Feykir - 07.12.2016, Side 8
8 46/20161
„Kominn tími til
að drífa sig af stað“
Söngkonan Margrét Eir í Sauðárkrókskirkju
Í tólf ár hélt Margrét uppá
aðventuna með Frostrósum og
voru þeir tónleikar partur af
hennar jólahátíð. Hún segist
hafa verið í dvala í nokkur ár og
löngu komin tími til að drífa sig
af stað og þess vegna væri efnt
til tónleika nú. „Mér þykir vænt
um jólalögin og mér finnst
yndislegt að fá að syngja á
þessum tíma. Ég kem oft á
Sauðárkrók til að heimsækja
tengdafjölskylduna og mér
fannst liggja vel við að koma og
syngja í kirkjunni. Þau taka líka
alltaf vel á móti mér, Rögnvaldur
og kórinn,“ segir Margrét og
bætir við að það sé skemmtileg
Margrét Eir segir að tími sé kominn til að efna til jólatónleika en hún syngur nú í
nokkrum völdum kirkjum. MYND: ÚR EINKASAFNI
tilviljun að hún fari einnig á
Hólmavík og Reykholt. „Ég var
að vinna með honum Viðari
Guðmundssyni í brúðkaupi í
sumar og hann hvatti mig til að
koma og ég bara sló til. Hann er
með kórinn á báðum stöðum.
Ég var í sveit í Geirshlíð sem er
rétt hjá Reykholti í mörg sumur
þegar ég var ung, bara æðislegt
að fá að syngja þarna í þessari
flottu kirkju. Ég ákvað svo að
vera í Guðríðarkirkju í
Grafarholti í Reykjavík í ár. Ég
hef sungið þarna áður á
tónleikum og í útför og mér leið
vel þarna inni og æðislegur
hljómburður í kirkjunni“.
Margrét segir að jólin séu
mjög hátíðleg hjá henni enda
verður hún bæði með sálma og
dægurlög með svolítið þjóð-
legum blæ. „Þarna verða líka
lög sem eru vetrarlög eins og til
dæmis Vetrarsól eftir Gunnar
Þórðarsson. Ég ætla að flytja tvö
lög sem skarta nýjum vetrar-
textum eftir Jökul Jörgensen. Ég
er mikil sagnamanneskja og
hvert lag hefur sína sögu að
segja.“
Skagfirðingar
syngja með
Athygli vekur að systurnar
Bergrún Sóla og Malen Áskels-
dætur, ungar og efnilegar söng-
konur á Sauðárkróki, syngja
með Margréti á tónleikunum.
Aðspurð um hvernig það komi
til segir Margrét að hún hafi
rekið söngskólann MEiriskóli í
sjö ár og hafi nokkrum sinnum
verið með námskeið á
Króknum. „Í eitt skiptið komu
þessar stelpur og ég hef fylgst
með þeim síðan. Þetta er flottar
og músíkalskar stelpur. Við
höfum aldrei sungið saman
áður en ég hafði þetta á til-
finningunni að þetta gæti
hljómað svolítið vel. Eftir eina
æfingu fékk ég það staðfest. Ég
er alltaf með augun opin fyrir
ungu og efnilegu tónlistarfólki
og vil gjarnan gefa þeim tilefni
til að koma fram.“
Hvernig Rögnvaldur Val-
bergsson og kór Sauðárkróks-
kirkju fléttast inn í dagskrána
segist Margrét ætla að hafa það
svolítið leyndó en hún er
þakklát þeim fyrir þátttökuna.
„Þau eru svo almennileg við
mig og ég er ótrúlega þakklát
fyrir að þau vilji deila með mér
þessu kvöldi. Mig langar að
þakka Rögnvaldi sérstaklega
fyrir að taka svona vel á móti
okkur og hjálpa með upp-
setningu á hljóðfærum og
græjum,“ segir Margrét og
bætir við að það sé góður andi
sem fylgi kirkjunni og setji
fallegan tón inn í dagskrána.
„Með allt þetta góða fólk með
mér þá held ég að þetta verði
bara dásamlegt.“
En hvernig ætli dæmigerð jól
séu hjá Margréti Eir?
„Fyrir utan söng út um allan bæ
í desember, þá fer ég að vesenast
eins og allir aðrir. Ég gef mér
góðan tíma með vinum og
fjölskyldu. Við förum í bröns
eða jólahlaðborð, dúllum okkur
í búðum, bökum saman sörur
eða smákökur. Ég sendi út
jólakort og ætla ekki að klikka á
því í ár. Les Gestgjafan frá A-Ö
og gef mér góðan tíma að plana
hátíðarmatseðil. Mér finnst
mjög gaman að elda. Á að-
fangadag syng ég klukkan sex í
Grafarvogi (ekki reyndar í
kirkjunni) í léttmessu á vegum
Grafarvogskirkju. Síðan á ég
ljúft kvöld með kærastanum og
mömmu minni. Þetta gæti ekki
verið meira kósí.“
Það er aldrei of mikið af
jólasmákökuuppskriftum svo
Margrét Eir var beðin um eina
sem hún væri til í að deila með
lesendum Feykis. „Ég á enga
sérstaka kökuuppskrift. Ég er
ennþá að reyna að baka “réttu”
Jöllakúlurnar fyrir kærastann.
Þetta er uppskriftin sem ég hef
fengið afhenta og ég held að
maður þurfi bara að prufa sig
soldið áfram með þetta. Ég ætla
að prufa að bæta við meira
kókos í ár – kannski bæta við
súkkulaðikonsúmi, rifnu.“
Hin geðþekka söngkona, Margrét Eir, ætlar að efna í jólatónleika í Sauðár-
krókskirkju laugardaginn 17. desember nk. Með henni eru hljóðfæraleikararnir
Börkur Hrafn Birgisson og Daði Birgisson en sérstakir gestir verða Kirkjukór
Sauðárkróks, Rögnvaldur Valbergsson og systurnar Bergrún Sóla og Malen
Áskelsdætur. Feykir ákvað að forvitnast aðeins um tónleikana hjá
söngkonunni auk þess að sníkja eina uppskrift að jólasmákökum.
Margrét Eir segist oft koma á Sauðárkrók en hér er hún stödd á Nöfunum. MYND: ÚR EINKASAFNI
Jólakúlur / Jöllakúlur
400 gr hveiti
250 gr sykur
400 gr smjörlíki (lint
eða við stofuhita)
½ tsk hjartarsalt
200 gr kókosmjöl
2 msk kakó
2 egg
Aðferð: Hnoðað vel saman og
mótað í litlar kúlur og settar á
bökunarpappír á plötuna.
Bakað í ca.10 til 15 min
við 200°C.
Uppáhaldið hjá Margréti Eir
VIÐTAL
Páll Friðriksson