnt sér hvað það er. Í
eftirfarandi orðum felast skýr
skilaboð: Allir einstaklingar,
hvort sem þeir glíma við líkam-
legar, félagslegar eða andlegar
hindranir, eigi möguleika á
sjálfstæðu lífi, með reisn og fái til
þess aðstoð ef þarf.
Ég velti þessu hér upp af því að
nú veit ég að öryrkjar og fatlað
fólk njóta ekki sömu mann-
réttinda og aðrir. Nú hef ég
reynt á eigin skinni, aðgengis-
leysi, skilningsleysi, og skort á
skynsemi þeirra sem með vald
fara. Ég hef fengið klapp á
vangann og vera kölluð aum-
inginn, en ég hef líka notið
skilnings og séð aðgengismálum
kippt í lag. Hugarfar gagnvart
málefnum fatlaðs fólks þarf að
breytast, fatlað fólk er hluti af
samfélaginu en ekki sér hópur
frá annarri plánetu.
Í dag sér Anna P. Þórðardóttir
fyrir endann á áratuga langri
baráttu, nú loks er að koma lyfta
við safnahúsið og þá mun Anna
loks komast á bókasafnið á
mannsæmandi hátt, en það tók
30 ár. Ég er ánægð með að þessi
framkvæmd skuli loksins vera
að hafin hér í bæ og mun ég
örugglega bregða mér á
Nýskipan í velferðarmálum
AÐSENT GRÉTA SJÖFN GUÐMUNDSDÓTTIR OG SIGURJÓN ÞÓRÐARSON SKRIFA
K-listi Skagafjarðar mun beita
sér fyrir því að verkefni verði í
auknum mæli flutt frá ríkinu
heim í hérað og fjármagn fylgi
með. Mikilvægt er að
ákvarðanir um áherslur og
skipulag þjónustu verði í
nánara samstarfi og samvinnu
við íbúa og á forsendum
sveitarfélagsins.
Breytt verkaskipting og verk-
efnaflutningur til sveitarfé-
laganna er nútímalegri skipan
og meira í ætt við það sem gerist
á Norðurlöndum. Ákvarðana-
taka er þá í höndum heima-
manna sem þekkja vel til
staðbundinna aðstæðna, þekk-
ing sem auðveldar markvissar
ákvarðanir og þar með bætta
meðferð opinbers fjár.
Núverandi ríkisstjórn Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks
boðaði eins og kunnugt er
aukna miðstýringu og
niðurskurð heilbrigðisþjón-
ustunnar í Skagafirði, í mikilli
andstöðu við Skagfirðinga.
Sveitarfélagið Skagafjörður
óskaði í kjölfarið eftir viðræðum
við velferðarráðuneytið sl. haust
um að yfirtaka rekstur Heil-
brigðisstofnunarinnar á Sauð-
árkróki. Sveitarstjórnarfull-
trúarnir Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir og Sigurjón
Þórðarson hafa þrýst mjög á
að hafnar verði framan-
greindar viðræður við
velferðarráðuneytið. Það hef-
ur einhverra hluta vegna dreg-
ist mjög á langinn hjá
heilbrigðisráðherra að koma
viðræðum á. Það skiptir afar
miklu máli að Skagfirðingar
allir sem einn, láti rödd sína
heyrast í málinu og fylgi því
eftir af krafti. Hætt er við að
pólitískur þrýstingur sem er á
ráðherra, að lenda málinu með
farsælum hætti, gufi upp eftir
komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar. Viðræður um yfirtöku
sveitarfélagsins á rekstri
Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki bjóða upp á
aukin tækifæri m.a. með
samþættingu við félagsþjón-
ustu sveitarfélagsins. Með
breyttri skipan næst fram
samlegð, bætt og markvissari
þjónusta. Mikilvægt er að
horfa til framtíðar og þróa
áfram styrkleika og sérstöðu
stofnunarinnar m.a. á sviði
endurhæfingar.
Aukin sjálfstjórn er ávísun á
framþróun Skagafjarðar,
setjum X við K í sveitar-
stjórnarkosningunum.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
og Sigurjón Þórðarson.
Sigurjón Þórðarson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.
Alsýn
Rúnar Kristjánsson
Yfir fjöll ég huga hleypi,
hressir andann morgunsvali;
mér af töfra tindum steypi
til að svífa niðr´ í dali,
til að fylgja ám að ósum
eins og silfurstrengjum ljósum,
eftir eigin vali.
Ísland það er uppi og niðri,
alls staðar í veldi sínu,
eins að finna í fjallshlíð miðri
og fullkomlega í hjarta mínu !
bókasafnið í fyrsta sinn í þá
nær 8 ár þegar það verður
opnað aftur. Ég hugsa að
afgreiðslufólkið í apótekinu hér
í bæ verði ekki minna ánægt en
ég þegar aðgengileg gangstétt
verður sett við húsið þannig að
það þurfi ekki að afgreiða mig
út í bíl lengur. Ég verð líka yfir
mig ánægð þegar aðgengi að
Húsi frítímans verður lagfært.
Þessi þrjú hús verða öllum
aðgengileg, loksins og það
aðgengi mun gagnast fleirum
en bara mér og Önnu Þórðar-
dóttur. Það mun gagnast
ófrískum konum, eldra fólki,
hjartasjúklingum, sveitarstjór-
anum, læknum, verkfræðing-
unum, byggingafulltrúum og
börnum. Við munum öll njóta
betra aðgengis.
Enn er pottur brotinn og vildi
ég gjarnan sjá t.d. bakaríið
aðgengilegt, ég vona að nýja
ölstofan í gamla apótekinu
verði aðgengileg og svo mætti
lengi telja.
Ég vildi sjá búsetuúrræði fyrir
fatlað fólk hér á svæðinu löguð,
að húsnæði sem nú stendur autt
vegna fjármagnsskorts verði
notað fyrir þá sem þess þurfa.
Að fatlaðir einstaklingar
komist í endurhæfingalaugina
og að liðveisla í formi NPA
verði efld. Er á ykkar stefnuskrá
það sama og Jón Gnarr hafði á
sinni stefnuskrá „svona
allskonar fyrir aumingja?“ Ég
beini hér spurningum að ykkur
sem eruð nú í framboði til
sveitarstjórnar:
Hvað er á stefnuskrá þíns
framboðs varðandi málefni
fatlaðs fólks?
Hvernig ætlið þið að tryggja að
málefnum fatlaðs fólks verði
betur sinnt af sveitarfélaginu en
ríkinu?
Hvað telur þitt framboð vera
brýnast að bæta hvað varðar
réttindi, þjónustu og aðra
hagsmuni fatlaðra og/eða
langveikra barna og fullorðinna?
Hvernig sér þitt framboð fyrir
sér þróun búsetuúrræða fyrir
fatlað fólk í sveitarfélaginu?
Munuð þið beita ykkur fyrir því
að lækka fasteignagjöld hjá
fötluðu fólki, öryrkjum og eldri
borgurum og breyta viðmiðunar-
upphæðum þannig að þær t.d.
miðist við fjölskyldustærð og
ríkjandi verðlag?
Munuð þið beita ykkur fyrir því
að NPA verði innleitt að fullu í
sveitarfélaginu og þrýsta á
samtök sveitarfélaga að lögfesta
NPA?