Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 2
2 46/2016
Það er stundum ágætt að bregða sér út fyrir landsteinana og
kúpla sig út úr hinu daglega amstri. Um leið er gott að taka smá
frí frá fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Að vísu er ég forvitin í
eðli mínu og fyrir kemur að ég stelst til að kíkja inn á Snjáldur-
skinnuna af og til og jafnvel
lauma þangað einni og einni
sjálfsmynd eða mynd af minnis-
merkjum og örðum viðkomu-
stöðum.
Þegar ég brá mér til Berlínar
fyrir skemmstu kom upp í fjöl-
miðlum stóra brúneggjamálið.
Hefur umræðan tekið á sig ýmsar
undarlegar myndir og margir
blórabögglar verið kallaðir til.
Sumir halda því til dæmis fram að
það sé RÚV að kenna að menn
hafi graðkað í sig brúneggjum
algjörlega grandalausir, aðrir halda því fram að lífrænt og
vistvænt hafi verið gengisfellt, mörgum finnst Matvælastofnun
hafa brugðist skyldum sínum og enn öðrum finnst aðalmálið
undir hvaða ráðuneyti neytendamál heyra. Persónulega tel ég að
í þessu máli séu tvö meginatriði: Annars vegar að viðskiptaháttum
fyrirtækisins var stórlega ábótavant og hins vegar að eftirlits-
iðnaðurinn býr við mikið úrræðaleysi.
Ein hlið málsins er svo sú hvort við neytendur séum nógu
vandir að virðingu okkar. Hver hefur til dæmis ekki staðið sig að
því að kaupa innfluttar kjúklingabringur eða skinkupakka sem er
fullur af vatni, af því innihaldið er ódýrt? Getur verið að við séum
með uppþoti því sem eggjamálið hefur valdið að kasta eggi úr
glerhúsi?
Verandi stödd í Berlín dettur mér í hug hvort hið ógurlega
skrifræði sem eftirlitsiðnaðurinn er hafi eitthvað upp á sig. Ég
upplifi Þýskaland þannig að þar sé allt mjög klippt og skorið og
lítill sveigjanleiki til staðar. Þannig varð mér til dæmis á að fara á
pósthús í Þýskalandi til að senda pakka til Noregs. Eitthvað var
nú farið að fyrnast yfir menntaskólaþýskuna þegar ég fyllti út
fylgibréf og náði mér svo í pappabox til að setja sendinguna í;
gulan kassa sem þurfti að brjóta saman eftir kúnstarinnar reglum.
Hér á landi eru þeir rauðir og talsvert auðveldari viðfangs.
Eftir að hafa staðið í ógnarlangri röð – en það er ekki mín
sterka hlið frekar en flestra annarra Íslendinga – var röðin komin
að mér. Afgreiðslukonan fann út að ég hefði fyllt út vitlaust
eyðublað og ætti auk þess að fara aftur fyrir röðina, setja inni-
haldið í kassann og merkja hann, fylla út rétt fylgibréf og fara svo
aftur aftast í röðina. Ég prófaði öll trixin í bókinni; setti upp
hvolpasvip, reyndi að brosa til konunnar (sem leit ekki út fyrir að
hafa snúið munnvikunum upp á við síðustu áratugina) og þóttist
ekki skilja stakt orð í þýsku. Konan, sem minnti mig helst á
harðsnúnu konuna í gamanþáttunum gömlu góðu, Allo allo,
þóttist á móti ekki skilja stakt orð í ensku og hefði hún svarað mér
á ensku hefði svarið líklega verið: „Listen very carefully, I will only
say this once!“
Það er kannski það sem vantar í eftirlitsiðnaðinn, að hlutirnir
séu sagðir einu sinni en menn fái ekki endalausa sénsa, áratugum
saman.
Þetta er Kristín S. Einarsdóttir sem talar frá Berlín
LEIÐARI
Að kasta eggi úr glerhúsi?
Vikuna 27. nóvember – 3. desember. var tæpum 196 tonnum landað á Skagaströnd og ríflega
51 tonni á Hofsósi. Rúmum 245 tonnum var landað á Sauðárkróki. Auk Klakks og Málmeyjar
var aðeins einn bátur sem landaði þar. Á Hvammstanga bárust rúm 11 tonn að landi. Alls gera
þetta rúmlega 500 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 27. nóvember - 3. desember 2016 á Norðurlandi vestra
Rólegt yfir löndunum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 63 Lína 2,657
Harpa HU 4 Dragnót 4.639
Alls á Hvammstanga 11.362
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 4.147
Alda HU 112 Landb. lína 9.164
Auður HU 94 Handfæri 2116
Álfur SK 414 Landb.lína 7.823
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 6.048
Dúddi Gísla GK 48 Lína 5.778
Guðmundur á Hópi Landb. lína 3.999
Kristinn SH 812 Landb. lína 39.883
Sighvatur GK 57 Landb. lína 74.376
Stella GK 23 Landb .lína 6.577
Særif SH 25 Landb. lína 35.037
Sæhamar SH 223 Landb. lína 995
Alls á Skagaströnd 195.943
SAUÐÁRKRÓKUR
Klakkur SK 5 Botnvarpa 101.510
Málmey SK 1 Botnvarpa 143.317
Óskar SK 13 Landb. lína 1.053
Alls á Sauðárkróki 245.880
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 37.769
Þorleifur EA 88 Dragnót 13.485
Alls á Hofsósi 51.254
Norðurland vestra
verði eitt sveitarfélag
Lagt til að sveitarfélögum verið fækkað úr 74 í níu
Í nýrri skýrslu frá efnahagssviði
Samtaka atvinnulífsins um
stöðu atvinnulífsins er lagt til
að sveitarfélögum verði fækkað
úr 74 í níu. Lagt er til að
Norðurland vestra, frá
vestanverðum Tröllaskaga að
Borðeyri, verði eitt sveitarfélag.
Vísir.is greindi frá þessu.
Í skýrslunni segir að sam-
einingin gæti skapað svigrúm
til að færa fleiri stór verkefni frá
ríki til sveitarfélaga. Á Íslandi
eru 74 sveitarfélög en 41 þeirra
eru með færri en 1000 íbúa, þar
af eru sex sveitarfélög með færri
en 100 íbúa. Í skýrslunni er sýnt
fram á slæma fjárhagsstöðu
sveitarfélaganna almennt og
sameining sögð leið til að ná
fram alvöru hagræðingu í
rekstri þeirra.
Tillögurnar miða að því að
landinu yrði skipt í níu hluta.
Suðurlandið væri eitt sveitar-
félag frá Eyrarbakka að Höfn í
Hornafirði. Þaðan tæki austur-
land við til og með Vopnafirði.
Norðausturland frá Bakkafirði
að Siglufirði væri eitt sveitar-
félag og Norðvesturland frá
vestanverðum Tröllaskaga að
Borðeyri eitt. Vestfirðir væru
eitt sveitarfélag og Vesturland
frá Skarðsströnd og að höfuð-
borgarsvæði væri eitt. Reykja-
nesskaginn væri eitt sveitarfélag
en höfuðborgarsvæðinu væri
skipt í tvö sveitarfélög. /KSE
Óskað eftir auknu
hlutafé frá Sveitar-
félaginu Skagafirði
Mótun ehf.
Á fundi byggðarráðs
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
sl. fimmtudag var lagt fram bréf
frá stjórn Mótunar ehf. þar sem
óskað var eftir að Sveitarfélagið
Skagafjörður legði fram aukið
hlutafé í fyrirtækið.
Byggðarráð samþykkir að
fela endurskoðanda sveitar-
félagsins að leggja mat á og
greina stöðu og fjárhagslegar
skuldbindingar sveitarfélagsins
gagnvart Mótun ehf. áður en
afstaða er tekin til þess hvort
veita eigi heimildir til að leggja
Mótun ehf. til meira hlutafé en
orðið er.
Í október 2013 ákvað byggðaráð
að leggja fram 4,9 milljóna
króna hlutafé í Mótun ehf.
Hlutafé félagsins var kr. 10
milljónir og KS lagði fram jafn
stóran hlut, auk þess sem
Skagafjarðarhraðlestin lagði
fram 200.000 krónur eða 2%
hlut. /KSE
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdótti, kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Svavar Atli
tekur við
starfi slökkvi-
liðsstjóra
Vernharð í launalaust leyfi
Vernharð Guðnason,
slökkviliðsstjóri hjá
Brunavörnum Skagafjarðar,
fór nýlega í launalaust leyfi.
Hann verður í leyfi frá 1.
desember 2016 til og með
30. nóvember 2017.
Svavar Atli Birgisson, sem
verið hefur aðstoðarslökkvi-
liðsstjóri, tekur við starfi
slökkviliðsstjóra og mun
gegna því í fjarveru Vern-
harðs. Greint er frá þessu á
vefsíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. /KSE
Girt var
í lok
nóvember
Reiðvegamál
Hestamannafélagið
Skagfirðingur sá sér leik á
borði og nýtti hina góðu tíð
undanfarið og lét girða
meðfram reiðvegi er liggur í
gegnum lönd Brekku,
Víðimels og Álftagerðis.
Vinnan fór fram í síðustu
viku en alls er girðingin um
tveir km.
Það voru þeir Bjartmar
Halldórsson og Þór Sævars-
son sem sáu um girð-
ingavinnu sem tók um fjóra
daga en Víðimelsbræður sáu
um ýtu- og gröfuvinnu. /PF