Feykir


Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 8

Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 8
8 39/2014 Frá fortíðinni, hönd í hönd, fyrir framtíðina Húnavallaskóli tekur þátt í Comeniusarverkefni Húnavallaskóli hefur síðustu þrjú árin tekið þátt í Comeniusarverkefni, ásamt skólum í fimm öðrum lönd- um; Noregi, Spáni, Grikk- landi, Póllandi og Ítalíu. Verkefnið ber yfirskriftina „From past, hand in hand, for future“ og fjallar um það hvernig þátttakendur geta staðið saman og gert framtíðina betri. Í síðustu viku voru fulltrúar frá Noregi, Póllandi, Grikklandi og Spáni í heimsókn í Húnavallaskóla og leit Feykir við á kveðjukvöldinu, þar sem hver skóli flutti skemmtiatriði og boðið var til veislu með þjóðlegum íslenskum mat og veglegum kaffiveitingum, að sveita sið. Að sögn Sonju Suska, sem er verkefnisstjóri fyrir Húnavalla- skóla, hefur verkefnið staðið yfir í eitt ár og stendur eitt ár í viðbót. Þátttakendur eru frá áðurnefndum fimm löndum, auk Húnavallaskóla fyrir hönd Íslands. Tyrkland var með í SAMANTEKT Kristín Sigurrós Einarsdóttir fyrra en tekur ekki þátt núna. Í vetur taka 21 nemandi í Húnavallaskóla þátt í verk- efninu en það er valfag í skólanum. Búið er að heim- sækja Ítalíu og Spán og tveir kennarar foru til Tyrklands á undirbúningsfund en í vetur Magnea Rut Gunnarsdóttir, nemandi í 10. bekk „Frábært að fara til Spánar“ Magnea Rut Gunnarsdóttir nemandi í 10. bekk í Húnavallaskóla hefur verið með í verkefninu frá upphafi og ferðast til Spánar í tengslum við það. Hún segir verkefnið ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt og útskýrir fyrir blaðamanni að það gangi út á hvernig við getum staðið saman og gert framtíðina betri. „Á Spáni vorum við að fjalla um gömlu störfin og hvernig þau voru unnin en á Ítalíu var fjallað um hvaða eiginleika maður þyrfti að hafa fyrir hvert starf og hvernig maður gæti undirbúið sig fyrir draumastarfið. Hérna á Íslandi höfum við verið að fjalla um störf tengd náttúruvernd, t.d. í rafmagni eða jarðfræði. Í Noregi verður fjallað um iðju og hand- verk, að búa til vörur, markaðsetja og selja, það verður farið þangað í mars og til Grikklands í maí,“ segir Magnea. Að sögn hennar fer þátttaka nemenda í utanlandsferðunum eftir frammistöðu í verkefninu. „Það er valið eftir verkefnaskilum og árangri og hvað við leggjum á okkur til að fá að fara.“ Sjálf er Magnea búin að fara til Spánar. „Það var mjög gaman að fara þangað, við vorum að kynna landið, syngja dægurlög fyrir þau og svo lærðum við t.d. um osta- og brauðgerð hjá þeim, eins og það var í gamla daga.“ Magnea segir að verkefnið sé mjög skemmtilegt og fræðandi og snerti nánast öll fög sem kennd eru í skólanum, t.d. náttúrufræði, sögu og tungumál. Á milli heimsókna hefur hópurinn samskipti í gegnum facebook og þegar líða fer að heimsóknum fá þátttakendur að vita hverjir gista hvar og þá eru viðkomandi búin að kynnast aðeins áður en kemur að heimsóknunum. Hún segir samskiptin vera mikil og þau séu búin að kynnast hvert öðru mjög vel. stendur til að heimsækja Noreg og Grikkland. Þemað á Íslandi er: Hvernig hafa umhverfismál haft áhrift á vinnumarkaðinn? Í heimsókninni til Íslands höfðu erlendu þátttakendurnir gist á heimilum íslenskra þátttake- nda, farið á sýningu í reiðhöll- inni, gist saman í Húnavallaskóla og heimsótt Mývatn, Kröflu- stöð, Akureyri og nærliggjandi staði. Gestgjafarnir fylgdu þeim síðan áleiðis suður og var þá m.a. farið í heimsókn á Land- námssetrið í Borgarnesi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.