Feykir


Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 11

Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 11
39/2014 11 KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar getur hefur tíma til að fara í fótabað. Spakmæli vikunnar Bestu áhrif nokkurrar bókar er að hún hvetji lesandann til að gera eitthvað sjálfur. - Thomas Carlyle Sudoku Vissirðu að... ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT ... konur blikka augunum tvisvar sinnum oftar en karlar? ... á Indlandi eru meira en 200 milljón kýr? ... karlar eru sjö sinnum líklegri til að verða fyrir eldingu en konur? ... hámarkshraði fyrstu járnbrautalestarinnar var 8 km/h. ... það kemst meira af köldu vatni en heitu í svamp? FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is Hahahahaha... Í matarveislunni hvíslar mamman að syni sínum: „Hvers vegna lagðir þú engin hnífapör við diskinn hjá Jóa frænda!?“ Sonurinn segir upphátt: „Ja sko! Ég hélt að Jói þyrfti engin hnífapör. Þú sagðir að hann borðaði eins og svín!“ Krossgáta ÍRIS BJÖRG ÞÓRHALLAR- DÓTTIR, 10. BEKK -Að fá að hitta krakkana og vera með þeim og að fara út. ÁSDÍS BRYNJA JÓNSDÓTTIR, 10. BEKK -Allt búið að vera rosa skemmtilegt. Ef ég á að velja þá er það Spánarferðin og heimsóknin þeirra hingað. ARNDÍS ÞÓRUDÓTTIR, 10. BEKK -Ég er nýbyrjuð í því, þannig að það er heimsóknin núna. SÓLRÚN TINNA GRÍMSDÓTTIR, 9. BEKK -Að hitta krakkana. Þrír skotheldir réttir FORRÉTTUR Einfaldur fiskréttur 1-2 roð- og beinlaus fiskflök, skorin í þunna strimla 1 rauðlaukur, saxaður smátt rauð og græn paprika saxaðar rækjur sítrónusafi Aðferð: Einhver hvítur fiskur, eins og eitt til tvö roð- og beinlaus flök, skorin niður hálffrosin í þunna strimla. Rauðlaukur, rauð og græn paprika saxað smátt. Nokkrar rækjur og sítrónusafi sett yfir og hrært saman. Gott að útbúa nokkuð fyrir framleiðslu. Borið fram með ristuðu brauði og graflaxsósu. Graflaxsósa: 4 hlutar léttmajones, 1 hluti sætt sinnep og 1 tsk hunang hrært saman. Smá fennel og dill bætt út í. AÐALRÉTTUR1 Gæsabringur með piparostasósu 4 gæsabringur salt og pipar Aðferð: Fjögur bringustykki eru fyrir að a.m.k. fjóra. Bringurnar eru úrbeinaðar og steiktar á pönnu, í 1-2 mín. á hvorri hlið og kryddaðar með salti og pipar. Loks eru þær settar í eldfast mót og álpappír yfir í ofn á 170°C í 20 MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is Matgæðingur vikunnar er Jón Sigurjónsson í Garði í Hegra- nesi. Hann ætlar að bjóða upp á einfaldan og góðan fiskrétt í forrétt og tvær gerðir af aðalrétt, annars vegar gæsabringur með piparostasósu og grillað lambalæri. „Skothelt dæmi og engin þörf á eftirrétt eftir að borða þetta,“ segir Jón en hann skorar á Guðrúnu Soffíu Stefánsdóttur að koma næst með uppskriftir í Feyki. mín. Látið svo standa í 15 mín. áður en bringurnar eru skornar og bornar fram. AÐALRÉTTUR 2 Grillað lambalæri Lambalæri lambakrydd frá Nokk ehf. Aðferð: Lærið er úrbeinað þó ekki nauðsynlegt, kryddað með lambakryddi frá Nokk ehf. (S.5335555 - skothelt krydd). Lærið er vafið í álpappír og snúið oft á meðan það er grillað í ofninum. Hafa kjöthitamæli 58- 60°C í kjarna, látið standa í a.m.k. 15-20 mín. í hitaboxi eða leggja viskustykki yfir áður en það er borið fram. Piparostasósa: 1 piparostur ½ l rjómi kjötkraftur Aðferð: Hráefni brætt saman, passa að það brenni ekki við. Þessi sósa passar vel með báðum aðalréttunum. Salat: Spínat, rauð og gul paprika, vínber, rauðlaukur og fetaostur, skorið niður og sett í skál. Verði ykkur að góðu! Jón Sigurjónsson Jón í Garði matreiðir Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri Lumarðu á frétt? Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra GUÐRÚN TINNA RÚNARSDÓTTIR, 10. BEKK -Spánarferðin og þegar þau komu hingað. Feykir spyr... [SPURT Í HÚNAVALLA- SKÓLA, NEMENDUR Í COMENIUSARVERKEFNI 5 LANDA] Hvað hefur verið skemmtilegast í Comeniusar- verkefninu?

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.