Feykir - 09.07.2015, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
26
TBL
9. júlí 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Peysuföt Bentínu ömmu eftirminnilegust
Ásta Búadóttir á Sauðárkróki
-Ég hef alltaf saumað mikið í
gegnum tíðina. Hér á árum áður
saumaði ég m.a. fyrir son minn
Apaskinns galla, honum ekki
alltaf til mikillar gleði og minnir
hann mig á gallana enn þann
dag í dag.
Ég hef mikinn áhuga á öllu
handverki, eins og til dæmis að
sauma og prjóna og núna er ég með
Neon lopapeysu á prjónunum. Það
má eiginlega segja að allt handverk,
hvaða nafni sem það nefnist, sé mér
ofarlega í huga og framkvæmi ég
margt af því. Ég hef líka mikinn
áhuga á að vinna myndir í
Photoshop, bý til, það sem ég kalla,
minningar og svo að vinna með
mósaík.
Það sem stendur uppúr er þegar
ég fékk peysufötin hennar Bentínu
ömmu í arf, gerði þau upp og
saumaði í leiðinni barnaupphlut.
Það var alveg ótrúlega gaman,
kennarinn Helga Sigurbjörnsdóttir,
gerði það líka svo ógleymanlegt.
Ég skora á Lilju Gunnlaugsdóttur,
sem er alveg mögnuð og er að gera
flotta hluti.
Sauðárkrókur
Skoða staðsetningu á
sjálfsafgreiðsludæluMosaik.
HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN berglind@feykir.is
Peysufötin hennar Bentínu og barna upphluturinn góði.
Ásta hefur gaman af því að prjóna. Minningar með Photoshop.
Skeljungur hf. hefur hug á að setja upp sjálfsaf-
greiðsludælu fyrir smærri báta á Sauðárkrókshöfn.
Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Svf. Skaga-
fjarðar hefur verið falið að koma með tillögu að
staðsetningu í samráði við hafnarstarfsmenn og
Skeljung hf. Þetta kemur fram í fundargerð
Umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar.
Í fundargerðinni segir að tekinn var fyrir tölvupóstur
frá Skeljungi hf. þar sem fram kemur að fyrirtækið hafi
hug á að setja upp sjálfsafgreiðsludælu fyrir smærri báta á
Sauðárkrókshöfn. Spurt er um staðsetningu á slíkri dælu
og minnst á vestur enda suðurbryggju sem mögulega
staðsetningu.
Sem fyrr segir hefur sviðsstjóra verið falið að koma
með tillögu að staðsetningu. /BÞ