Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 8
8 39/2014
Frá fortíðinni, hönd í
hönd, fyrir framtíðina
Húnavallaskóli tekur þátt í Comeniusarverkefni
Húnavallaskóli hefur síðustu
þrjú árin tekið þátt í
Comeniusarverkefni, ásamt
skólum í fimm öðrum lönd-
um; Noregi, Spáni, Grikk-
landi, Póllandi og Ítalíu.
Verkefnið ber yfirskriftina
„From past, hand in hand,
for future“ og fjallar um það
hvernig þátttakendur geta
staðið saman og gert
framtíðina betri. Í síðustu
viku voru fulltrúar frá Noregi,
Póllandi, Grikklandi og Spáni
í heimsókn í Húnavallaskóla
og leit Feykir við á
kveðjukvöldinu, þar sem hver
skóli flutti skemmtiatriði og
boðið var til veislu með
þjóðlegum íslenskum mat og
veglegum kaffiveitingum, að
sveita sið.
Að sögn Sonju Suska, sem er
verkefnisstjóri fyrir Húnavalla-
skóla, hefur verkefnið staðið
yfir í eitt ár og stendur eitt ár í
viðbót. Þátttakendur eru frá
áðurnefndum fimm löndum,
auk Húnavallaskóla fyrir hönd
Íslands. Tyrkland var með í
SAMANTEKT
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
fyrra en tekur ekki þátt núna.
Í vetur taka 21 nemandi í
Húnavallaskóla þátt í verk-
efninu en það er valfag í
skólanum. Búið er að heim-
sækja Ítalíu og Spán og tveir
kennarar foru til Tyrklands á
undirbúningsfund en í vetur
Magnea Rut Gunnarsdóttir, nemandi í 10. bekk
„Frábært að fara til Spánar“
Magnea Rut Gunnarsdóttir nemandi í 10. bekk í
Húnavallaskóla hefur verið með í verkefninu frá upphafi og
ferðast til Spánar í tengslum við það. Hún segir verkefnið
ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt og útskýrir fyrir
blaðamanni að það gangi út á hvernig við getum staðið
saman og gert framtíðina betri.
„Á Spáni vorum við að fjalla um gömlu störfin og hvernig þau voru
unnin en á Ítalíu var fjallað um hvaða eiginleika maður þyrfti að hafa
fyrir hvert starf og hvernig maður gæti undirbúið sig fyrir draumastarfið.
Hérna á Íslandi höfum við verið að fjalla um störf tengd náttúruvernd,
t.d. í rafmagni eða jarðfræði. Í Noregi verður fjallað um iðju og hand-
verk, að búa til vörur, markaðsetja og selja, það verður farið þangað í
mars og til Grikklands í maí,“ segir Magnea. Að sögn hennar fer
þátttaka nemenda í utanlandsferðunum eftir frammistöðu í verkefninu.
„Það er valið eftir verkefnaskilum og árangri og hvað við leggjum á
okkur til að fá að fara.“ Sjálf er Magnea búin að fara til Spánar. „Það
var mjög gaman að fara þangað, við vorum að kynna landið, syngja
dægurlög fyrir þau og svo lærðum við t.d. um osta- og brauðgerð hjá
þeim, eins og það var í gamla daga.“
Magnea segir að verkefnið sé mjög skemmtilegt og fræðandi og
snerti nánast öll fög sem kennd eru í skólanum, t.d. náttúrufræði, sögu
og tungumál. Á milli heimsókna hefur hópurinn samskipti í gegnum
facebook og þegar líða fer að heimsóknum fá þátttakendur að vita
hverjir gista hvar og þá eru viðkomandi búin að kynnast aðeins áður
en kemur að heimsóknunum. Hún segir samskiptin vera mikil og þau
séu búin að kynnast hvert öðru mjög vel.
stendur til að heimsækja Noreg
og Grikkland. Þemað á Íslandi
er: Hvernig hafa umhverfismál
haft áhrift á vinnumarkaðinn?
Í heimsókninni til Íslands höfðu
erlendu þátttakendurnir gist á
heimilum íslenskra þátttake-
nda, farið á sýningu í reiðhöll-
inni, gist saman í Húnavallaskóla
og heimsótt Mývatn, Kröflu-
stöð, Akureyri og nærliggjandi
staði.
Gestgjafarnir fylgdu þeim
síðan áleiðis suður og var þá
m.a. farið í heimsókn á Land-
námssetrið í Borgarnesi.