Feykir - 13.04.2016, Blaðsíða 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
13. apríl 2016 36. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Tónleikaröð Rökkurkórsins
„Ég vil fara upp í sveit“
Rökkurkórinn hefur frá áramótum æft söngdagskrá í
tali og tónum sem ber yfirskriftina „Ég vil fara upp í
sveit.“ Þema dagskrárinnar eru þekkt dægurlög frá
seinni hluta síðustu aldar, tengd saman með texta
sem helgaður er hinni einu sönnu, íslensku
sveitarómantík.
Tónleikar verða á Blönduósi miðvikudaginn 13. apríl
og í Miðgarði sunnudaginn 17. apríl. Á báðum
tónleikunum verða sérstakir gestir stjörnuparið Sigvaldi
Helgi og Sóla. Þriðju tónleikarnir verða svo á Hofsósi
miðvikudaginn 20. apríl. Stjórnandi og undirleikari er
Thomas R. Higgerson og hefur hann útsett mörg laganna
sérstaklega fyrir þessa dagskrá. Lögin verða svo tengd
saman með talmáli sem samið er af Björgu Baldurs-
dóttur. /KSE
560 VARMAHLÍÐ & 453 8888
www.velaval.is
Verið velkomin
VIÐ ERUM Í ALFARALEIÐ!
FÓÐUR FYRIR
ALLAN BÚPENING!
Viða
r Þó
r Ás
tvald
sson
Sölu
stjór
i Suð
urlan
d
Sím
i: 48
0 13
06
Gsm
: 86
3 19
71
Netf
ang:
vida
r@o
lis.is
GLÆSIBÆR
GUESTHOUSE
551 Skagafjordur, Iceland
Host: Ragnheidur Erla Björnsdóttir & Friðrik Stefánsson
Tel. 00354 892 5530
E-mail: ragnheidur.bjorns@gmail.com
Dæli Guesthouse
Kristinn Rúnar Víglundsson
Manager
Tel: 0354 865 6074 l E-mail: daeli@daeli.is l w
ww.daeli.is
531 Hvammstangi l Iceland
Sigríð
ur Ká
radót
tir
FRAM
KVÆM
DAST
JÓRI
/ MA
NAG
ER
Borg
armý
ri 5, 5
50 Sa
udár
krók
i, Ice
land
Tel: +
354 4
53 51
2 802
5
Fax:
+354
453
5626
www
.suta
rinn.
is
gesta
stofa
@sut
arinn
.is :: s
igga
@sut
arinn
.is
GISTING HESTALEIGAHESTAFERÐIR
Elvar Einarsson & Fjóla Viktorsdóttir
Syðra Skörðugil, 560 Varmahlíð, Iceland
Tel: +354 893 8140 / +354 897 0611
info@sydraskordugil.is
www.sydraskordugil.is
HORSEBACK RIDING &
ACCOMMODATION
FYRIRTÆKI OG
FERÐAÞJÓNUSTUAÐILAR
tilboð á nafnspjaldaprenti
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
H Ö N N U N P R E N T N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Að þessu sinni er það Svavar
Sigurðsson mjólkurfræðingur hjá
Mjólkursamlagi KS sem svarar
Tón-lystinni. Svabbi er fæddur 1969,
sonur Helenu Svavarsdóttur og
Reynis Barðdal, fæddur og uppalinn
á Sauðárkróki og segist heimakær
með afbrigðum. Verkfæri Svabba í
tónlistinni er gítar og spurður um
helstu tónlistarafrek svarar hann:
„Hljómsveitin Herramenn á sínum
tíma, það var nú alveg
nægilegt fyrir mig.“
Hvaða lag varstu að hlusta á? Limp Bizkit
og Break Stuff. Það er nú lítil jákvæðni í því en
er ekki lýsandi fyrir skapið sem ég er í þegar
að þetta er ritað. Engu að síður asskoti gott
lag.
Uppáhalds tónlistartímabil? Æi nú er ég
í klemmu. Ég hef í gegnum tíðina reynt að
fylgjast með því sem er í gangi hverju sinni
og hef gaman af því öllu. En auðvitað hugsar
maður til unglingsáranna þegar að þessi
spurning kemur upp, hinsvegar þegar öllu er
á botninn hvolft þá er tónlistin frá þeim tíma
ekkert betri eða verri en hún er nú eða fyrr.
[Pólitíkus hefði ekki náð að skrifa loðnara
svar].
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Já, nú er það ungur
listamaður frá Húsavík sem fangað hefur
athygli mína undanfarið. Sá heitir Axel
Flóvent – flottur strákur þar á ferð. Eins
ung söngkona, Ellen King. Svo hef ég af
einhverjum ástæðum dottið í að hlusta á AC/
DC núna undanfarið, kann ekki að útskýra
hvers vegna.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Aðallega dægurlög á þeirri merku
Rás 1 – gömlu gufunni.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér?
Utangarðsmenn.
Hvaða græjur varstu þá með? Gamla stofu
garganið mömmu og pabba, sem dugði engu
að síður á þeim tíma.
Hver var fyrsta platan sem þú óskaðir þér
í jólagjöf? Ætli það hafi ekki verið gamla
vísnaplatan sem Björgvin Halldórs og Gunni
Þórðar gerðu á sínum tíma ásamt öðrum.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
Ef ég heyri einhvern væla Maístjörnuna þá
spretta fram grænu bólurnar á mér. Fæ hroll
Svavar Sigurðsson / gítar
„David Gilmour var, er
og verður uppáhalds“
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Toppurinn
VINSÆLUSTU LÖGIN
Á PLAYLISTANUM
Big in Japan
ANE BRUN
Break Stuff
LIMP BIZKIT
Karmacoma
MASSIVE ATTACK
Stressed Out
TWENTY ONE PILOTS
Shoot to Thrill
AC/DC
Lay Lady Lay
DURAN DURAN
við það eitt að skrifa nafnið.
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Gleðibankinn,
ekki spurning. Mér finnst við eiga að senda
hann aftur. Svo er það náttúrulega ABBA,
það gerðist eitthvað magnað þar.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að koma
öllum í stuð? Diskó friskó klikkar ekki.
Nema sem ádeila á diskóið sem þetta lag
átti að vera, það klikkaði alveg svakalega.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags-
morgni, hvað viltu helst heyra? Þögn og
svo surgið í kaffikönnu – það er best.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern
tækirðu með þér? Pink Floyd, hvar sem er
og taka konuna mína, hana Evu, með.
Hvað músík var helst blastað í bílnum
þegar þú varst kominn með bílprófið?
Ætli það hafi ekki verið eitthvað með
hljómsveitinni Saga, Duran Duran, klárlega
ekki Wham!, en pottþétt Pink Floyd
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt
um að vera? David Gilmour úr Pink Floyd.
Var, er og verður uppáhalds.
Hver er að þínu mati besta plata sem
gefin hefur verið út? Pink Floyd. The Wall
og The Dark Side of the Moon. Get ekki gert
upp á milli þessara stórverka þeirra.
Vorhátíð Vélavals
verður haldin föstudaginn 15. apríl.
Gerum okkur glaðan dag í góða veðrinu.
Vorvörurnar streyma inn, fullt af nýjum leiktækjum
fyrir landbúnaðinn í portinu og afsláttur í versluninni takið eftir...
Grillaðar pylsur í hádeginu.
Eftir kvöldverk verður botnfylli í brynningarskálum og spekingaspjall.
Lítið inn í Vélaval
vorið kemur bráðum.
Eigum stund sem efla skal
okkar fólk í ráðum.