Feykir


Feykir - 13.04.2016, Blaðsíða 8

Feykir - 13.04.2016, Blaðsíða 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 14 TBL 13. apríl 2016 36. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Tónleikaröð Rökkurkórsins „Ég vil fara upp í sveit“ Rökkurkórinn hefur frá áramótum æft söngdagskrá í tali og tónum sem ber yfirskriftina „Ég vil fara upp í sveit.“ Þema dagskrárinnar eru þekkt dægurlög frá seinni hluta síðustu aldar, tengd saman með texta sem helgaður er hinni einu sönnu, íslensku sveitarómantík. Tónleikar verða á Blönduósi miðvikudaginn 13. apríl og í Miðgarði sunnudaginn 17. apríl. Á báðum tónleikunum verða sérstakir gestir stjörnuparið Sigvaldi Helgi og Sóla. Þriðju tónleikarnir verða svo á Hofsósi miðvikudaginn 20. apríl. Stjórnandi og undirleikari er Thomas R. Higgerson og hefur hann útsett mörg laganna sérstaklega fyrir þessa dagskrá. Lögin verða svo tengd saman með talmáli sem samið er af Björgu Baldurs- dóttur. /KSE 560 VARMAHLÍÐ & 453 8888 www.velaval.is Verið velkomin VIÐ ERUM Í ALFARALEIÐ! FÓÐUR FYRIR ALLAN BÚPENING! Viða r Þó r Ás tvald sson Sölu stjór i Suð urlan d Sím i: 48 0 13 06 Gsm : 86 3 19 71 Netf ang: vida r@o lis.is GLÆSIBÆR GUESTHOUSE 551 Skagafjordur, Iceland Host: Ragnheidur Erla Björnsdóttir & Friðrik Stefánsson Tel. 00354 892 5530 E-mail: ragnheidur.bjorns@gmail.com Dæli Guesthouse Kristinn Rúnar Víglundsson Manager Tel: 0354 865 6074 l E-mail: daeli@daeli.is l w ww.daeli.is 531 Hvammstangi l Iceland Sigríð ur Ká radót tir FRAM KVÆM DAST JÓRI / MA NAG ER Borg armý ri 5, 5 50 Sa udár krók i, Ice land Tel: + 354 4 53 51 2 802 5 Fax: +354 453 5626 www .suta rinn. is gesta stofa @sut arinn .is :: s igga @sut arinn .is GISTING HESTALEIGAHESTAFERÐIR Elvar Einarsson & Fjóla Viktorsdóttir Syðra Skörðugil, 560 Varmahlíð, Iceland Tel: +354 893 8140 / +354 897 0611 info@sydraskordugil.is www.sydraskordugil.is HORSEBACK RIDING & ACCOMMODATION FYRIRTÆKI OG FERÐAÞJÓNUSTUAÐILAR tilboð á nafnspjaldaprenti H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is H Ö N N U N P R E N T N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Að þessu sinni er það Svavar Sigurðsson mjólkurfræðingur hjá Mjólkursamlagi KS sem svarar Tón-lystinni. Svabbi er fæddur 1969, sonur Helenu Svavarsdóttur og Reynis Barðdal, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og segist heimakær með afbrigðum. Verkfæri Svabba í tónlistinni er gítar og spurður um helstu tónlistarafrek svarar hann: „Hljómsveitin Herramenn á sínum tíma, það var nú alveg nægilegt fyrir mig.“ Hvaða lag varstu að hlusta á? Limp Bizkit og Break Stuff. Það er nú lítil jákvæðni í því en er ekki lýsandi fyrir skapið sem ég er í þegar að þetta er ritað. Engu að síður asskoti gott lag. Uppáhalds tónlistartímabil? Æi nú er ég í klemmu. Ég hef í gegnum tíðina reynt að fylgjast með því sem er í gangi hverju sinni og hef gaman af því öllu. En auðvitað hugsar maður til unglingsáranna þegar að þessi spurning kemur upp, hinsvegar þegar öllu er á botninn hvolft þá er tónlistin frá þeim tíma ekkert betri eða verri en hún er nú eða fyrr. [Pólitíkus hefði ekki náð að skrifa loðnara svar]. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Já, nú er það ungur listamaður frá Húsavík sem fangað hefur athygli mína undanfarið. Sá heitir Axel Flóvent – flottur strákur þar á ferð. Eins ung söngkona, Ellen King. Svo hef ég af einhverjum ástæðum dottið í að hlusta á AC/ DC núna undanfarið, kann ekki að útskýra hvers vegna. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Aðallega dægurlög á þeirri merku Rás 1 – gömlu gufunni. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Utangarðsmenn. Hvaða græjur varstu þá með? Gamla stofu garganið mömmu og pabba, sem dugði engu að síður á þeim tíma. Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér í jólagjöf? Ætli það hafi ekki verið gamla vísnaplatan sem Björgvin Halldórs og Gunni Þórðar gerðu á sínum tíma ásamt öðrum. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ef ég heyri einhvern væla Maístjörnuna þá spretta fram grænu bólurnar á mér. Fæ hroll Svavar Sigurðsson / gítar „David Gilmour var, er og verður uppáhalds“ ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Toppurinn VINSÆLUSTU LÖGIN Á PLAYLISTANUM Big in Japan ANE BRUN Break Stuff LIMP BIZKIT Karmacoma MASSIVE ATTACK Stressed Out TWENTY ONE PILOTS Shoot to Thrill AC/DC Lay Lady Lay DURAN DURAN við það eitt að skrifa nafnið. Uppáhalds Júróvisjónlagið? Gleðibankinn, ekki spurning. Mér finnst við eiga að senda hann aftur. Svo er það náttúrulega ABBA, það gerðist eitthvað magnað þar. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Diskó friskó klikkar ekki. Nema sem ádeila á diskóið sem þetta lag átti að vera, það klikkaði alveg svakalega. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags- morgni, hvað viltu helst heyra? Þögn og svo surgið í kaffikönnu – það er best. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Pink Floyd, hvar sem er og taka konuna mína, hana Evu, með. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst kominn með bílprófið? Ætli það hafi ekki verið eitthvað með hljómsveitinni Saga, Duran Duran, klárlega ekki Wham!, en pottþétt Pink Floyd Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? David Gilmour úr Pink Floyd. Var, er og verður uppáhalds. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Pink Floyd. The Wall og The Dark Side of the Moon. Get ekki gert upp á milli þessara stórverka þeirra. Vorhátíð Vélavals verður haldin föstudaginn 15. apríl. Gerum okkur glaðan dag í góða veðrinu. Vorvörurnar streyma inn, fullt af nýjum leiktækjum fyrir landbúnaðinn í portinu og afsláttur í versluninni takið eftir... Grillaðar pylsur í hádeginu. Eftir kvöldverk verður botnfylli í brynningarskálum og spekingaspjall. Lítið inn í Vélaval vorið kemur bráðum. Eigum stund sem efla skal okkar fólk í ráðum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.