Feykir - 08.06.2016, Blaðsíða 10
10 22/2016
Ekki þurfti að kvarta yfir veðrinu sem lék við íbúa Norðurlands
vestra síðast liðinn sunnudag, sjómannadaginn. Hátíðarhöldin settu
að vanda sinn svip á þéttbýlisstaði við sjávarsíðuna en deginum var
fagnað á Sauðárkróki og Skagaströnd á laugardaginn en á Hofsósi
og Hvammstanga á sunnudaginn.
Meðal dagskrárliða á sjómannadagshátíðunum í ár voru dorgveiði,
skemmtisiglingar, koddaslagur og kökuhlaðborð. Meðfylgjandi myndir
tóku Rakel Sif og Herdís Huld á Sauðárkróki, James Kennedy á
Skagaströnd og Kristín S. Einarsdóttir á Hofsósi. /KSE & BÞ
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í brakandi blíðu
Líf og fjör við
sjávarsíðuna