Feykir - 30.09.2010, Side 8
Péturína Laufey Jakobs-
dóttir á Skagaströnd er ný í
sveitarstjórn Skagastrandar
en áður hafði hún lengi
stúderað sveitarstjórnarmál
við eldshúsborðið heima.
Péturína er full áhuga en
segir að í raun hafi verið
fátt sem kom henni á óvart
þegar í sveitarstjórn var
komið.
Hver er konan?
Húnvetningur í húð og hár,
fædd og uppalin á Blönduósi
en hóf sambúð með Skag-
strendingnum Reyni Lýðssyni
þegar ég var 18 ára og flutti þá
á Skagaströnd. Áhugamál eru
akstursíþróttir og bílar
almennt, björgunarsveitamál
og skíða-iðkun hefur orðið
vaxandi áhugamál á síðustu
árum en samfélags- og
félagsmál almennt hafa mér
lengi fundist áhugaverð.
Hvað er annars að frétta frá
Skagaströnd? -Það er
bara allt gott að frétta frá
Skagaströnd, staðurinn iðar af
lífi þessa dagana m.a. vegna
margra aðkomubáta og svo er
mannlífið á Skagaströnd engu
líkt. Hérna spígspora t.d. um
göturnar listamenn frá ýmsum
löndum, á vegum Nes lista-
miðstöðvar og bjóða upp á
mis skrítnar uppákomur.
En af þér sjálfri? -Núna er
lífið bara ljúft, byrjuð að vinna
aftur hjá fjölskyldufyrirtækinu
Léttitækni eftir 14 mánaða
fæðingarorlof. Mér finnst
æðislegt að vera komin í
rútínuna aftur. Það var komið
alveg nóg af húsmæðraleik í
bili.
Hvað gerir þú þegar þú ert
ekki að stússast í
sveitarstjórnar-málum?-
Vá, ég reyni nú að sinna
strákunum mínum, Antoni
Loga sem er eins árs og
Jóhanni Almari sem er átta
ára. Á sumrin finnst mér voða
gaman að ferðast um landið
en á reyndar tvo uppáhaldsstaði
þar sem ég hleð batteríin, það
er Vatnsdalurinn og Djúpavík
á ströndum. Á veturna reyni
ég að fara sem oftast á skíði og
svo finnst mér æðislegt að
ferðast um hálendið á jeppa.
Ég sinni líka nokkrum
stjórnarstörfum, þ.á.m.
gjaldkeri hjá Virkju (tengslanet
kvenna á Norðurlandi vestra)
og Björgunarsveitinni Strönd,
einnig sit ég í stjórn Nes
listamiðstöðvar og er formaður
foreldrafélagsins í skólanum
svo það er yfirleitt nóg að
gera.
Hvað kom til að þú ákvaðst að
skella þér á kaf í
sveitarstjórnarmálin?
-Hmm… ég fór nú á
kynningarfund með konum
úr
stjórnmálum á vegum Virkju
í vor og var alls ekki í þessum
hugleiðingum þá, svo leið að
kosningum og ég lét eiginlega
á endanum undan þrýstingi.
Ekki það að ég hef eiginlega
alltaf stefnt að því að taka þátt
í sveitarstjórnarmálunum en
fannst ekki rétti tíminn núna.
Mér finnst það skylda okkar
sem erum með stórar skoðanir
á málunum að hætta að
gagnrýna við eldhúsborðið og
láta heyra í okkur.
Eitthvað sem kom þér á
óvart? -Nei reyndar kemur
mér fátt á óvart þegar
kemur að þessum málum,
maður hefur verið ötull við
eldhúsborðið að stúdera
hvernig þetta virkar hérna og
mér sýnist þetta vera svipað
því sem ég ímyndaði mér,
kannski allt aðeins þyngra í
vöfum og hægvirkara.
Fyrir hvaða málum munt þú
beita þér? -Mín áhugasvið
liggja í uppbyggingu á atvinnu-
málum og svo eru skóla- og
leikskólamálin mér hugleikin,
en þegar maður er að stússast í
þessu í svona litlu samfélagi
held ég að maður muni reyna
að beita sér á flestum sviðum,
það er jú aðal atriðið að gera
gott samfélag en betra.
Eitthvað í rekstri sveitar-
félagsins sem þú vildir sjá
breytast? -Já það er
ýmislegt og þess vegna verður
spennandi að prufa þetta.
8 Feykir 36/2010
Fátt sem kom á óvart
Ný í sveitarstjórn Stóðréttardagur í Víðidal
Stóðsmölun og stóðréttir í
Víðidalstungurétt fara fram
um helgina í Víðidal en
hátíðin hefst í dag kl 17.30
(fimmtudag) með
sölusýningu á Gauksmýri.
Föstudaginn 1. okt. er svo
stóðinu smalað til byggða.
með skátastarfi á
Sauðárkróki.
Þátttakendur smölunarinnar
fara af stað frá Hrappsstöðum
um kl. 10 á föstudagsmorgun
og þeir sem ætla að vestan
mæta í Valdarásrétt um
hádegi. Laugardaginn 2. okt.
er stóðið rekið til réttar
stundvíslega kl. 10 og hefjast
þá réttarstörf. Að venju tekur
fjöldi gesta þátt í smöluninni
og eru margir þeirra á vegum
Íshesta og fer Einar Bollason
þar fremstur í flokki. Þetta er í
tíunda skiptið sem Einar
kemur með ferðamenn í
Víðidalstungurétt en hann
byrjaði fyrir 10 árum þegar
hann kom með ellefu
Þjóðverja í Víðidalinn. Núna
eru hóparnir alls fjórir sem
telja um 60 manns og leggja
þeir af stað frá sitthverjum
staðnum en samvinna er milli
Íshesta og bænda á svæðinu. -
Tveir hópar eru á Dæli hjá
þeim Sigrúnu og Valdimar,
einn hópur er hjá Hauki í
Hvammi í Vatnsdal og einn
hópur er á Þingeyrum en það
er Hjalti Jóhannesson úr
Skagafirði sem er með þann
hóp. Það getur orðið þröngt á
þingi á fimmtudeginum fyrir
sunnan Hópið þegar allir
þessir hópar eru ríðandi frá
Þingeyrum og Sveinsstöðum,
segir Einar en reynt er að hafa
hópana sjálfstæða þannig að
þeir séu ekki að þvælast hver
fyrir öðrum. Stefnan er tekin á
Dæli og Ásgeirsá þar sem
einhverjir hópar verða með
hesta. Einar er mjög sáttur við
umgjörðina um
stóðsmölunina og allt í
kringum hana. –Þetta er alveg
gífurlega flott dæmi og hróður
Víðdælinga hefur borist víða.
Við gengum inn í nokkuð
mótað prógram sem
Víðgælingar höfðu verið með
í gangi að mestu fyrir
Íslendinga og það hefur þróast
svona með árunum, segir
Einar en hann á vart til orð til
að lýsa stemningunni og
veitingunum sem Jónína á
Kolugili ber fram fyrir gesti.
–Þetta eru þvílíkar veitingar
að brúðkaups-og
fermingarhaldarar væru
fullsæmdir af, segir Einar og
rifjar upp að í eitt skiptið var
boðið upp á brúðkaup í
skemmunni í Kolugili en
sonur Jónínu og núverandi
eiginkona hans létu gefa sig
þar saman. –Það var alveg
stórkostlegt. Fólk var bara í
lopapeysunum og
brúðkaupsgestirnir voru
smalar og gestir allsstaðar að
úr heiminum, segir Einar og
hlær og tekur þetta sem dæmi
um hvað heimamenn eru
tilbúnir til að gera til að gestir
fái að upplifa ógleymanlegar
stundir. Búast má við
fjölmenni þar sem gestum
hefur fjölgað undanfarin ár og
veðurspáin er einkar hliðholl
Víðdælingum að þessu sinni.
Tíunda ár Einars Bollasonar
Stóð Víðdælinga rekið til byggða. Mynd: Hrafnhildur L. Hafsteinsdóttir
ÁRLEG INFLÚENSUBÓLUSETNING
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
www.hskrokur.is
Bólusett verður gegn árlegri inflúensu á
Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki þriðjudaginn 5. október,
þriðjudaginn 12. október og fimmtudaginn 14. október kl. 13:30-15:00
alla dagana. Bólusett verður á Hofsósi þriðjudaginn 5. október kl. 15:30
Þeir sem eru 60 ára og eldri og einnig þeir sem tilheyra sérstökum áhættuhópum
fá bóluefnið frítt, en þurfa samt sem áður að greiða komugjald.
Munið að framvísa afsláttar- og/eða örorkuskírteinum við komuna.
Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar
séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.