Feykir - 13.08.2015, Blaðsíða 1
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Eva Dögg Pálsdóttir er
íþróttagarpur Feykis
Keppir með
sama hálsmenið
BLS. 5
María Björk Ingvadóttir
framkvæmdastjóri N4 í
opnuviðtali Feykis
„Síðustu tvö
ár hafa verið
ótrúleg“
3. flokkur kvenna frá
Tindastóli/Hvöt fóru til
Svíþjóðar
Ógleymanleg ferð
á Gothic Cup
30
TBL
13. ágúst 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Fangaðu sumarið
Þú færð réttu
Canon græjuna í
Græjubúð
Tengils
Landsmót hestamanna verður haldið
dagana 27. júní til 3. júlí 2016 á
Hólum í Hjaltadal. Framkvæmdir við
mótssvæðið eru hafnar og unnið er
hörðum höndum að því að aðstæður
verði orðnar sem bestar þegar mótið
hefst.
Þrjú fyrirtæki sjá um framkvæmd-
irnar, en það eru Vélaþjónustan Messu-
holti ehf, Norðurtak og Króksverk. Að
sögn Jóns Árnasonar verktaka felast þær
framkvæmdir sem framundan eru fyrst
og fremst í því að útbúa og laga reiðvelli
og ýmislegt annað tengt umgjörð
mótsins. Þegar hefur verið hafist handa
við að búa til áhorfendasvæði en þau
verða fjögur; eitt aðalsvæði sem verður
stærst og svo þrjú minni.
Fyrsta skref er að keyra möl í svæðin,
síðan verður sett mold yfir, og endað á
því að þökuleggja. Þegar þeim fram-
kvæmdum er lokið verður farið í að
Framkvæmdir hafnar á Hólum
Unnið við gerð áhorfendasvæðis við aðal keppnisvöllinn á Hólum. Myndin er tekin sl. föstudag í rigningunni á Hólum. MYND: ÓAB
Undirbúningur fyrir Landsmót hestamanna 2016
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
byggja veg um tjaldstæði Landsmótsins.
Heima á Hólum eru nú þegar þrjár
reiðhallir, mikill fjöldi hesthúsplássa,
töluvert gistirými og Sögusetur íslenska
hestsins, sem styður við fyrirhugað
Landsmótshald. Þess má að lokum geta,
að á næsta ári verða liðin 50 ár frá því
Landsmót hestamanna var síðast haldið
á Hólum í Hjaltadal, árið 1966.
Miðasala á Landsmót er hafin
Eins og áður hefur komið fram er for-
sala miða á Landsmótið á Hólum 2016
hafin og hægt er að kaupa miða á tix.is,
en hagstæðast er að kaupa miða á mótið
í gegnum forsölu.
Lægstu verðin verða í boði til næstu
áramóta en hækka eftir það og dýrast
verður að kaupa miða í hliðinu á mótinu
sjálfu. Miðaverð í forsölu hefur lækkað
frá síðasta Landsmóti og börn undir 14
ára aldri þurfa ekki að greiða aðgangs-
eyri.
Með þessu vilja aðstandendur móts-
ins leggja áherslu á að Landsmót hesta-
manna sé fjölskylduskemmtun, og fjöl-
margt verður gert til að skapa afþreyingu
fyrir alla fjölskylduna. /ÞKÞ
Willkommen auf der neuen
Anlage des Landsmots in Hólar
Das Landsmót kehrt nach 50 Jahren zurück Hólar, dem Zuhause
des Islandpferdes. Die Abteilung Pferdewissenschaften des Hólar
Universitätscolleges bietet eine professionelle Ausbildung im Züchten
und Trainieren von Islandpferde als auch in der Reitlehre.
Informationen zu Übernachtungsmöglichkeiten sowie zur Anfahrt finden Sie unter:
www.northwestadventures.is oder unter: www.visitskagafjordur.is
Für weitere Informationen sehen Sie auch: www.landsmot.is
oder besuchen Sie uns auf Facebook.
ný
pr
en
t e
hf
/
0
72
01
5
Teikning sem gefur hugmynd að því hvernig
keppnissvæðið á Hólum kemur til með að líta út
næsta sumar. MYND: NÝPRENT ehf.