Feykir - 12.03.2015, Blaðsíða 3
10/2015 3
www.skagafjordur.is
Á Eyrarrósarlistanum
Nes listamiðstöð á Skagaströnd
Nes listamiðstöð á
Skagaströnd er á lista yfir
þau tíu verkefni sem eiga
möguleika á því að hljóta
Eyrarrósina í ár. Mikill fjöldi
umsókna um Eyrarrósina
barst hvaðanæva af landinu.
Eyrarrósin er viðurkenning
sem veitt er framúrskarandi
menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunnar. Hún beinir
sjónum að og hvetur til menn-
ingarlegrar fjölbreytni, nýsköp-
unar og uppbyggingar á sviði
menningar og lista.
Að verðlaununum standa
Byggðastofnun, Flugfélag
Íslands og Listahátíð í Reykjavík.
Þann 18. mars nk. verður til-
kynnt hvaða þrjú verkefni hljóta
tilnefningu til verðlaunanna og
afhending fer fram 4. apríl. /KSE
Hanna Rún er sú fjórða í röð
nýrra knapa í KS-Deildinni í
ár sem Feykir kynnir til leiks.
Hanna Rún er Hafnfirðingur
og nemandi á þriðja ári við
Háskólann á Hólum. Hún
er að eigin sögn ungur og
metnaðarfullur knapi og hefur
tröllatrú á 40 ára gömlum
reiðbuxum af ömmu sinni.
Hanna Rún svarar spurningum
Feykis um þátttöku sína í
keppninni.
Hvernig líst þér á KS-Deildina í
ár? Vel, ég hlakka mikið til að taka
þátt í þessari mótaröð.
Varstu sáttur við sæti þitt í
Hanna Rún Ingibergsdóttir / KS-Deildin
Keppir í reiðbuxum ömmu sinnar
( KNAPAKYNNING ) kristin@feykir.is
Hanna Rún Ingibergsdóttir. MYND: ÚR EINKASAFNI
www.skagafjordur.is
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021
Deplar í Austur Fljótum.
Landbúnaðarsvæði verður verslunar- og þjónustusvæði.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Breytingin felst í skilgreiningu á nýju verslunar- og þjónustusvæði (V-1.3) á hluta lands jarðarinnar Depla.
Breytingartillagan er til sýnis í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá og með 10. mars 2015 til 29.
apríl 2015. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www. skagafjordur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta
lagi miðvikudaginn 29. apríl 2015 annaðhvort til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins
Skagafjarðar eða á netfangið: jobygg@skagafjordur.is
Sauðárkróki 9. mars 2015
Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúi
Tillaga að deiliskipulagi Gönguskarðs-
árvirkjunar, aðrennslislagnar
og nýs stöðvarhúss
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 25.02.2015 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi Gönguskarðsárvirkjunar, aðrennslislagnar og nýs stöðvarhúss skv. 1. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og umhverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga
um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Deiliskipulagstillagan felur í sér gerð deiliskipulags þar sem fyrirhugað er að endurbyggja
Gönguskarðsárvirkjun í Skagafirði, ofan við Sauðárkrók, þ.m.t. lagningu niðurgrafinnar aðrennslislagnar,
byggingu stöðvarhúss og þrýstivatnsturns. Skipulagssvæðið er um 5 hektarar að stærð og liggur sunnan
Gönguskarðsár innan þéttbýlismarka Sauðárkróks. Nýtt stöðvarhús verður staðsett við syðri bakka
Gönguskarðsár, við gamla brú tæpum kílómetra ofan við ósa hennar þar sem hún rennur í sjó. Tillagan
ásamt umhverfisskýrslu liggur frami í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 10. mars 2015 til 29.
apríl 2015 og á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www. skagafjordur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 29. apríl
2015 annaðhvort til skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar eða
á netfangið: jobygg@skagafjordur.is
Sauðárkróki 9. mars 2015
Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúi
fjórganginum? -Já, þetta var mjög
gaman og Nótt stóð sig vel.
Hvaða hrossum teflir þú fram í
vetur? -Hestakosturinn byggist á
fjórum hrossum, klárhryssunni Nótt
frá Sörlatungu, alhliðahryssunni Hlíf
frá Skák, töltara sem heitir Hlýr frá
Breiðabólstað og ekki má gleyma
Birtu frá Suður-Nýjabæ sem er góður
vekringur.
Hverjir eru aðalkostir þeirra? -Mikið
tamin og góð hross sem ég þekki orðið
frekar vel.
Ætlar þú eða hefur þú tekið þátt í
öðrum keppnum í vetur? -Já.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá þér
fyrir keppni? -Keppi alltaf í hvítu
reiðbuxunum af ömmu minni sem eru
einungis 40 ára gamlar.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri? -Óska öllum góðs gengis
í vetur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegar mömmu okkar,
dóttur, systur, mágkonu og frænku
Elísabetar Sóleyjar Stefánsdóttur
Flúðarseli 74 Reykjavík
Kærar þakkir sendum við einstaklingum, félagasamtökum,
klúbbum og öllum þeim sem hafa styrkt dætur hennar með
peningagjöfum og öðrum ómetanlegum stuðningi.
Harpa Katrín, Sólveig Birna og Rebekka Hólm Halldórsdætur
Ólína Rögnvaldsdóttir Stefán Skarphéðinsson
Rögnvaldur og Anna Sólveig
Ólafur Björn og Helga
Skarphéðinn og Hildur og systkinabörn
Þ A K K I R