Feykir - 13.08.2015, Síða 4
4 30/2015
Körfubolti : 1. deild kvenna
Dagana 2.-8. ágúst var rúmum 100 tonnum landað á Skagaströnd, þar af landaði Óli á Stað
rúmum 30 tonnum. Þá var landað tæpum tíu tonnum á Hofsósi, tæpum þremur tonnum á
Hvammstanga og rúmum tólf tonnum á Sauðárkróki. Alls gera þetta um 125 tonn á Norðurlandi
vestra. /BÞ
Aflatölur 2.–8. ágúst 2015
Rúmum 100 tonnum landað á Skagaströnd
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 2.552
Alls á Hvammstanga 2.552
SKAGASTRÖND
Addi afi GK - 97 Landb. Lína 9.140
Guðbjörg GK - 666 Landb. Lína 6.220
Muggur HU - 57 Landb. Lína 18.742
Óli á Stað GK - 99 Landb. Lína 30.709
Hansi MB - 1 Handfæri 3.631
Eydís HU - 344 Handfæri 2.188
Magnús HU - 23 Handfæri 4.323
Garpur HU - 58 Handfæri 1.116
Smári HU - 7 Handfæri 1.186
Fjöður HU - 90 Handfæri 648
Hafdís HU - 85 Handfæri 729
Bogga í Vík HU - 6 Handfæri 1.236
Sæunn HU - 30 Handfæri 1.200
Húni HU - 62 Handfæri 1.057
Stefanía HU - 136 Handfæri 1.660
Sæborg HU - 80 Handfæri 1.098
Nonni HU - 9 Handfæri 1.632
Auður HU - 94 Handfæri 865
Slyngur EA - 74 Handfæri 1.214
Guðrún Ragna HU - 162 Handfæri 1.064
Geiri HU - 69 Handfæri 974
Félaginn KÓ - 25 Handfæri 630
Eiður EA - 13 Handfæri 576
Ásdís HU - 24 Handfæri 120
Diddi HU - 56 Handfæri 332
Katrín GK - 266 Landb. Lína 2.475
Guðmundur á Hópi HU - 203 Landb. Lína 3.131
Sveinbjörg HU - 49 Handfæri 504
Jenný HU - 36 Handfæri 652
Gyðjan EA - 44 Handfæri 718
Steini GK - 34 Handfæri 691
Alls á Skagaströnd 100.461
HOFSÓS
Þorgrímur SK - 27 Handfæri 1.525
Ásmundur SK - 123 Landb. Lína 3.343
Hafbjörg SK - 58 Handfæri 1.239
Álborg SK - 88 Handfæri 1.394
Skáley SK - 32 Handfæri 1.499
Von SK - 21 Handfæri 857
Alls á Hofsósi 9.857
SAUÐÁRKRÓKUR
Vinur SK - 22 Handfæri 1.608
Már SK - 90 Handfæri 932
Badda SK - 113 Handfæri 972
Hafey SK - 10 Handfæri 953
Nona SK - 141 Handfæri 954
Kristín SK - 77 Handfæri 1.160
Þytur SK - 18 Handfæri 556
Fannar SK - 11 Landb. Lína 2.855
Maró SK - 33 Handfæri 782
Óskar SK - 13 Handfæri 703
Helga Guðmunds. SK - 23 Handfæri 820
Alls á Sauðárkróki 12.295
Málfar og handrit í Skagafirði
Málþing í Kakalaskála í Blönduhlíð
Undanfarin tvö ár hafa verið
haldin málþing um Sturlungu í
Kakalaskála í Skagafirði. Að
þingunum hefur einkum
staðið félagsskapurinn „Á
Sturlungaslóð“ en fyrirlesarar
hafa verið bæði úr hópi
fræðimanna við Háskóla
Íslands og heimamanna. Á
fyrra þinginu var fjallað um
ýmsa þætti Sturlungu frá
sagnfræðilegu og bókmennta-
fræðilegu sjónarmiði en á því
seinna var sérstaklega rætt
um konur í Sturlungu. Nú er
því mál til komið að taka fyrir
málfar og handrit í Skagafirði
og víðar, en jafnframt verður
sjónarhornið víkkað og ein-
skorðast ekki við Sturlungu.
Málþingið verður að þessu sinni
haldið laugardaginn 29. ágúst og
hefst kl. 14. Að því standa
Kakalaskáli, Málvísindastofnun
Háskóla Íslands, Stofnun Árna
Magnússonar og heimamenn.
Eftirtalin erindi verða flutt:
Guðrún Þórhallsdóttir dósent:
Heyr, himna smiður,
þá og nú
Sálmurinn „Heyr, himna smiður,“
er líklega sá skagfirski forntexti
sem oftast er fluttur hin síðari ár,
eftir að Þorkell Sigurbjörnsson
samdi við hann lag sem oft er
sungið í kirkju. Í fyrirlestrinum
verður fjallað um sálminn sem
heimild um íslenskt mál á dögum
höfundarins, Kolbeins Tumason-
ar, og vöngum velt yfir því hvort
skáldið sneri sér við í gröfinni ef
það heyrði sálminn sunginn núna.
Haraldur Bernharðsson dósent:
Mál og mállýskur
á fjórtándu öld
Rætt verður um nokkrar mál-
breytingar sem áttu sér stað í
íslensku á fjórtándu öld og
útbreiðslu þeirra. Ekki er líklegt
að þessar breytingar hafi breiðst
út um land allt í einni svipan og
því hefur eflaust verið einhver
mállýskumunur milli héraða.
Sagt verður frá útbreiðslu valinna
málbreytinga í þremur hópum
handrita sem skrifuð voru á
þremur ólíkum stöðum um
miðja fjórtándu öld. Töluðu
menn öðruvísi við Breiðafjörðinn
en á Þingeyrum og í Eyjafirði?
Svanhildur Óskarsdóttir
rannsóknardósent:
Akramenn, Reynistaður
og Gottskálk í Glaumbæ
Sum handrit líkjast meira
bókasafni en stakri bók og gefa
góða hugmynd um áhugamál og
þarfir þeirra sem skrifuðu eða
létu skrifa. Í Skagafirði hafa
löngum starfað öflugir skrifarar
og fróðleiksfúsir. Í erindinu
verður fyrst hugað að bókagerð í
kringum Akramenn á 14. öld en
síðan vikið að tveimur afar
hnýsilegum handritum með
fjölbreytilegu efni: Reynistaðar-
bók, sem skrifuð var á ofanverðri
14. öld, og Sópuði síra Gottskálks
Jónssonar í Glaumbæ (um 1524–
1590) sem hann safnaði til
meiripart ævi sinnar.
Eiríkur Rögnvaldsson prófessor:
Sturlunga og
Djúpdæla saga
Stefán Jónsson á Höskuldsstöðum
skrifaði Djúpdæla sögu, ættar-
sögu Djúpadalsættarinnar, á
þriðja áratug 20. aldar, en sagan
segir frá fólki og atburðum á 18.
og 19. öld. Við lestur sögunnar
vekur athygli að stíll og setn-
ingagerð virðist í fljótu bragði
nauðalíkt miðaldatextum eins og
t.d. Sturlungu. Í erindinu verður
skoðað að hvaða marki setn-
ingagerð fornmálsins birtist í
Djúpdæla sögu og hvað hefur
breyst.
Málþingsstjóri verður Guð-
rún Ingólfsdóttir bókmennta-
fræðingur.
Allir eru velkomnir og þátt-
tökugjald er ekkert. /Fréttatilk.
Mannonen til aðstoðar
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Eins og Feykir greindi frá fyrr í
sumar þá réð körfuknattleiks-
deild Tindastóls, Pieti Poikola,
þjálfara danska landsliðsins,
sem þjálfara liðsins fyrir
komandi tímabil. Nú hefur
verið gengið frá ráðningu
aðstoðarþjálfara en það er
Harri Mannonen sem hefur
verið aðstoðarþjálfari Poikola
hjá danska landsliðinu.
Mannonen er sprenglærður
þjálfari með mikla og góða
reynslu af þjálfun í Finnlandi.
Reynsluboltinn Kári Marísson
mun því víkja sem aðstoðar-
þjálfari meistaraflokks eftir
frábært og óeigingjarnt starf
fyrir félagið. Stjórn körfuknatt-
leiksdeildarinnar hefur fullan
hug á því að nýta krafta Kára í
önnur verkefni innan félagsins.
„Það eru fáir eða engir sem eru
betri undir stýri í öllum veðrum
en Kári,“ segir Stefán Jónsson
formaður Kkd. Tindastóls. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
Darren Townes
til liðs við Stólana
Lið Tindastóls styrkir sig
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls hefur gengið frá
ráðningu á bandarískum
leikmanni fyrir komandi
tímabil í körfunni. Um er að
ræða Darren Townes sem er
framherji sem leikið hefur
víða í Evrópu og þar á meðal
í Finnlandi, Portúgal og
Írlandi.
Townes er fæddur 1986 og
er 2,02 m á hæð. Hann er
þrususterkur alhliða leikmaður
sem þjálfari Tindastóls, Pieti
Poikola, þekkir vel til.
Þá hefur lið Tindastóls
tryggt sér krafta Darrel Flake
áfram, sem og Darrel Lewis, og
því ljóst að liðið verður ógnar-
sterkt með þessa reynslubolta
innan sinna raða.
Á dögunum skrifaði síðan
Króksarinn Pálmi Geir Jónsson
undir samkomulag um að leika
með liði Tindastóls næstu þrjú
árin. Á síðustu leiktíð lék Pálmi
með liði Breiðabliks og skipti
svo yfir í úrvaldsdeidarlið ÍR
áður en leikmannagluggin
lokaði eftir áramót. /ÓAB og ÞKÞ
Darren Townes. MYND: AF FACEBOOK
Tindastóll fer af stað með
unglingaflokk kvenna
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Stjórn Tindastóls tók þá
ákvörðun í vor að tefla ekki
fram liði í meistaraflokki
kvenna í körfubolta nk. vetur.
Í staðinn var ákveðið að fara
af stað með unglingaflokk
kvenna (18-20 ára) ásamt því
að halda áfram með
stúlknaflokk.
Gengið hefur verið frá því að
Harri Mannonen, aðstoðarþjálf-
ari mfl. karla, sjái um þjálfun
bæði unglinga- og stúlknaflokks
en Erna Rut Kristjánsdóttir
verður honum til aðstoðar.
Talsverð umræða hefur verið
á Króknum um framtíð meist-
araflokks kvenna og sumir
ósáttir við að hann verði lagður
niður. Að mati stjórnar er eðli-
legast að fara af stað með
unglingaflokk þar sem mfl.
hópurinn síðasta vetur var að
langmestu leiti skipaður stúlkum
undir tvítugsaldri sem oftar en
ekki voru að spila gegn mun
eldri og sterkari leikmönnum.
Einnig telur stjórnin það best
að þær spili við jafnaldra sína í
unglingaflokki og telja það meiri
áskorun fyrir stelpurnar en að
spila í 1. deild kvenna.
Stjórn Kkd. Tindastóls hefur
því ákveðið að hlúa betur að
stúlkunum og leggja metnað í
starf yngri flokka, áður en haldið
verður aftur af stað með meist-
araflokk kvenna. /ÓAB