Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 3
46/2016 3
Lag Kristjáns Bjarna
og Reynis Snæs í úrslit
Jólalagakeppni Rásar 2
Lagið „Jólin koma“ eftir
Kristján Bjarna Halldórsson
og Reyni Snæ Magnússon
komst í úrslit í Jólalagakeppni
Rásar 2, eitt af sjö lögum sem
komst áfram af 60 sem send
voru inn í keppnina.
Lögin verða spiluð á Rás 2
næstu dagana og geta hlust-
endur tekið þátt í atkvæða-
greiðslu á vef Rúv. Sigurlagið
verður svo tilkynnt sem
jólalag Rásar 2 árið 2016.
Eins og margir vita starfar
Kristján við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra en Reynir
Snær brautskráðist frá skól-
anum árið 2013 og var
áberandi í tónlistarlífi skól-
ans. Hlusta má á lögin í
keppninni á heimasíðu Rásar
2 og greiða atkvæði þar. Þeir
Kristján og Reynir eru skráðir
saman sem höfundar lags en
textann samdi Kristján Bjarni
og Reynir sá um útsetningu.
/PF
Afhentu bækurnar
í eigin persónu
Árbækur Ferðafélagsins
Nú hafa allir félagsmenn
Kaupfélags Skagfirðinga fengið
í hendur Árbækur Ferðafélags
Íslands sem fjalla um
Skagafjörð. Eins og áður hefur
verið sagt frá lét Kaupfélagið
útbúa bækurnar í sérstaka
viðhafnaröskju sem þeir Sveinn
Sigfússon og Snorri Evertsson
komu svo til skila.
Þeir Sveinn og Snorri óku
um allt Skagafjarðarhérað og
afhentu bækurnar í eigin
persónu. Segja þeir verkið hafa
gengið vel og þeir reynt að
koma bókunum í hendur allra,
sem iðulega hafi tekist. „Fólk
hefur jafnan brugðist vel við og
sumir farið að brosa sem þeir
hafi ekki gert í langan tíma,“
segir Snorri kíminn og bætir
við að jafnvel hafi þeir fengið
koss að launum. /PF
Feykir slóst í hópinn þegar síðustu eintökunum var komið til eigenda sinna á
öldrunardeild sjúkrahússins á Sauðárkróki. Ekki voru allir hrifnir af myndatöku en
Stefán Kemp elsti núlifandi félagsmaðurinn, 101 árs, lét eftir þrábeiðni Sveins um
eina mynd. MYND:PF
Kristján Bjarni. MYND:ÚR EINKASAFNI
AÐSENT frá Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju
Af ljósakrossum í Sauðárkrókskirkjugarði
Á aðventunni er góður og fallegur siður að
tendra ljós á leiðum ástvina og er það hjá
mörgum mikilvæg hefð í aðdraganda
jólahátíðarinnar. Snemma í haust tók
sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju þá ákvörðun
að fela Kiwanisklúbbnum Drangey að annast
uppsetningu og bera ábyrgð á lýsingu í
kirkjugarðinum á Nöfunum. Fyrir því voru
nokkrar ástæður sem rétt er gera grein fyrir.
Undanfarin misseri hefur verið ráðist í miklar
framkvæmdir í garðinum sem hafa kostað
töluverð fjárútlát. Því hefur garðurinn ekki haft
bolmagn til að hafa fastan starfsmann og leitað
hefur verið til verktaka með þau verk sem þarf
að vinna. Til þess að tryggja að allir Króksarar
nær og fjær geti fengið ljós á leiði sinna nánustu
var ákveðið að leita til félagasamtaka um að setja
upp ljósakrossa og aðstoða fólk eftir þörfum.
Þessi háttur er hafður víða um land, t.d sér
björgunarsveitin um garðinn á Siglufirði og
skátar hafa í áratugi séð um lýsingu í Akur-
eyrarkirkjugarði.
Það er gleðiefni að Kiwanisklúbburinn hefur
sinnt þessum störfum af alúð og garðurinn er
bæði þeim og okkur öllum til sóma. Nokkrum
hefur vaxið í augum að gjald, 4000 krónur, er
tekið fyrir hvern kross, hvort sem hann er í
geymslu hjá garðinum og settur upp af
umsjónarmönnum eða hann geymdur
annarsstaðar og fólk setur upp sjálft. Þetta er
réttilega mikil hækkun frá fyrra ári sem þá var
þúsund krónur og átti að standa straum af
rafmagnskostnaði. Samkvæmt óopinberri verð-
könnun sóknarnefndar er á flestum stöðum
tekið hærra gjald fyrir sömu þjónustu og meira
að segja töluvert hærra. Kiwanismenn vinna
sjálfboðna vinnu og þeir hafa í áraraðir styrkt
hin ýmsu verkefni í heimabyggð og munu án efa
halda því áfram. Þannig mun gjaldið fyrir ljósið
skila sér aftur til samfélagsins og renna til góðra
málefna.
Megi aðventan verða áfram mild og góð og
við öll eiga gleðileg jól.
Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju
mt ... MYND: KSE
Ingimundur og Valgerður á
Þingeyrum sæmd verðlaunum
Landgræðsluverðlaunin 2016
Á dögunum voru Landgræðslu-
verðlaunin 2016 afhent í
Sagnagarði í Gunnarsholti og
er það í 26. sinn sem Land-
græðsla ríkisins veitir þau.
Verðlaunahafar að þessu sinni
voru annars vegar hjónin
Ingimundur Sigfússon og
Valgerður Valsdóttir á Þing-
eyrum og hins vegar Land-
græðslufélag Hrunamanna.
Landgræðsluverðlaunin eru
veitt árlega einstaklingum og
félagasamtökum sem hafa unn-
ið að landgræðslu og landbót-
um. Með veitingu landgræðslu-
verðlaunanna vill Landgræðslan
vekja athygli á mikilvægu starfi
margra áhugamanna að land-
græðslumálum. Ingimundur
Sigfússon og Valgerður Vals-
dóttir og fjölskylda þeirra, hafa
um langt árabil stundað stór-
fellda uppgræðslu á jörðum
sínum, Sigríðarstöðum í Húna-
þingi vestra og Þingeyrum í
Austur-Húnavatnssýslu.
Sjá nánar á Feykir.is. /PF
Verðlaunahafar ásamt Sigríði Auði Arnardóttur, ráðuneytisstjóra, og Árna Bragasyni,
landgræðslustjóra. MYND: LAND.IS