Feykir - 17.03.2016, Page 8
8 11/2016
„Vildi gera mynd um
þessa duldu fordóma“
Í lokahófi kvikmynda-
hátíðarinnar Stockfish
Film Festival, sem haldin
var á dögunum, var
tilkynnt um sigurvegara
stuttmyndakeppninnar
Sprettfiskur 2016. Var
það myndin Like it’s up to
you, eftir Brynhildi
Þórarinsdóttur, sem er
frá Frostastöðum í
Skagafirði.
Feykir sló á þráðinn til
Brynhildar, sem búsett er í
Svíþjóð, skömmu eftir að
verðlaunin voru kunn-gjörð.
„Þetta kom hrikalega mikið á
óvart. Þetta er ógurlega gaman
en rosalega praktískt líka.
Frábært að fá þessa myndavél,“
segir Brynhildur um verðlaunin
sem hún hlaut, en þau voru góð
Canon vél sem hægt er að nota
bæði sem myndavél og tökuvél
og hentar mjög vel til
heimildamyndagerðar, þar sem
þarf að „hlaupa um og
elta við-
fangsefnið,“ eins og hún orðar
það.
Brynhildur er sem fyrr segir
uppalin á Frostastöðum í
Blönduhlíð í Skagafirði, dóttir
Söru Regínu Valdimarsdóttur
kennara og Þórarins Magnús-
sonar bónda, sem þar búa. Hún
gekk í Akraskóla í Blönduhlíð og
síðar í Varmahlíðarskóla en flutti
suður að grunnskólagöngu
lokinni. Í dag segist hún koma í
Skagafjörðinn einu sinni á sumri
og um jólin en hún hefur verið
búsett á í Svíþjóð síðan árið 2011,
fyrst í Gautaborg en nú á Skáni.
Þar hóf hún tveggja ára nám í
kvikmyndagerð síðasta haust, í
skóla sem heitir Fridhems
folkhögskola. Er sá skóli
mikils virtur í kvik-
myndaheiminum í
Svíþjóð og auð-
velt fyrir
n e m -
e n d u r
þaðan
Brynhildur Þórarinsdóttir frá Frostastöðum er sigurvegari Sprettfisksins 2016 að fá vinnu strax að námi loknu.
Fyrst eftir að Brynhildur flutti
til Svíþjóðar var hún í leiklist og
vann við leikstjórn í kvik-
myndum og á sviði. „Ég hef alltaf
verið mjög hrifin af kvikmyndun
og það hefur blundað í mér
mikill áhugi, en ég hef aldrei gert
neitt með það, af því ég er svo
óteknísk,“ útskýrir hún. „Maður
heldur rosalega oft að maður
þurfi að kunna allt; kunna á
myndavélar, kunna á tölvu,
kunna að klippa og allt þetta. En
síðan komst ég inn í þennan
skóla sem ég er í núna. Maður
fæðist ekkert með þessa
kunnáttu, maður bara lærir,“
segir hún.
Byggði myndina
á eigin reynslu
Verðlaunamynd Brynhildar, Like
it’s up to you, fjallar um fordóma
gagnvart kynhneigð fólks. Hún
segist hafa verið meðvituð um að
sig langaði að gera mynd um
þetta, þar sem mikil þörf er slíkum
myndum. „Þetta er barátta og
prósess og maður þarf að sýna
þetta samfélag meira. Mig langaði
að gera mynd um það en vissi ekki
alveg hvað ég ætti að gera,“ segir
hún.
Hún segist fljótlega hafa
ákveðið að sig langaði að gera
einhverja mynd um fordóma.
„Það er oft þegar maður horfir á
myndir sem fjalla um fordóma
gagnvart samkynhneigðum, trans
eða bi, þá eru það alltaf rosalega
skýrir, ljótir eða hræðilegir for-
dómar, þar sem einhver er til
dæmis sleginn eða myrtur,“
útskýrir hún og heldur áfram:
„Mig langaði að gera myndir
um þessa fordóma sem að
leynast þarna úti. Fordóma
sem maður tekur varla eftir
en þeir eru þarna.“
Myndina segir Brynhildur
að miklu leyti byggða á eigin
reynslu. Segir hún hug-
myndina hafa kviknað þegar
hún var að tala við vin sinn
um dulda fordóma og þær
spurningar sem þau tvö og
annað fólk sem skilgreinir sig
ekki sem gagnkynhneigt fær.
„Það er allt í lagi að fólk sé
forvitið, velti hlutunum fyrir
sér og vilji skilja, því oftast vill
fólk styðja og sýna að því finnist
hlutirnir vera í lagi. En fólk
gleymir því samt voðalega gjarnan
að ef þetta er svona á hverjum degi
vill maður kannski ekki alltaf
þurfa að standa fyrir svörum.
Maður vill einhvern veginn ekki
alltaf þurfa að útskýra sig og
útskýra hvað maður gerir,
hverjum maður er með, hvers
vegna og hvenær,“ útskýrir hún.
Stuttmyndahátíðin Sprettfisk-
urinn var nú haldin í annað sinn.
En þó þetta sé önnur hátíðin sem
haldin er með nafninu Stockfish
Film Festival á hún sér dýpri
rætur, þar sem Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur er endurvakin undir
nýju nafni. Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur var síðast haldin árið
2001 og var upphaflega sett á
laggirnar árið 1978. Markmið
hátíðarinnar er að efla íslenska
kvikmyndamenningu á breiðum
grundvelli.
Brynhildur segist hafa séð
tilkynningu um keppnina, þar
sem auglýst var eftir stuttmyndum
í tengslum við hátíðina og öllum
var frjálst að senda inn myndir.
Síðan voru sex þeirra fjölda
mynda sem bárust valdar af
dómnefnd og sýndar á hátíðinni. Í
lok hennar var svo tilkynnt um
hver þeirra hefði sigrað í
keppninni. Brynhildur segir
viðurkenningar af þessu tagi góða
viðbót við ferilskrána og það sé
alltaf ákveðinn plús fyrir myndir
ef þær vinna til einhverra verð-
launa eða vekja athygli af ein-
hverju tagi. „Þetta gefur manni
líka sjálfstraust, að maður sé að
gera eitthvað rétt.“
Skipuleggur gleði-
göngu í Lundi
Framundan hjá Brynhildi eru
tökur fyrir skólaverkefni sem hún
vinnur að, ásamt nemanda á öðru
ári við sama skóla. „Það er svo
frábært við þennan skóla að við
erum alltaf öll að hjálpast að. Ég er
að fara að taka hljóð í þeirri
kvikmynd, sem er mjög gaman.
Það er svo spennandi í þessum
skóla að maður er ekki bara að
læra að gera eigin myndir heldur
lærir maður að fara í allar stöður;
taka hljóð, kvikmynda, vera á setti
og skipuleggja. Maður kynnist
öllum þessum ólíku pörtum í
kvikmyndagerð. Þá skilur maður
líka hvað þarf mikla skipulagningu
og sköpun og mikið af góðu fólki
til að það verði eitthvað flott úr
þessu. Það þarf að vera valinn
maður í hverju plássi.“
Að lokum segir Brynhildur að
efst í huga hennar þessa dagana sé
að skipuleggja gleðigönguna í
Lundi, sem verður í maí þetta árið.
„Það er skemmtilegt verkefni og
mikið hjartans mál, þar sem það
er mikilvægt að svona viðburðir
eigi sé stað í minni bæjum en ekki
bara í stórborgum. Það þarf að
minna alla á mikilvægi þess að
allir búi við sömu réttindi til að
elska og lifa eins og þeim þókn-
ast.“
Brynhildur.
MYND:
Hedvig Jahre
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir