Feykir - 17.03.2016, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
11
TBL
17. mars 2016 36. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Benjamín ráðinn safnvörður
Benjamín Kristinsson hefur verið ráðinn safnvörður á
Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna að
Reykjum í Hrútafirði. Starfið var auglýst laust til
umsóknar í janúarmánuði og rann umsóknarfresturinn
út 15. febrúar sl.
Í tilkynningu segir að Benjamín sé frá Dröngum á
Ströndum. Hann er með meistararéttindi í húsasmíði en
auk þess er hann grjót- og torfhleðslumaður og má finna
verk eftir hann víða um landið. Hann hefur víðtæka
þekkingu á sjó- og strandminjum og starfsháttum fyrri
tíma. Benjamín hefur mikla þekkingu á safnkosti safnsins
og hefur m.a. sinnt endurgerð hákarlaskipsins Ófeigs,
sem er í eigu Þjóðminjasafns Íslands en varðveitt er á
Byggðasafninu á Reykjum. /BÞ
Mjallhvít og dvergarnir sjö slógu í gegn
Árshátíð 10. bekkjar Árskóla í Bifröst
Leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö, í flutningi 10.
bekkjar Árskóla, var frumsýnt í Bifröst þann 9. mars
sl. Áætlað var að sýna átta sinnum en vegna vin-
sælda voru tvær aukasýningar sl. mánudag en um
800 manns hafa séð leikritið að talið er. Það var
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson sem leikstýrði.
„Mjallhvít er ofsótt af afbrýðisamri stjúpmóður
sinni, drottningunni, og leitar skjóls úti í skógi hjá sjö
dvergum. Drottningin gefur Mjallhvíti eitrað epli, en
prinsinn finnur hana og vekur hana af dvala,“ segir um
söguþráð leikritsins eftir hinu sívinsæla Grímsævintýri.
Venju samkvæmt var mikið lagt í sýningu 10.
bekkjar, mikið var æft og búningar og sviðsmynd af
glæsilegra taginu. Leikarar sem og fólkið á bakvið
tjöldin stóð sig með prýði og Anna Margrét Hörpu-
dóttir fór á kostum sem hin illa drottning. Þá höfðu
leikarar sýningarinnar heimsótt nemendur Ársala og
Árskóla dagana á undan frumsýningu. Og þegar
börnin mættu í Bifröst voru þau vel með á nótunum og
tóku undir söng Brynju Sifjar Harðardóttur, sem fór
með hlutverk Mjallhvítar. /BÞ
KJARNANUM HESTEYRI 2 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 4570
Bílaverkstæði
Verið velkomin í Kjarnann!
með Meguiar’s bílahreinsvörum
Eigum mikið úrval af
hágæða bílahreinsivörum frá Meguiar’s
MYNDIR: HJALTI ÁRNA