Feykir - 07.12.2016, Blaðsíða 10
10 46/2016
Hjördís Tobíasdóttir, íbúi í
Geldingaholti 1 í Skagafirði,
missti nánast allar sínar
eigur þegar íbúðarhúsið þar
brann á miðvikudaginn í
síðustu viku. Tilkynnt var um
eld í húsinu upp úr klukkan
hálffimm, en talið er að hann
hafi kviknað þegar verið var
að leggja nýtt inntak fyrir
heitt vatn í húsið. Formleg
rannsókn á upptökum
eldsins stendur yfir.
Blaðamaður Feykis hitti Hjör-
dísi á vettvangi brunans á
fimmtudaginn og sagði hún að
aðeins hefði tekist að bjarga
myndaalbúum, tölvu og fá-
einum persónulegum munum.
Enginn var í húsinu þegar
útkallið barst, en það voru
starfsmenn Skagafjarðarveitna
sem tilkynntu um eldinn. Var
allt tiltækt slökkvilið í Skaga-
firði kallað út og farið með öll
tæki og búnað á staðinn, auk
þess sem mjólkurbíll var feng-
inn til að dæla vatni, sem og
haugsugur og fleiri tæki sem
tiltæk voru.
Þegar blaðamaður Feykis
fór á vettvang á ellefta tímanum
á miðvikudagskvöldið stóð
slökkvistarf enn yfir. Lauk því
um klukkan eitt um nóttina, en
til að ráða niðurlögum eldsins
þurfti að brjóta niður það sem
eftir stóð af húsinu. Húsið var
einangrað með torfi og hafði
eldurinn breiðst hratt út.
Aðeins kjallari hússins stóð
eftir þegar slökkvistarfinu
lauk. Eldur komst ekki í gaml-
an torfbæ sem var sambyggður
húsinu, né heldur trjágróður
umhverfis húsið. Dælubíll var
á staðnum alla nóttina og tveir
slökkviliðsmenn frá Bruna-
vörnum Skagafjarðar stóðu
öryggisvakt til klukkan átta um
morguninn, er vettvangur
brunans var afhentur lögreglu
til rannsóknar. /KSE
Íbúðarhúsið í Geldingaholti 1 í Skagafirði
brann til grunna
Missti nánast allt
sitt í brunanum
Peningagjöf vegna lyftu í
Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju
Á fimmtudagskvöldið var hin árlega aðventu-
gleði Sjálfsbjargar haldin í Húsi frítímans á
Sauðárkróki. Við það tækifæri afhenti Sjálfs-
björg peningagjöf vegna lyftu sem stendur til
að koma upp í Safnaðarheimili Sauðárkróks-
kirkju. Einnig voru afhentar viðurkenningar
fyrir aðgengismál.
Viðurkenningu hlaut Eymundur Þórarinsson
sem leigir út Óskahúsið, glæsilegan sumarbúst-
að í Varmahlíð þar sem aðgengismál eru til
fyrirmyndar, innan dyra sem utan. Þá hlutu þau
Gunnar B. Gíslason og Ragnheiður Steinsdóttir
sem reka Bláfell á Sauðárkróki viðurkenningu
fyrir bætt aðgengi. Þar hefur stétt fyrir utan
söluskálann verið endurnýjuð og eru rampar
beggja vegna á henni, þannig að hægt er að
komast þangað inn í hjólastól.
Það var notaleg stemning á aðventugleðinni
og boðið var upp á heitt súkkulaði, smákökur og
konfekt. Agnar Gunnarsson á Miklabæ flutti
aðventuþanka, Helga Bjarnadóttir las fallega
jólasögu og söngkonan Edda Borg söng nokkur
lög við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. /KSE
Aðventugleði Sjálfsbjargar
Það var notaleg stemning á aðventugleði Sjálfsbjargar. MYND: KSE
Þegar skökkvistarfi lauk stóð aðeins kjallarinn eftir. MYNDIR: KSE