Feykir - 13.04.2016, Blaðsíða 2
2 14/2016
Þegar ég er ekki í vinnunni að skrifa um viðburði líðandi
stundar í mínu heimahéraði, hvarflar hugurinn jafnan aftur
til þess tíma er hetjur riðu um héruð. Ég myndi líklega teljast
eldgömul sál og mér finnst afskaplega gaman að lesa mér til
um söguna og hef eflaust áður viðrað á þessum vettvangi þá
skoðun mína að „landslag væri lítils virði ef það héti ekki
neitt.“ Og ekki þykir mér síður ánægjulegt að miðla þessum
fróðleik mínum til annarra, t.d. ferðamanna.
Þessar áðurnefndu hetjur riðu um
héruð og bárust mikið á og það
voru þær sem skópu söguna sem
við seinni tíma menn lesum og
veltum fyrir okkur sannleiksgildi
hennar. Sagnarritarar þess tíma
voru nefnilega háðir kálfskinnum
og bleki og það er næsta víst að ef
Sturlu sagnaritara Þórðarsyni
hefðu ekki verin gefin grið eftir
Örlygsstaðabardaga, hefði sagan
hljómað allt öðrum vísi. Það er
alla vega ljóst Sturla og Snorri og
þeirra kollegar voru ekki á Twitter, Instragram eða Facebook og
höfðu ekki netfangið sagnaritari@sturlunga.is.
Hins vegar voru aðrar leiðir til að halda upplýsingum til haga
á miðöldum, ekki kannski jafn öruggar. Jafnframt er víst að sagan
er eitt af því sem á hvað mestan þátt í bera hróður okkar víða um
lönd. Ímynd okkar Íslendinga sem sagnaþjóðarinnar miklu sem
metur menningararfinn og náttúruna meira en nokkuð annað.
Eða hvað?
Nú berst hróður okkar um heim allan og varla hægt að halda
því fram að okkar sér getið af góðu einu. Að vísu hefur atburða-
rásin sem fór af stað með „Cashljósþættinum“ margumrædda þá
kosti að það er töluverð nýsköpun í alls konar skopmyndun,
líkingum og gríni, sem náði kannski hvað hæstum hæðum
þegar Dóri DNA lýst því yfir að ráðherraskiptin væru eins og
heimilisfaðirinn hefði farið í meðferð en drykkjufélagi hans
ætlaði að búa á heimilinu á meðan. En mörgum er ekki skemmt
og það er augsýnilega bleikur fíll í stofunni.
Þar sem ég sat við borðstofuborðið heima hjá mér á sunnu-
dagssíðdegi, á 42 ára afmælisdegi mínum og fylgdist með Kast-
ljósinu fræga, með Sturlungu og ferðabækur á kantinum, var
nokkuð ljóst að ég myndi geta svarað því eftir jafnvel marga
áratugi hvar ég var þennan umrædda dag. Atburðarásina sem fór
af stað í kjölfarið þarf ekki að orðlengja hér.
Hins vegar hef ég verið hugsi yfir því hvað sú meinta spilling
sem hratt þessari atburðarás af stað minnir óþyrmilega á
Sturlungaöldina, og á tímabili var ég orðin hálf ringluð hvort ég
væri að lesa Sturlungu eða horfa á sjónvarpið. Að vísu hafa menn
ekki gripið til vopna, a.m.k. ekki í bókstaflegum skilningi. En
aðferðafræðin virðist að öðru leyti sú sama. Ættarveldi, alls kyns
klækir og brögð, hagsmunatengsl, að ota sínum tota og ófrægja
andstæðinginn. Ég get ekki betur séð en að öllu þessu sé misk-
unnarlaust beitt í því undarlega stjórnmálaástandi sem ríkir í
dag. Skilst mér þó að við séum bara búin að sjá toppinn af
ísjakanum.
Það þarf stærri spámenn í sínu föðurlandi en mig til að velta
fyrir sér hvar þetta endar allt saman en ég velti því þó óneitanlega
fyrir mér hvort það sé komin önnur Sturlungaöld?
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Önnur Sturlungaöld? Réttarferð í V-Hún hlýtur verðlaun
Nordis Travel Award 2016
Arinbjörn Jóhannsson-
Erlebnistouren, fyrirtæki
Arinbjarnar á Brekkulæk í
Miðfirði hlaut nýlega fyrstu
verðlaun, hinna svokölluðu
„Nordis Travel award“, í flokki
viðkomustaða. Verðlaunin eru
veitt af þýska Nordis-forlag-
inu, en samnefnt tímarit þess
um málefni Norðurlandana
hefur um áratuga skeið verið
eitt það virtasta sinnar
tegundar á þýsku málsvæði.
Verðlaunin voru veitt fyrir tólf
daga ferð sem nefnist „Schafe,
Herbstluft, Seehunde“ þar sem
þátttakendur fá m.a. að taka þátt
í smalamennsku og réttar-
störfum. Í úrskurði dóm-
nefndar sem skipuð er ferða-
blaðamönnum og fulltrúum
Nordis útgáfunnar segir að
ferðin mæti sérlega vel kröfum
um upplifun, trúverðugleika og
nýsköpun, auk þess sem verð og
gæði séu í góðu jafnvægi.
Verðlaunaafhendingin fór fram
þann 26. febrúar sl. á ferða-
sýningunni „Reise und Camp-
ing“ í Essen í Þýskalandi, sem
sótt er af tæplega 100.000
manns ár hvert.
Arinbjörn Jóhannsson á
Brekkulæk hefur rekið ferða-
þjónustu sína frá árinu 1979 og
tekur árlega á móti hart nær
fimm hundruð gestum, aðallega
í hesta- og gönguferðir.
/Fréttatilkynning
Vikuna 3.-9. apríl var tæpum 437
tonnum landað á Skagaströnd,
tæpum 48 tonnum á Hofsósi,
rúmum 370 tonnum á Sauðárkróki.
Engar aflatölur bárust frá
Hvammstanga.
Meðfylgjandi mynd er tekin á
fimmtudaginn í síðustu viku, þegar
nýtt skip Dögunar, Dagur SK 17, kom
til löndunar í Sauðárkrókshöfn. Dagur
leysir af hólmi Röst SK 17. /KSE
Aflatölur 3.–9. apríl á Norðurlandi vestra
Nýtt skip Dögunar, Dagur SK 17
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Grásleppunet 10.481
Arnar HU 1 Botnvarpa 331.260
Auður HU 94 Grásleppunet 10.145
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 12.257
Blær HU 77 Landb.lína 2.241
Bogga í Vík Grásleppunet 3.890
Dagrún HU 121 Grásleppunet 4,375
Fengsæll Grásleppunet 9.732
Garpur HU 58 Handfæri 4.458
Hafdís HU 85 Grásleppunet 3.627
Hafrún HU 12 Dragnót 13.038
Húni HU 62 Þorskanet 9.339
Ólafur Magn. HU 54 Þorskanet 5.630
Stefanía HU 136 Handfæri 7.898
Sæfari HU 200 200 Landb. lína 5.627
Sæunn HU 30 Handfæri 2.595
Alls á Skagaströnd 436.593
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 12.335
Fannar SK 11 Grásleppunet 11.475
Gammur SK 12 Grásleppunet 8.625
Hafborg SK 54 Grásleppunet 5.084
Hafey SK 10 Grásleppunet 11.265
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 2.015
Klakkur SK 5 Botnvarpa 120.266
Kristín SK 77 Handfæri 372
Maró SK 33 Handfæri 1.088
Málmey SK 1 Botnvarpa 156.233
Már SK 30 Grásleppunet 11.810
Nökkvi ÞH 27 Rækjuvarpa 13.632
Óskar SK 13 Grásleppunet 10.081
Vinur SK 22 Grásleppunet 6.714
Alls á Sauðárkróki 370.959
HOFSÓS
Skáley SK 32 Grásleppunet 15.537
Von SK 21 Grásleppunet 11.691
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 14.661
Þytur SK 18 Grásleppunet 6.062
Alls á Hofsósi 47.951
Viðræður standa yfir um Landsmót UMFÍ
Leiðrétting vegna fréttar í 11. tölublaði
Í frétt sem birtist í 11. tölublaði Feykis var
ranglega haft eftir Sylvíu Magnúsdóttur,
formanni UMSS, að ákveðið væri að Landsmót
UMFÍ 2018 yrði haldið á Sauðárkróki.
Hið rétta er að áætlað er að halda landmótið
á Sauðárkróki og vonast er eftir að viðræðum
ljúki sem fyrst. Til stendur að undirrita samning
þessa efnis við forsvarsmenn sveitarfélagsins og
Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS). Eru
hlutaðeigendur beðnir afsökunar á þessum
leiðu mistökum. /KSE
Maríus Jónasson (annar frá vinstri) leiðsögumaður veitti verðlaununum viðtöku.
MYND: NORDIS