Feykir - 09.07.2015, Side 2
2 26/2015
Málið sem brennur á brjósti landsmanna um þessar mundir er
undirritun viljayfirlýsingar við kínverskt fyrirtæki um
uppbyggingu álvers á Hafursstöðum í Skagabyggð. Ófáir hafa
tjáð skoðanir sínar á þessari
framkvæmd, sumir eru alfarið á
móti henni á meðan aðrir fagna og
segja: „Loksins verður uppbygg-
ing á Norðurlandi vestra.“
Þó finnst mér hljóðið í mönnum
oft vera á þann veg að álver sé skárra
en ekki neitt, eitthvað verði að gerast
til að sporna gegn þeirri gengdar-
lausu fólksfækkun sem á sér stað á
svæðinu. Verandi íbúi svæðisins skil
ég þá afstöðu vel, eitthvað þarf að
gerast. Hvort álver sé besti kosturinn
skal ég ekki segja en líkt og Sóley
Björk Stefánsdóttir bendir á, í pistli á
Stundin.is, þá er þetta margumtalaða „eitthvað annað“ sem and-
stæðingar framkvæmdanna benda á ekki vænlegt til að fá sömu
ívilnanir eða bankalán og stóriðja. Ég kýs að skoða allar hliðar
málsins áður en ég geri upp hug minn.
Að sama skapi er verðugt að velta fyrir sér aðkomu kínversku
fjárfestanna og hvaða þýðingu það hefur í stóra samhenginu. Eins og
kunnugt er hefur Alþýðuveldið Kína stóraukið ítök sín og viðskipti
víða um heim og beinist áhuginn í auknu mæli að norðurslóðum og
hefur þeim áhuga gjarnan verið mætt með tortryggni.
Í áhugaverðri grein á Konfusius.is veltir Páll Þór Sigurjónsson
upp spurningunni hvort aukin nærvera Kína muni verða til þess að
grafa undan hagsmunum Íslands, t.d. með því að ógna stöðugleika á
svæðinu, eða leiða til aukinna tækifæra fyrir landið. Höfundur er
með B.A.-gráðu í kínverskum fræðum og er búsettur í Peking. Í
greininni kemur m.a. fram að talið er að helstu hagsmunir Kína á
norðurslóðum séu að styrkja getu Kína til að bregðast við þeim
áhrifum sem loftslagsbreytingar munu hafa á matvælaframleiðslu
og öfgafullt veðurfar í Kína, tryggja aðgang að nýjum siglingaleiðum
um Norður-Íshafið og loks auka aðgang Kína að náttúruauðlindum
á norðurslóðum. Í máli Páls kemur jafnframt fram að Kína sé mesti
orkunotandi heims og að einn af hornsteinum þjóðaröryggis
Kínverja sé aðgengi orkufreks iðnaðar Kínverja að orkuauðlindum
heimsins og er gert ráð fyrir að um og yfir helmingur olíu- og
jarðgasnotkunar Kína verði aðflutt fyrir árið 2030. Kínversk stjórn-
völd hafa brugðist við með því að auka fjölbreytni í orkunotkun og
hafa haldið úti öflugri útrásarstefnu í náttúruauðlinda- og orku-
málum. Jafnframt hafa kínversk ríkisorkufyrirtæki ráðist í gríðar-
legar erlendar fjárfestingar víðs vegar um heiminn á síðustu árum og
höfum við Íslendingar orðið varir við þennan aukna áhuga. Páll
bendir á að opnun siglingaleiðar um norðurskautið gæti orðið
aðalæð framtíðarsiglinga Kínverja. Vegna þessa skapast þörf á
umskipunarhöfn á Íslandi, gæti það verið hugmynd að tækifæris-
sóknum fyrir Norðurland vestra?
Það er skoðun Páls að ekkert bendi til að hagsmunum Íslands
stafi mikil ógn af nærveru drekans úr austri og að aukin umsvif Kína
á Norðurslóðum séu óumflýjanleg og gæti jafnvel verið okkur
hagfelld sé haldið rétt á spöðunum. Þessi tortryggni er hins vegar
ekki úr lausu lofti gripin og full ástæða til að fara varlega í þessum
málum. Hvernig svo sem fer með álver á Hafursstöðum verður
spennandi að fylgjast með þróun þessara mála á komandi misserum.
Berglind Þorsteinsdóttir,
ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Tækifæri eða
ógn úr austri?
Mikið um dýrðir í Blönduhlíðinni
Listaflóð á vígaslóð
Menningarhátíðin Listaflóð á
vígaslóð verður haldin dagana
10.-11. júlí með fjölbreyttri
dagskrá. Kvöldvaka verður í
Kakalaskála föstudagskvöldið
10. júlí kl. 20:30. Þar verður
m.a. sýnd heimildarmyndin
Orgelleikarinn: Maður í máli
- Dagur í myndum eftir Ingþór
Bergmann Þórhallsson.
Heimildarmyndin er um
tónlistarmanninn Svein Arnar
Sæmundsson frá Syðstu-Grund.
Árið 2013 stóð hann á fertugu,
átti 10 ára starfsafmæli við
Akraneskirkju og var að ljúka
sínu skeiði sem bæjarlistamaður
Akraness. Einn bjartan dag í maí
þetta ár, hélt hann upp á
tímamótin og bauð bæjarbúum
Akraness og velunnurum til
sannkallaðrar tónlistarveislu. Í
þessari stuttu heimildarmynd er
Arnari fylgt eftir þennan dag.
Einnig mun Eyþór Árnason frá
Uppsölum lesa upp úr ljóða-
bókum sínum og tónlistar-
dagskrá verður í boði ásamt
léttum veitingum. Þá verður
vinnustofa Maríu opin en þess
má geta að þar verður jafnframt
haldinn markaður frá kl. 14-18
alla helgina.
Laugardaginn 11. júlí verður
síðan mikið um dýrðir. Kl. 12:30
verður boðið upp á gönguferð
með Sigurði Hansen á
Haugsnesgrundir og kl. 14 hefst
síðan fjölskylduhátíðin „Sunnan
við garðinn hennar mömmu“ á
Syðstu-Grund. Fjölbreytt dag-
skrá hefst með tónleikum Jóns
Þorsteins Reynissonar harmó-
nikuleikara í stofunni á Grund.
Sæbjörg Freyja Gísladóttir
verður með ljósmyndasýningu
sína „Alvöru karlmenn“ og
boðið verður upp leiki fyrir börn
og fullorðna, lifandi tónlist,
handverk og hugverk. Auk þess
verður flóamarkaður þar sem
ýmislegt forvitnilegt verður
hægt að fá. Að sjálfsögðu verður
Lilla á Grund klár með
kaffiveitingar og ef veðurguðir
leyfa, líkur dagskránni með
harmónikudansleik. Áætluð
dagskrárlok eru um kl. 17.
Aðstandendur listaflóðsins
bjóða alla hjartanlega velkomna
á viðburðina. /BÞ
Kínverjar fjármagna álver
Fyrirhugaðar álversframkvæmdir Í A-Hún.
Kínverskt fyrirtæki ætlar að reisa álver á
Hafurstöðum í Skagabyggð en viljayfirlýsing um
fjármögnun verkefnisins var undirrituð í
Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í
Reykjavík þann 1. júlí.
„Þetta er mikilvægur áfangi í undirbúnings-
ferlinu. Klappir og sveitarfélögin á Norðurlandi
vestra fagna því að jafn öflugur og traustur aðili og
NFC skuldbindi sig til þátttöku í þróun verkefnis-
ins. Framboð á nauðsynlegri orku mun ráða því
hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að
Hafursstöðum,“ segir Ingvar U. Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Klappa Development. Áætlað er að
120.000 tonna álverið rísi á fyrirhuguðu iðnaðar-
svæði við Hafursstaði, rétt sunnan við Skagaströnd.
Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í
álverinu og allt að 800 tímabundnum störfum á
byggingartíma.
Í fréttatilkynningu segir að Klappir og China
Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering
and Construction (NFC) vinni um þessar mundir í
sameiningu að hagkvæmniathugun vegna bygg-
ingar og reksturs fyrirhugaðs álvers. Heildar-
kostnaður verkefnisins er áætlaður rúmir 100
milljarðar króna (780 milljónir Bandaríkjadala).
Í viljayfirlýsingunni kemur fram að kínverska
samstarfsaðilanum sé falin svokölluð „alfram-
kvæmd“ (e. turnkey) verkefnisins. Samkvæmt
henni ábyrgist NFC fjármögnun a.m.k. 70%
kostnaðar við framkvæmdina og uppbyggingu
innviða í gegnum kínverska eða aðra banka, auk
þess að ábyrgjast byggingu allra mannvirkja sem og
rekstur álversins á meðan uppkeyrslu þess stendur.
Einnig er einnig á um samvinnu Klappa og NFC
um gerð samninga við þriðja aðila um forsölu
framleiðsluafurða (e. offtake) sem og um samstarf
um gerð samninga við seljendur hráefnis.
Viljayfirlýsingin byggir m.a. á samstarfssamn-
ingi á milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra
og Klappa Development, en þar hafa Sveitarfélagið
Skagafjörður og Húnaþing vestra ákveðið að starfa
með Blönduósbæ, Húnavatnshreppi, Sveitar-
félaginu Skagaströnd og Skagabyggð, sem áður
höfðu undirritað samstarfssamning við Klappir
um uppbyggingu og rekstur álvers að Hafurs-
stöðum. /BÞ
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar á milli Klappa Development ehf. og NFC í ráðherrabústaðnum í gær. Wang Hongqian, forstjóri
NFC og Ingvar Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa, takast í hendur að undirritun lokinni. Að baki þeim eru Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra og Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi. Á myndinni eru einnig fulltrúar sveitarstjórna á
Norðurlandi vestra, NFC og China Development Bank. MYNDIR: KLAPPIR EHF.