Feykir


Feykir - 30.09.2010, Page 4

Feykir - 30.09.2010, Page 4
4 Feykir 36/2010 AÐSEND GREIN Eyþór Árnason skrifar Menning Basar Skagafjörður Blönduós Á heimasíðu Karlakórsins Heimis er greint frá því að Stefán Gíslason, kórstjóri, mun taka sér ársfrí frá stjórnun kórsins af persónulegum ástæðum. Hafa kórfélagar ráðið Helgu Rós Indriðadóttur til þess að stýra kórnum í fjarveru Stefáns. Vetrarstarf Karlakórsins Heimis hefst með æfingu í Miðgarði mánudagskvöldið 18. október kl. 20:30. Megin þema vetrarins verður kynnt síðar en það verður með hefðbundnara sniði en undanfarin ár þar sem við höfum blandað saman leiklestri og söng. Helga Rós frá Hvíteyrum er að góðu kunn sem einsöngvari, óperusöngkona og leiðbeinandi á vinsælum námsskeiðum fyrir söngfólk hér í firðinum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kona stjórnar Heimi, því Stefán hefur áður fengið leyfi frá störfum og þá hljóp Sólveig Sigríður Einarsdóttir, betur þekkt sem Sísa á Mosfelli, í skarðið með góðum árangri. Sem fyrr mun Thomas Higgersson annast undirleik og raddþjálfun. Við minnum á að kórinn stendur öllum opinn sem hafa áhuga á skemmtilegum félagsskap og telja sig geta sungið tiltölulega skammlaust. Áhugasamir geta haft samband við Jón formann í síma 8921319 Valdís Valbjörnsdóttir tók sig til á dögunum og safnaði munum á basar sem hún síðan hélt í anddyri Skagfirðingabúðar sl. föstudag. efáns. Basarinn var haldinn til styrktar Ingva Guðmundssyni sem á næstunni mun gangast undir beinmergsskipti úti í Svíþjóð. Valdís safnaði 31.200 krónum. Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga sætir nú rannsókn ásamt 7 öðrum kjötvinnslufyrirtækjum í kjölfar þess að Hagar viðurkenndu brot á samkeppnislögum og féllust á að greiða 270 milljónir í stjórnvaldssekt.Hin meintu brot fólust í tvíhliðasamningum milli fyrirtækjanna og samstilltum aðgerðum við smásöluverðlagningu á kjötvörum eða forverðmerkingum í verslunum Bónus. Þetta þýðir á mannamáli að vörur frá KS sem aðallega er lambakjöt er unnið og verðmerkt í sláturtíðinni sem stendur yfir í 3 mánuði á ári. Varan er svo fryst og sett í geymslu þar til hún er afgreidd til viðskiptavinarins með verðmiðann frá sláturtíðinni en það er það sem Samkeppniseftirlitið setur út á. Til þess að stemma stigu við þessu væri hugsanlega hægt að merkja vöruna með strikamerki líkt og gert er við grænmeti og er það þá í valdi smásalans hvernig verðið lítur út þegar á afgreiðsluborðið er komið, hvort sem það er hagstætt fyrir neytandann eða ekki. Ágúst Andrésson forstöðu- maður Kjötafurðastöðvar KS vildi ekki tjá sig um málið að sinni. Þriðjudagurinn 31. ágúst var síðasti opnunardagur Hafíssetursins á Blönduósi á þessu ári en rúmlega 1700 gestir heimsóttu Hafíssetrið í sumar og er það sambærilegt og í fyrra. Gestir koma frá öllum heimshornum og hefur það vakið sérstaka athygli í sumar að þó nokkrir gestir komu frá Ástralíu. Þegar gestirnir voru spurðir af hverju þeir koma til Íslands var svarið að Ísland hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum í Ástralíu undanfarið og það vekur áhuga á landinu. Stjórn Hafíssetursins lýsir ánægju sinni yfir að svo margir hafi sýnt setrinu áhuga og þakkar gestum kærlega fyrir komuna. Hafíssetrið opnar að nýju næsta vor, en þá bætist við sýninguna heimildarmynd um hafísminningar heimamanna sem unnin var á vegum Hafíssetursins í sumar. Hafíssetrið er opið eftir samkomulagi í vetur og getur fólk sent tölvupóst á hafis@ blonduos.is ef áhugi er fyrir því að skoða setrið. Nostalgíubensín Helga Rós stjórnar Heimi Valdís safnaði 31.200 kr. Samkeppnisstofnun rannsakar KS Rúmlega 1700 gestir heimsóttu Hafíssetrið Á böllunum fyrir norðan á síðustu öld var lokalagið hjá Geirmundi alltaf það sama: Erla góða Erla. Og það var draumurinn að vanga inn í nóttina með Erlu: Erla góða Erla ég á að vagga þér Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér : Kvæðið mitt er kvöldljóð því kvöldsett löngu er : Þannig voru þeir tímar þegar grænu bækurnar í Bún- aðarbankanum voru og hétu, þegar sumrin voru köld og veturnir harðir, en það var eldur í hjartanu og Geir- mundur spilaði á böllunum og stundum komu sjóðheitar hljómsveitir að sunnan og árin liðu. Og árin liðu. Miðgarður orðinn menn- ingarhús með glerhjúp utan um tröppurnar, gömlu tröppurnar sem geyma sögur um söng, kjaftshögg og sætar stelpur. Já nú er búið að pakka Miðgarðströppuminningun- um inn í gler – eins og búið sé að leggja tímann í glæra landaflösku og planið mal- bikað og fínt… En Kaupfélagið er á sínum stað, nema mig minnir að KS-merkið hafi verið flottara í gamla daga, einhvern veginn mýkra eða einhvern veginn svona meira sexí, og svo var auðvitað Esso-merkið út um allt… nema hjá Bjarna Har og Jóhanni á Kúskerpi. Þar var BP sem nú hefur reynt að fylla flóa og fjörur í henni Ameríku… en það er nú ekki Bjarna Har að kenna. En maður var yfirleitt trúr sínu Essói þarna í den. Það var dælt bensíni á Camaróinn hans Tomma í Sólheimum – K141 – tankurinn fylltur með spenningi hjá Guðmanni úr rauðu dælunni og tryllt um sveitirnar… Svo löngu seinna fyrir sunnan var samið sérstakt Essólag og Essó styrkti sérstaka söngvaraleit og það urðu til stjörnur. En svo helltist góðærið yfir okkur og N1 tók yfir og staðlaði allar sjoppur og malbikaði sama pylsubragðið yfir allt landið. N1 – það er ekki mikil músík í því miðað við Essó… Ég sakna Essó. Essó er svo inngróið í mann. Í sveitinni varð tankurinn stundum tómur, miðstöðin hætti að ganga og Masseyinn varð olíulaus í miðju flaginu. Þá var hringt í Kaupfélagið og stóri Bensinn kom með Esso- merkið að framan og aftan og á hliðunum. Essó. Bjargvætturinn. Og Gísli Geirs dældi á tankinn, en sat svo fastur í aurnum á hlaðinu. Svo fastur að það þurfti að hringja í Búnaðarsambandið og fá Kela á jarðýtunni til að draga trukkinn upp. Það var í þá daga þegar Geirmundur var ungur og spilaði á sólógítar og söng lög eftir Creedence Clearwater betur en söngvari þeirra gerði sjálfur, Camaróinn malaði fyrir framan Miðgarðströpp- urnar og sólarlagið logaði framundan. Það var í þá daga þegar Geirmundur var ungur og spilaði á sólógítar og söng lög eftir Creedence Clearwater betur en söngvari þeirra gerði sjálfur, Camaróinn malaði fyrir framan Miðgarðströpp- urnar og sólarlagið logaði framundan.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.