Feykir - 06.04.2016, Síða 1
BLS. 6-8
BLS. 8
Feykir fjallar um
söngleikinn Superstar
á Hvammstanga
Stórkostlegt
þrekvirki
BLS. 10
Ólafur B. Óskarsson frá
Víðidalstungu í Húnaþingi
vestra í Feykisviðtali
Geri núorðið bara
það sem mér þykir
skemmtilegt
Edda Borg Stefánsdóttir
svarar Tón-lystinni
„Það er alltaf allt í
boði í tónlist...“
13
TBL
6. april 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, hefur staðfest
tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs
ferðamannastaða um úthlutun vorið
2016. Að þessu sinni var sérstaklega
horft til að bæta öryggi á ferðamanna-
stöðum. Á vef Atvinnuvegaráðuneytis-
ins kemur fram að alls eru veittir
styrkir til 66 verkefna hringinn í
kringum landið, þar af eru fjögur á
Norðurlandi vestra.
Heildar upphæðin nam 647 milljónum,
þar af fara rúmar tólf milljónir til
Norðurlands vestra.
Húnavatnshreppur hlýtur kr.
2.000.000,- styrk til frekari undirbúnings
og hönnunar ferðamannaaðstöðu við
Þrístapa og Ólafslund. „Verkefnið er
mikilvægt vegna náttúruverndar á
merkum sögustað undir vaxandi álagi og
stuðlar að frekari uppbyggingu ferða-
þjónustu á svæðinu,“ segir í lista yfir
styrkveitingar. Húnaþing vestra hlýtur kr.
2.800.000,- styrk til skipulags og hönn-
unar við Kolugljúfur í Víðidal. „For-
gangsverkefni vegna náttúruverndar,
aðgengis- og öryggismála á viðkvæmu og
hættulegu svæði sem nýtur vaxandi
vinsælda hjá ferðamönnum. Hluti
verkefnis er á lista Stjórnstöðvar um
brýnar aðgerðir til að tryggja öryggi á
ferðamannastöðum,“ segir í tilkynningu.
Minjastofnun Íslands hlýtur kr.
2.841.752,- styrk til fullnaðarhönnunar
áfangastaðar við Borgarvirki í Húnaþingi.
„Mikilvægt verkefni vegna öryggis- og
aðgengismála og verndunar náttúru- og
menningarminja,“ segir í tilkynningu.
Æðarvarp ehf. hlýtur Kr. 4.560.000,- styrk
til lagfæringa á göngustíg, stækkunar
bílaplans og merkinga á selaskoðunarstað
við Illugastaði. „Nauðsynleg innviðaupp-
bygging á vinsælum selaskoðunarstað.
Stígahluti verkefnisins telst til náttúru-
verndar en staðurinn allur ber þess merki
að hafa verið byggður upp með sjálfbærni
að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt upplýsingum frá Ferða-
málastofu bárust yfir 300 umsóknir.
Þegar Feykir óskaði eftir lista yfir um-
sækjendur fengust þau svör að ekki sé
tekið saman hversu margar umsóknir
hafa borist úr hverjum landshluta fyrir sig
en að sögn Guðrúnar Dóru Brynjólfs-
dóttur sérfræðings hjá Ferðamálastofu
voru þær nokkrar úr landshlutanum.
Tvær frá Sveitarfélaginu Skagafirði og
nokkrar frá Húnavatnssýslum, þar af
fjórar sem hlutu styrk. /BÞ
Tólf milljónir af 647 til ferðamála á NLV
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Nýjar vörur
á pier.is
20% AFSLÁTTUR
AF HÚSGÖGNUM 31. mars - 6. apríl
HOJAI BEKKUR
ÁÐUR 19.990,-
NÚ 15.992,-
Stærð: 100x30xH54 cm.
Nokkrar umsóknir bárust frá NLV en fjórar hlutu styrki
35 ára
Páskalömb borin á Bergsstöðum
Óvæntur vorboði
Það var heldur óvæntur vorboði sem beið Viðars Ágústssonar
bónda á Bergsstöðum í Skagafirði þegar hann fór í fjárhúsin
að morgni páskadags. Þá hafði Lukka, sex vetra ær, borið
tvö páskalömb.
„Þetta er óvenju snemmt. Ég smalaði inn 7. nóvember, ætli
það hafi ekki verið heldur þröngt í krónni þegar ég tók hrútana
inn,“ sagði Viðar í samtali við Feyki í vikunni. Sauðburður hefst
yfirleitt fyrrihluta maí en ærnar ganga með lömbin í 143 daga,
stundum tveim dögum lengur eða skemur. Sauðburður þykir
mörgu sveitafólki vera skemmtilegasti tími ársins - veturinn er
þá að taka enda, daginn er farið að lengja, gróður tekur við sér og
fuglasöngur er í lofti. /BÞ MYND: VIÐAR ÁGÚSTSSON