Feykir - 08.05.2014, Síða 7
17/2014 Feykir 7
Fertugur bridgeklúbbur á Króknum
Gleði og gaman við völd
Króknum, en frá upphafi
hefur verið hefð að hittast öll
fimmtudagskvöld frá fyrsta
vetrardegi til sumardagsins
fyrsta. Klúbburinn á aðild að
Bridgefélagi Skagafjarðar en
keppir þar ekki sem heild þó
að einstaka keppnismenn taki
þátt í mótum.
Karlarnir láta vel af þætti
kvennanna í þessum
félagsskap. „Við erum
þakklátir hvað þær gera vel
við okkur, það er ef til vill
þeim að þakka að við skulum
hafa haldið saman í allan
þennan tíma,“ segja þeir og
bæta við að enda séu þeir allir
miklir nautnaseggir.
Konurnar taka þó ekki þátt í
spilamennskunni en þær hafa
slegist í för með klúbbnum í
nokkrar sameiginlegar ferðir.
Hefur hópurinn m.a. farið í
eina utanlandsferð og einnig
hefur verið ferðast innanlands,
en ferðirnar vekja greinilega
upp ljúfar minningar þegar
þeirra er getið.
Þeir viðurkenna að bridge
sé mikið keppnisspil og oft sé
hart barist þó að tilgangurinn
sé fyrst og fremst sá að hafa
gaman af og leggja eitthvað
inn í gleðibankann. Góður
bridgespilari þurfti m.a. að
hafa gott sjónminni og það
megi merkja að meðan menn
geti ennþá spilað bridge þá
séu þeir skýrir í kollinum. Að
þessu er ef til vill vikið í
eftirfarandi vísu sem klúbb-
meðlimur færði öðrum
meðlimi í tilefni af
fimmtudagsafmæli hans:
Daprast sýn og förlast flest
farin að ruglast sortin.
Því er okkar þörfin mest
það er að stækka kortin.
/KSE
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum á bridgekvöldi
Þessi var tekin rétt fyrir páska.
Á Sauðárkróki starfar sex
manna bridgeklúbbur sem
hefur hist á
fimmtudagskvöldum yfir
vetrartímann og spilað saman
vikulega síðan árið 1974. Þrír
félagar hafa verið með frá
upphafi en aðrir bæst við og
verið í allmörg ár. Blaðamaður
brá sér til nágrannanna á
fimmtudagskvöldi í apríl, um
það leyti sem klúbbfélagar
voru að setjast að síðasta
veisluborði vetrarins, og fékk
að kynnast starfseminni.
Klúbbmönnum var aldeilis ekki
í kot vísað á heimili þeirra
Sævars Einarssonar og
Guðlaugar Gunnarsdóttur þar
sem menn voru um það bil að
setjast að kaffiborði þegar
blaðamann bar að garði. Fyrst
þurfti þó að ljúka spilinu og
höfðu menn á orði að þeir vissu
alltaf betur sem stæðu fyrir
aftan, en þegar fullmannað er
þurfa tveir að sitja hjá meðan
fjórir spila og þá er tilvalið að
fylgjast með því hvernig hinir
spila.
Sævar er einn af þremur sem
hafa spilað með klúbbnum frá
upphafi en hinir eru Kári
Þorsteinsson og Reynir Barðdal.
Með þeim spiluðu upphaflega
Pétur Pétursson og Ingimar
Hólm og einnig um tíma Ólafur
Ragnar Ingimarsson
skurðlæknir. Þessir þrír eru
fluttir á brott en við hafa bæst
Sigurfinnur Jónsson, Símon
Skarphéðinsson og Guðmundur
Hjálmarsson. Mannabreytingar
hafa því verið litlar gegnum
tíðina en þeir félagar telja að
klúbburinn sé jafnvel elsti
starfandi bridgeklúbburinn á
Ný Skagfirðingabók er komin út
Fagurlega
myndskreytt og
vandað verk
Ný Skagfirðingabók er komin
út og er hún efnismikil,
innbundin og fagurlega
myndskreytt. Að sögn Hjalta
Pálssonar, sem er í ritstjórn,
hefur bókin að geyma á
annað hundrað myndir og er
mikið vandað til verks. Um er
að ræða 35. hefti en útgáfan
hófst árið 1966.
„Það er dálítill róður að fá menn
til að skrifa en nú eru komnar
á milli þrjú til fjögurþúsund
blaðsíður af skagfirsku efni
í Skagfirðingabók. Þetta eru
því gríðarlega miklar heimildir
um héraðið,“ segir Hjalti um
útgáfuna. Í nýjasta ritinu eru
efnistökin fjölbreytt, bæði
gamalt efni og yngra. „Við höfum
gjarnan haft eina höfuðgrein
sem fjallar um einhvern þekktan
Skagfirðing frá síðustu öld,“
segir Hjalti en að þessu sinni eru
það endurminningar Valgerðar
Guðrúnar Sveinsdóttur frá Felli
í Sléttuhlíð, hún var læknisfrú
og bjó austur í Öxarfirði.
„Afskaplega vel skrifaðar
minningar,“ tekur hann fram.
Í bókinni er ein skemmtileg
grein sem Hjalti segist vera
sérstaklega ánægður með að fá.
„Ég var fyrir tilviljun að spjalla við
mann sem tók þátt í siglingum í
skipalestum á stríðsárunum.
Ennþá lifandi og eldsprækur
sveitadrengur úr Lýtings-
staðahreppi, Jón R. Hjálmars-
son.“ Jón skrásetti sögu sína
fyrir Hjalta en skipalest hans
varð m.a. eitt sinn fyrir árás í
stríðinu.
Hjalti segir frá áhugaverðu
viðtali sem hann tók við dr.
Jakob Benediktsson frá Fjalli í
Sæmundarhlíð. „Viðtalið er að
mestu um hans æskuuppvöxt
og dvölina í Kaupmannahöfn á
stríðsárunum. Þar hjálpaði hann
aðeins mönnum í andspyrnu-
hreyfingunni þegar hann var
að vinna hjá Konunglegu
bókhlöðunni, en þar var hægt
að fela ýmis skjöl,“ segir Hjalti.
Eftirfarandi er brot úr viðtali
Hjalta við Jakob þegar segir frá
gestaganginum á Fjalli en menn
úr Svartárdal komu gjarnan við
á leið sinni til Sauðárkróks þar
sem þeir áttu viðskipti.
„Sumir voru skrýtnir þarna, en
margt greindarfólk og þetta voru
engir hérvillingar. Einn þessara
manna var Andrés í Steinárgerði,
bróðir Kristjáns Gíslasonar
kaupmanns á Sauðárkróki,
fátækur bóndi, en kátur náungi
og stórlega lyginn og sagði
alltaf frægðarsögur af sjálfum
sér sem enginn trúði. Hann var
ágætur frásagnamaður, ekki
síst þegar hann fór að segja
frá rjúpnaveiðum sínum, sem
voru stórkostlegar. Einu sinni
sagðist hann hafa verið á ferð
uppi á fjallinu og ekki séð eina
einustu rjúpu og var komin
heim undir túngarð hjá sér og
það var farið að skyggja svo
að hann sé ekki lengur fugla í
kringum sig. Svo heyrði hann
allt í einu að rjúpurnar kurruðu
allt í kringum hann á einhverjum
tilteknum móa. „Ég vissi ekki
hvað ég átti að gera, því ég
vildi ná einhverju, svo að ég
hlóð byssuna með eins stóru
skoti og ég kom í hana og svo
stillti ég mér upp mitt í þessum
kurrandi hópi og hleypti af en
sneri mér í snarkringlu um leið.
Og það lágu fimmtíu.“ Hann
var óborganlegur maður með
sínar lygasögur. Andrés var
alltaf fátækur og ég held að
Kristján bróðir hans hafi haldið
í honum lífinu að einhverju leyti,
en Andrés hafði samt aðra
skýringu á því. „Ég hef oft étið
skít og aldrei orðið meint af, en
Stjáni bróðir hefur aldrei étið
skít og þess vegna er hann alltaf
að drepast.“
Bókin kostar kr. 5600,- og er
hægt að panta hana með því
að hringja í síma 453-6640
eða senda tölvupóst
á netfangið
saga@skagafjordur.is .
Framboðsfrestur rennur út 10. maí
Sveitastjórnarkosningar 2014
Minnt er á að frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í
viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 10. maí
2014.
Hjá Skagafirði er tekið á móti framboðslistum á skrifstofu Sveitarfélagins á
opnunartíma skrifstofunnar eða frá kl. 9:00 til 16:00 virka daga og á milli kl.
11:00 og 12:00 laugardaginn 10. maí 2014. /Fréttatilkynning