Feykir


Feykir - 03.03.2011, Síða 3

Feykir - 03.03.2011, Síða 3
 09/2011 Feykir 3 Feykir Hafðu samband - Síminn er 455 7176 Er eitthvað að frétta? Skagfirskir sýningarhundar stóðu sig vel um helgina Bangsi gerði það gott á sýningu Um síðustu helgi fór fram alþjóðleg hundasýning í Reiðhöllinni í Víðidal þar sem yfir átta hundruð hreinræktaðir hundar af 84 hundategundum fóru í dóm og meðal þeirra voru um tugur skagfirskra hunda sem allir komu með einhver verðlaun heim. Sex dómarar frá sex löndum; Danmörku, Finnlandi, Írlandi, Lettlandi, Portúgal og Þýska- landi gáfu hundunum stig en megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu. Meðal þeirra skagfirsku hunda sem tóku þátt var Bangsi, hundur af brihard-kyni 15 mánaða gamall og var að taka þátt í sinni fyrstu keppni. Bangsi leiddur fyrir dómara. Vinnuvélar Símonar og Steinullarverksmiðjan framúrskarandi fyrirtæki Flott verðlaun til flottra fyrirtækja Á dögunum var fjórum fyrirtækjum veitt viðurkenning frá Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki en þau voru Alcan, CCP, Össur og Stálskip. Tvö fyrirtæki á Sauðárkróki voru meðal 177 framúrskarandi fyrirtækja landsins. Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki upp- fylla þau skilyrði sem Credit- info setur til að fá viður- kenningu sem framúrskarandi fyrirtæki og þeirra á meðal voru tvö fyrirtæki á Sauð- árkróki, Vinnuvélar Símonar Skarphéðinssonar og Stein- ullarverksmiðjan. Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjár- hlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo. Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri. Sauðárkrókur Hagnaður Króksblóts til góðra mála Þó ekki sé hlutverk eða tilgangur þorrablótsnefnd- arinnar á Sauðárkróki að skila hagnaði á Króksblóti er þó betra að gert sé upp réttu megin við núllið og hefur það gengið eftir þau tvö ár sem blótið hefur verið haldið. Sá peningur sem eftir stendur þegar allir reikningar hafa verið gerðir upp hafa runnið til góðgerðamála. Eftir síðasta blót var ákveðin upphæð sett í sérstakan þorrablótssjóð sem gæti orðið einhverskonar trygging fyrir næstu nefndir ef eitthvað vantar upp á því upp- hafskostnaður fyrir hvert blót er töluverður. Sex fulltrúar sitja í stjórn þorrablóts- sjóðsins frá þremur árgöngum, fráfarandi-, núver- andi og komandi árgangi og hafa þeir umsjón með og bera ábyrgð á honum. Ákveðið var að hluti af hagnaðinum færi til góðgerðamála og að þessu sinni var ákveðið að styrkja ungan Skagfirðing, Ingva Guðmundsson, sem háð hefur baráttu við veikindi undanfarin misseri. Einnig naut björgunar- sveitin Skagfirðingasveit góðs af hagnaðinum því ofan á fast gjald sem hún tók fyrir dyravörslu og aðra vinnu kringum blótið fékk hún 10% hlutdeild í hagnaði. Þorrablótsnefndin, ár- gangur 1958, sem nú skilar af sér þakkar öllum þeim fjöl- mörgu sem komu að blótinu á einn eða annan hátt og segir það komið til að vera. Blönduskóli Albert Óli sigraði í Blönduvision Árleg árshátíð Blönduskóla fór fram á föstudaginn að viðstöddu fjölmenni þar sem ýmislegt var til skemmtunar. Sagt var frá mörgum skemmtilegum og forvitnilegum uppákomum í vetur, nemendur unglingadeildar sýndu leikritið „Iris“ í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur en mikill boðskapur er í verkinu og komst hann ágætlega til skila hjá krökkunum. Eftir leikritið voru glæsileg- ar kaffiveitingar í boði áður en komið var að hinni árlegu og frábæru söngvarakeppni „Blönduvision“ en þar stigu fjórir keppendur á svið, þau Albert Óli Þorleifsson, Arin- björn Fossdal, Árný Dögg Kristjánsdóttir og Íris Emma Heiðarsdóttir. Eftir flutning þeirra og áður en dómnefnd tilkynnti úrslitin flutti hljóm- sveit 8. bekkjar eitt lag en í hljómsveitinni voru 9 nem- endur sem spiluðu og sungu en restin af bekknum eða hinir 9, tóku undir í viðlaginu. Skemmst er frá því að segja að Albert Óli Þorleifsson er sigurvegari Blönduvision 2011. Eftir að úrslitin voru ljós skemmti flottur plötusnúður „DJ Doddi Mix“ krökkunum og spilaði fyrir dansi. Náði hann glæsilegum árangri en hann krækti sér í 1. gráðu til alþjóðlegs meist- ara en einnig var hann valinn hundur sinnar tegundar. Eigendur Bangsa eru Ólína Valdís Rúnarsdóttir og Ólafur Smári Sævarsson á Sauðárkróki. Kolbrá Önnu Bjarkar Arnardóttur fékk sitt þriðja stig til alþjóðlegs meistara en fjögur stig þarf að fá til að hundur öðlist þann heiður að verða alþjóðlegur meistari og segir Anna það geta orðið í nóvember næsta ef allt gengur að óskum. Óviðunandi skólahúsnæði á Sauðárkróki Ráðuneytið gefur falleinkunn Á fundi fræðslunefndar Svf. Skagafjarðar sem haldinn var í síðustu viku var lögð fram skýrsla mennta- og menningarráðuneytisins um úttekt á Árskóla sem ráðuneytið lét vinna. Húsnæðiskosturinn talinn óviðunandi. Í meginatriðum eru niðurstöður skýrslunn- ar þær að Árskóli sé eitt lærdómssamfélag og í Árskóla fari fram metnaðarfullt og árangurs- ríkt skólastarf þar sem nemendum líði vel og líti á skólann sem öruggan stað í leik og starfi. Á hinn bóginn er bent á að viðkvæmasti þátturinn í starfi Árskóla séu húsnæðismál og að skólinn búi við óviðunandi húsnæðiskost. Í skýrslunni eru settar fram tillögur til úrbóta í 10 liðum sem hvoru tveggja lúta að ytri og innri þáttum. Mikilvægasta úrlausnarefnið fyrir Árskóla, að mati skýrsluhöfunda, eru endurbætur á húsnæði skólans. Í bréfi ráðuneytisins, sem sent er sveitar- stjóra, er óskað eftir tímasettri umbótaáætlun fyrir 28. febrúar nk. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra og skólastjóra Árskóla að gera tillögu að tímasettri umbótaáætlun.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.