Feykir - 30.09.2010, Blaðsíða 11
36/2010 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Friðbjörn og Sonja kokka
Einfaldar og
góðar uppskriftir
AÐALRÉTTUR
FYLLTAR
KJÚKLINGABRINGUR
4 ferskar kjúklingabringur
Fetaostur í kryddolíu eða
hvítlauksolíu
Kjúklingakrydd
Bringurnar teknar og stungið
í þær og fylltar með ostinum.
Smá kjúklingakryddi stráð yfir.
Bringurnar settar í eldfast mót
með smá matarolíu og eldað í
ofni við 200°C í ca. 30 mín.
Gott er að bera bringurnar fram
með kartöflubátum eða frönskum
kartöflum, hrísgrjónum fersku
salati og jógúrtsósu, mangó/
karrý.
FOLALDAPIPARSTEIK
Folaldavöðvi
Piparmix
Kjöt og grill krydd
-Vöðvinn kryddaður vel með
kryddinu, settur í eldfast mót
með smá matarolíu og eldað í
ofni við 200°c í ca. 25 mín.
Matgæðingar vikunnar að þessu sinni eru þau Friðbjörn Jósef
Þorbjörnsson vélvirki og Sonja Mjöll Eðvaldsdóttir starfsmaður
KVH. Þau búa á Hvammstanga og auk hinnar venjubundnu
atvinnu sinna þau aukavinnunni, en þau eru sjálfstæðir
dreifingaraðilar Herbalife. Friðbjörn og Sonja skora á Gunnar
Þorvaldsson og Grétu Jósefsdóttir ábúendur á Litla-Ósi að koma
með næstu uppskrift.
Borið fram með kartöflum (líka
gott með brúnuðum), piparsósu
og salati. Fljótlegt og þægilegt!
EFTIRRÉTTUR
KÓKOSBOLLUEFTIRRÉTTUR
Brytjið niður ávexti, ferska eða úr
dós.
Setjið í eldfast mót.
4-6 kókosbollur smurðar yfir.
Bakið í ofni við 200°C þar til
kremið er ljósbrúnt.
Berið fram með þeyttum rjóma
eða ís.
Verði ykkur að góðu!
30Fyrir fyrir 2 ári Dejan hótað lífláti. Þrír leikmenn Víðis réðust að Dejan Djuric leikmanni Tindastóls eftir leik liðanna í knattspyrnu í september árið 2008. Dejan náði að flýja inn í bíl sinn en þremenningarnir létu högg og hráka auk ljóts
orðbragðs dynja á bílnum.
Forsaga málsins var sú að
Slavisa Mitic, leikmaður Víðis,
hlaut rautt spjald eftir að
hafa farið illa í Dejan og lenti
leikmönnunum tveimur saman
inni á vellinum. Þar á Slavisa að
hafa hótað Dejan lífláti eftir leik.
Atvikið var kært til lögreglu
eins og gefur að skilja og í
fréttinni segir að hinn skapheiti
leikmaður Víðis hefði hringt
Þessir hressu krakkar tóku sig til og héldu tombólu til styrktar Tindastóli undir húsveggnum hjá Feyki um daginn, stendur í Feyki 24. ágúst 1983. Hér
eru á ferðinni Sigríður Hjálmarsdóttir, Guðjón Leifur Þórðarson, Kristinn Hjálmarsson og Stefán Vagn Stefánsson undir húsveggnum hjá Náttúrustofu
Norðurlands vetra á Aðalgötu 2.
Feykir á þrítugasta aldursárinu
Húnvetnskir graðhestar í Staðarfjöllum
í fórnarlambið stuttu síðar og
beðist afsökunar á framferði
sínu og formaður Víðis gerði
slíkt hið sama þ.e.a.s. framferði
Slavisa.
Feykir fyrir 12 árum
Kjósa næsta vor um
opnun áfengisútsölu.
Sveitarstjórn Húnaþings
samþykkti á fundi sínum
í september 1998 að leyfa
íbúum að kjósa um það,
samhliða Alþingiskosningum
vorið eftir, hvort opna skyldi
áfengisútsölu í sveitarfélaginu.
Tillagan var samþykkt af sex
fulltrúum í sveitarstjórn en
einn sat hjá en tilefni hennar
var undirskriftarlisti sem
barst sveitarstjórn þar sem 76
manns rituðu undir. –Okkur
finnst það ótækt hér á þessu
svæði að sitja ekki við sama
borð og nágrannar okkar með
þessa þjónustu. Við getum
ekki haft rauðvín, eða annað
borðvín með matnum, nema
vera búin að ákveða það með
nokkrum fyrirvara. Auk þess
sem það er kostnaðarsamara
að fá þetta sent frá Blönduósi
eða Borgarnesi. Þetta er
hreinlega mannréttindamál
finnst okkur, sagði Gústav
Daníelsson einn forsvarsmann
undirskriftasöfnunarinnar
í samtali við Feyki. Það er
skemmst frá því að segja
að fólkið kaus vorið eftir og
áfengisútsala var opnuð í
kjölfarið.
Feykir fyrir 22 árum
Hagagjöld Húnvetninga
dýr í Staðarfjöllum:
Hagaganga 2ja vetra stóðhests í
Staðarfjöllum reyndist bónda í
Langadal nokkuð dýr, en hann
leysti hestinn út á opinberu
uppboði í Útvík í Skagafirði
seint í september árið 1988.
Upphæðin sem bóndinn þurfti
að punga út var 75 þúsund
krónur sem gerir í dag, samkv.
áreiðanlegum heimildum,
framreiknað 238 þús. samkv.
lánskjaravísitölu, 311 þús.
samkv. byggingavísitölu og 267
þús. samkv. launavísitölu. Tveir
aðilar auk eigandans buðu í
hestinn sem kom til réttar í
Staðarrétt. –Það hafa verið
læti í mörg ár út af þessum
stóðhestamálum Húnvetninga
og fyrir nokkrum árum var það
árviss viðburður að stóðhestur
þaðan kæmi til réttar í
Skagafirði. Við ætlum að fylgja
þessu máli eftir eins og við
mögulega getum og byggjum
á búfjárræktarlögum sem segja
eigendur lausagönguhrossa
bótaskylda gagnvart öllu tjóni
sem hestarnir kunna að valda.
Við óttumst að þessi graðhestur
hafi fyljað eitthvað af merum
og það kemur betur í ljós næsta
vor, þar sem búið verður að
taka blóð úr honum, sagði
Víkingur Gunnarsson í viðtali
við Feyki fyrir 22 árum. Eftir
því sem best verður séð hefur
þessi aðgerð virkað ágætlega
því engum sögum fer af því í
seinni tíð að graðhestar komi
til réttar, hvorki í Skagafirði né
Húnavatnssýslu.
Laufskálaréttarhelgin í
Skagafirði fór með ein-
dæmum vel fram að þessu
sinni. Lögreglan var með
töluverðan viðbúnað vegna
Laufskálaréttardansleiks
sem fram fór í Reiðhöllinni
og var m.a. með tvo
fíkniefnahunda á svæðinu.
Engin fíkniefni fundust og
má ljóst vera að
forvarnargildi fíkniefna-
hunda og eftirlits er
ótvírætt. Dansleikjahald
fór mjög vel fram og þurfti
lögregla aðeins að hafa
afskipti að einum einstakling
sem „kæla“ þurfti niður og
urðu engir eftirmálar af því
máli. Áætlað er að um 2000
manns hafi sótt dansleikinn.
Þetta kemur fram á vef
Lögreglunnar á Sauðárkróki
sem þakka þeim fjölmörgu
sem komu að þessu verkefni
og leystu það fagmannlega
og farsællega og varð til þess
að ná þessum góða árangri.
Skagafjörður
Lögreglan
ánægð