Feykir - 17.03.2016, Side 1
BLS. 6
BLS. 8
Þrjár ferðaþjónustukonur í
Lýdó sameina krafta sína
Verkefninu Boðið
á býli hleypt af
stokkunum
BLS. 7
Hörður Ingimarsson skrifar
hugleiðingu um ljósmynd
Þorsteins Jósepssonar
Ullarþvottur
í Sauðá
Viðtal við Brynhildi Þórarins-
dóttur frá Frostastöðum
„Vildi gera mynd
um þessa duldu
fordóma“
11
TBL
17 mars 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Asahláka síðustu daga og ofsarok,
einkum sl. sunnudagskvöld og
aðfararnótt mánudags, hafa valdið
margvíslegum usla á Norðurlandi
vestra. Stærst hefur tjónið þó líklega
orðið hjá Steypustöð Skagafjarðar, þar
sem um þrír fjórðu af þakplötum fuku
af húsi fyrirtækisins við Skarðseyri á
Sauðárkróki.
Að sögn Ásmundar Pálmasonar fram-
kvæmdastjóra Steypustöðvarinnar hleyp-
ur tjónið á milljónum og fyrirtækið er
ekki tryggt fyrir foktjóni sem þessu. Auk
tjóna á húsnæðinu fuku þakplötur á bíla
og tæki og olli það einnig stórskemmd-
um. Búið er að gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir frekari vatnsleka inn í
húsið en fyrir liggur að skipta þarf um
þakefni.
Ýmis smávægilegri foktjón urðu
annars staðar í Skagafirði, einkum á
Sauðárkróki. Björgunarsveitin Skagfirð-
ingasveit fór í nokkur útköll, að sögn
Baldurs Inga Baldurssonar formanns
sveitarinnar. Björgunarsveitin Grettir fór
einnig í fáein útköll á sunnudagskvöldið,
m.a. vegna hestakerru sem fauk af stað,
en þær aðgerðir voru minni háttar. Engin
útköll urðu á svæði 9, sem spannar báðar
Húnavatnssýslurnar, að sögn Hilmars
Frímannssonar svæðisstjóra þar.
Vindhraðinn fór yfir 70 m/sek
á Bergsstöðum
Ár hafa víða flætt yfir bakka sína og rutt
sig vegna mikillar hláku og hita. Við
Hindisvík á Vatnsnesi fór vegur í sundur
vegna leysingavatns úr fjallinu fyrir ofan
veginn. Að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar, yfirverkstjóra Vegagerðarinnar á
Hvammstanga, barst tilkynning um þetta
á mánudagsmorgun en búið var að laga
veginn aftur seinnipart dags.
Sem dæmi um veðurhæðina á sunnu-
dagskvöld og aðfararnótt mánudagsins
má nefna að á Bergsstöðum í Skagafirði
var vindhraðinn um 60 til 70 m/s frá
miðnætti og fram undir klukkan þrjú um
nóttina og fór um tíma vel yfir 70 m/s, að
sögn Viðars Ágústssonar veðurathugun-
armanns þar.
Þess má einnig geta að á Nautabúi í
Skagafirði var meðalvindhraði 31 m/s um
kl. 21 á sunnudagskvöldið og vindkviður
fóru í 48 m/s. Við Stafá var meðalvindur
32 m/s um miðnætti en sló í 62 m/s og á
Þverárfjalli mældust vindkviður 39 m/s á
sama tíma. /KSE
Milljóna tjón hjá
Steypustöð Skagafjarðar
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Glæsilegt úrval á pier.is
NÝ
TILBOÐ
OG NÝJAR VÖRUR
REINA UGLUR 990,- kr./stk.
H7.5 cm
Um þrírfjórðu af þakplötunum fuku af þaki Steypustöðvar Skagafjarðar. MYND: KSE
Asahláka og ofsarok valda usla á Norðurlandi vestra
35 ára