Feykir - 02.10.2014, Qupperneq 9
37/2014 9
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Laufey
NAFN: Laufey Kristín Skúladóttir.
ÁRGANGUR: 1979.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift þriggja stúlkna móðir.
BÚSETA: Sauðárkrókur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Ólafar og
Skúla á Tannstaðabakka í Vestur-Húnavatnssýslu.
STARF / NÁM: Verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði /
Cand. Merc í stjórnun nýsköpunar.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Fjölskylduferð á gamlar heimaslóðir í
Kaupmannahöfn og svo flutningar.
Hvernig nemandi varstu?
-Samviskusöm en ekkert allt of
vinnusöm.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum?
-13 hálsmenin sem komu úr
pökkunum og litla kvígan sem
fæddist í miðri veislunni. Ég fékk
að velja hvort hún fengi nafnið
Laufey eða Ferming. Ég valdi
Ferming.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór?
-Hárgreiðslukona.
Hvað hræðistu mest?
-Að eitthvað komi fyrir þá sem ég
elska mest.
Besti ilmurinn?
-Nýslegið gras.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið (hver var
uppáhaldstónlistin þín þegar þú
varst u.þ.b. 17 ára)?
-Það var hlustað sorglega mikið á
Celine Dion og Tony Braxton en
líka Alanis Morissette og Goo Goo
Dolls í bland við íslensku klassíkina
Sálina, Stjórnina og Todmobile.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí?
-Eitthvað með Sálinni.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu?
-Reyni að horfa á skandinavískar
seríur ef þær eru í boði á RÚV.
Besta bíómyndin (af hverju)?
-Það er engin ein best.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á?
-Mér finnst Annie Mist og Aníta
Hinriksdóttir mjög flottar íþrótta-
konur.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili?
-Tek til og brýt saman þvott.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu?
-Þau eru mjög mörg ;) Ætli
afmæliskökur dætranna standi
samt ekki upp úr.
Hættulegasta helgarnammið?
-Snakk og nýja hrís-buffið.
Hvernig er eggið best?
-Spælt báðum megin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu?
-Einbeitingarleysi og fljótfærni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
-Óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun?
-Komdu fram við aðra eins og þú
vilt að það sé komið fram við þig.
Hver er elsta minningin sem þú
átt?
-Ætli það sé ekki eitthvað frá fyrstu
árunum þegar við fjölskyldan
bjuggum á Selfossi.
Hvaða fræga manneskja
mundir þú helst vilja vera (og af
hverju)?
-Ég myndi vilja vera Sheryl
Sandberg af því hún er svo flott
fyrirmynd.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur (og af hverju)?
-Ég les allt of lítið og aldrei sömu
bókina tvisvar. Reyni samt alltaf
að næla mér í Arnald um jólin
og lesa, finnst hann alltaf mjög
skemmtilegur.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið?
-Nákvæmlega.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
-Á Íslandi myndi ég segja að það
hafi verið Vigdís Finnbogadóttir.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu (og af
hverju)?
-Ég myndi fara aftur á Sturlungaöld
og kanna hvernig Skagafjörður var
þá.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni?
-Skipulagt kaos.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu...
...til Seattle í Bandaríkjunum þar
sem við fjölskyldan bjuggum á því
herrans hrun-ári 2008.
Ef þú ættir að dvelja alein/n
á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér?
-Mat, vatn og eld – og fjölskylduna
mína.
Undir septembersól
Þá er komið að hausti og nokkuð
sæmilegt sumar að baki, að minnsta
kosti kartöflulega séð. Mannlífið er
alltaf jafn áhugavert og það
fornkveðna sannast sí og æ að - maður
er manns gaman.
Einn daginn í sumar mætti ég systrum
tveim á götu hér, sem báðar eru orðnar
heldri borgarar, voru þær á leið til
móður sinnar sem er að sjálfsögðu
orðin há-heldri borgari. Þegar ég kvaddi
þær eftir smáspjall varð þessi vísa til:
Ennþá mínu hjarta hlýnar
helst við gömul tryggðabönd.
Stingið frá mér – stelpur mínar,
stórri kveðju í móðurhönd!
Einn ágætur vinnufélagi tók upp á því
síðsumars að láta sér vaxa skegg heldur
mikið. Gerði ég eftirfarandi athugasemd
við það:
Kjálkaloðinn Einar er,
ugg að manni setur.
Breytnin virðist bera í sér
boð um harðan vetur!
Eftir efnahagshrunið telja margir sig
hafa séð margt sem þeim var áður hulið
og eftir umræður við einn slíkan orti ég:
Spillingin með græðgi gýs,
glöggt má sjá hvar aldan rís.
Ríkiskerfið svipað SÍS
er sérhagsmuna-paradís!
Og í beinu framhaldi og að gefnu tilefni
var áfram ort og meðal annars þetta:
Mörgu er af öryggis ástæðum lokað,
enda er hvergi að finna neitt traust.
Enn yfir skítinn er skjótlega mokað,
skyldu menn geta það endalaust?
FRÁ LESENDUM RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFAR
Og dansinn um gullkálfinn kemur fólki
til að gera margt sem það ætti sjálfsagt
ekki að gera:
Löngum við að kemba um kúlur
karlar engjast sitt á hvað.
Eins og konur kringum súlur,
kann ég ekki að meta það!
Í sumar komu sem vitað er allnokkrir
ágætir veðurdagar og á einum slíkum
varð til þessi vísa:
Grasið vex og gróður þráður
grænkar jafnt og þétt.
Bændur gæta bús sem áður,
besta landsins stétt!
Um tiltekinn mann sem stendur oft í
stórræðum orti ég eftirfarandi vísu í
sumar og held að hún sé nokkuð nærri
lagi:
Skapaður í Skaggasveit,
skarfur á við fjóra,
skelfist hvorki skítlegheit
né skiltamálið stóra!
Ekki verður á allt kosið í þessu lífi og eitt
sinn þegar minnst var á tiltekinn mann
hrökk upp úr mér eftirfarandi vísa:
Eitt er það sem alltaf fer
illa að mínu skyni,
það að Hannes Hólmsteinn er
húnvetnskur að kyni!
Og stundum verður ekki komist hjá því
að komast að eftirfarandi niðurstöðu:
Ráðamenn á réttvísi
reyna fátt að byggja.
Pólitík er prettvísi,
púra efnishyggja!
Og að síðustu:
Helst við sýn á heilbrigð rök
haldast vonir góðar.
Manndómsvilji og tryggðatök
treysta gildi þjóðar!
Rúnar Kristjánsson
Hrútavinafélagið Örvar
Opið hús
Hrútavinafélagið Örvar á
Suðurlandi leggur upp í
rútuferð á Hrútadaginn mikla
á Raufarhöfn á laugardaginn.
Stefnt er á að koma við á
höfuðstöðvum héraðanna á
leiðinni og í kvöld, 2. okt.,
verður blásið til mikillar
héraðshátíðar á Sauðárkróki, í
tilefni af 75 ára afmæli
Sigurðar Sigurðarsonar
dýralæknis á Keldum.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá félaginu er góð þátttaka í
ferðinni, sauðurinn Gorbi frá
Brúnastöðum er með í för en
hann mun setjast að á forystu-
fjársafninu á Svalbarði í Þistil-
firði. Komið verður m.a. við á
Staðarskála í Hrútafirði,
Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkróki, Hólum í Hjaltadal
þar sem rætt verður um sauð-
kindina og vitsmuni forystu-
fjárins. Margt verður gert til
skemmtunar í ferðinni og með
fólkinu í landinu en fararstjórar
verða Guðni Ágústsson, Níels
Árni Lund og Björn Ingi
Bjarnason.
Í samtali við Feyki segist
Guðni bera þá von í brjósti að
Skagfirðingar komi á Mælifell -
syngi, verði glaðastir og
skemmtilegastir eins og þeim
einum er lagið. „Þetta er opið
hús til heiðurs Sigurði, forystu-
kindinni og sauðkindinni á
Íslandi. Það er mikilvægt að þeir
sem vilja gleðjast með Sigurði og
Hrútavinum komi á Mælifell kl.
20 en dagskrá byrjar kl. 21,“
segir Guðni að endingu. /BÞ