Feykir - 17.03.2016, Blaðsíða 6
6 11/2016
Ullarþvottur í Sauðá
Hugleiðing um ljósmynd Þorsteins Jósepssonar
Ullarþvottar kröfðust
undirbúnings sem hófst um
vorjafndægur. Þá var tunnu
skotið á bakvið hurð þar sem
að hún var ekki fyrir neinum
eða hún var sett í útihús
nálægt bæ. Í tunnuna var
safnað innihaldinu úr
koppunum sem fólk pissaði í
á kvöldin og á nóttunni en
koppar voru notaðir sem
næturgögn fyrir tíma
vatnsklósettanna.
Það var auðveldara að safna
mannahlandi en kúahlandi, sem
sumir notuðu með til að drýgja
vökvann. Þegar hlandið var búið
að standa í tvo mánuði var það
búið að brjóta sig, sem kalla var og
til orðinn lögur sem kallaður var
keyta, sem braut auðveldlega
niður fitu og önnur óhreinindi.
Því eldri sem keytan var því betur
þvoðist ullin. Keytan leysti fituna
betur en nokkur sápa svo ullin
varð tandurhrein. Á myndinni eru
Emma og Binni að þvo ull í
Sauðánni, sem rann austan
Árbæjar þar til farvegi árinnar var
breytt og hann fluttur í Tjarnar-
tjörnina.
Sæmdarhjónin Binni
og Emma í Árbæ
En hver voru þessi ágætu hjón
sem settu svo mikinn svip á
bæjarlífið á Króknum í meira en
hálfa öld og voru öllum kunn um
sína daga? Heiðurs- og sæmdar-
hjónin Binni og Emma í Árbæ
voru Skagfirðingar hófu samleið
sína í gamla torfbænum Árbæ á
þriðja áratug síðustu aldar. Í Árbæ
ólu Bin-ni og Emma síðan allan
sinn aldur allt til dánardægurs
þeirra beggja. Börnin fæddust í
gamla torfbænum sem stóð rétt
suðvestan við „Nýja Árbæinn“ í
suður frá núverandi fjósi. Sveinn
er elstur fæddur 1929 býr í
Keflavík syðra. Ragnheiður,
Ragga, fædd 1930 látin. Stefanía,
Ebba, fædd 1932 býr í Reykjavík.
Jóhanna, Lilla, fædd 1933 látin og
Erla fædd 1935 í „Nýja Árbænum“
látin. Binni, Brynjólfur Danívals-
son fæddur 1897 dáinn 1972 og
var sjötti í röð tíu systkina. Emma,
Emelía Lárusdóttir, var fædd 1896
dáinn 1993 og var sjötta í röð 16
systkina. Ættleggir Binna og
Emmu eru gríðarstórir og að
stórum hluta suður með sjó í
Keflavík og víða um land.
Staðarhaldarar
margslungins mannlífs
Binni og Emma réðust í það
stórvirki 1934 að kaupa mikið
timburhús byggt 1884 sem varð
að víkja af þeirri lóð þar sem
mjólkursamlagið var byggt 1935.
Mundi Gulla, Guðmundur Sig-
urðsson, annaðist verkið en
húsinu var fleytt á símastaurum
suður Aðalgötuna og um Suður-
götu, sem var þrekvirki enda tók
verkið rösklega viku. Siggi Stef.
var í hópi þeirra sem að verkinu
komu og lýsti að nokkru fyrir
skrásetjara. Húsið komst á sinn
stað og hlaut nafn gamla bæjarins
Árbæjar, síðar Suðurgata 24.
Sýsluhesthúsið sem stóð austan
Árbæjar var komið röskum
áratug fyrr. Syðsta húsið á
Króknum á þessum árum var
Nýibær næst sunnan Árbæjar,
þar bjuggu Sigurður og Ingi-
björg. Nýibær stóð vestan við
suðvesturhluta núverandi Safna-
húss en Safnahúsinu var valinn
staður fyrir miðju Nýabæjar-
lindarinnar sem á þeim tíma
þótti umdeilanleg staðsetning
á húsi. Safnahúsið stendur
langsum á gamla reiðstígnum
sem lá úr suðri inn í gamla Út-
Krókinn.
Hesthúsapallurinn (sjá
mynd) var beint neðan Árbæjar
mjög nálægt því þar sem 90
gráðu horn er á götunni við
suðvesturhorn Arion banka.
Reiðgöturnar framan úr sveitum
lágu sunnan með brekkunum
undir Nöfunum allt sunnan frá
Grænuklauf sem var áningar-
staður manna og hesta er farið
var í Krókinn, fyrir bílaöld sem
hófst ekki að marki fyrr en eftir
1940. Sýsluhesthúsið var sem
umferðarmiðstöð, þar voru
hestar settir í hús eða girðingu
litlu sunnar og neðar á
Flæðunum.
Kúnum úr Króknum var
skilað á morgnanna sunnan og
neðan við Sýsluhestshúsið og
TEXTI
Hörður Ingimarsson
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Myndin er úr safni Þorsteins Jósepssonar tekin til
suðausturs. Margt bendir til þess að hún sé tekin
góðviðrissumarið 1939, en mynd frá sama tíma sýnir
sjónarhorn til norðurs þar sem Tindastóll er marauður
til hæstu tinda. Emma stendur yfir hlóðarpottinum
en Binni bograr í miðju vaðinu sem bílar óku um
norðan við Hesthúspallinn en hann þoldi ekki nema
gangandi og ríðandi umferð. Sunnan pallsins er girðing
á hlöðnum rinda en þar settu margir á sig skautana á
vetrum en Flæðarnar voru framúrskarandi skautasvell.
Skagfirðingabrautin er ofar miðju og ekki eitt einasta
hús austan brautarinnar. Húsin númer 25, 29 og 35
risu á árunum 1947-1948.
MYND: Úr myndasafni Þorsteins Jósepssonar hjá
Þjóðminjasafni Íslands.
Binni um tvítugt
MYND: HSK.
Emma um tvítugt
MYND: HSK.