Feykir - 03.03.2011, Side 9
09/2011 Feykir 9
Skagfirska mótaröðin
Jón Helgi sigraði naumlega
Um 60 skráningar voru í tölti í
Skagfirsku mótaröðinni sem fram
fór í Svaðastaðahöllinni í síðustu
viku. Knapar voru vel ríðandi og
gefur það góðan tón fyrir sumarið
að sögn mótshaldara.
Mikil spenna var í unglingaflokki
þar sem Jón Helgi Sigurgeirsson vann
með minnsta mun eftir sætaröðun.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Tölt
Úrslit í unglingaflokki
1. Jón Helgi Sigurgeirsson 5,17
2. Ingunn Ingólfsdóttir 5,17
3. Bryndís Rún Baldursdóttir 4,78
Úrslit í 2.flokki
1. Þóranna Másdóttir 5,56
2. Sædís Bylgja Jónsdóttir 5,39
3. Vigdís Gunnarsdóttir 5,28
Úrslit í 1.flokki
1. Ísólfur Líndal Þórisson 6,39
2. James Faulkner 6,06
3. Hallfríður Sigurbj. Óladóttir 5,61
Hestaumfjöllun Feykis www.feykir.is/hestar
Strákarnir í 9. flokki gerðu sér lítið
fyrir og unnu Hauka í úrslitaleik
bikarkeppni KKÍ um síðustu helgi.
Lokatölur urðu 51-45 og var
sigurinn verðskuldaður. Þetta er
fyrsti bikarmeistaratitill karlaliðs í
Bikarkeppni KKÍ í sögu Tindastóls.
Strákarnir hafa spilað saman
síðan þeir voru í minnibolta og eru
12 af 13 strákum úr bekknum í
körfubolta. Feykir hitti strákana á
hófi sem haldið var þeim til heiðurs á
Ólafshúsi sl. mánudag.
Það voru stoltir strákar sem gengu
inn á Ólafshús, grunlausir þó um
viðtökurnar sem biðu þeirra. Inni á
veitingastaðnum biðu þeirra, foreldrar,
fulltrúar stjórna bæði unglingaráðs
og körfu-knattleiksdeildar Tindastóls,
sveitarstjóri Skagafjarðar, formaður
Tindastóls og fleiri góðir gestir. Var ekki
laust við að hópur töffarar með sextugan
töffara í fararbroddi hafi farið hjá sér
við viðtökurnar. Aðspurður segir Kári
Marísson þjálfari strákanna, að sterk
liðsheild þeirra og góður stuðningur
foreldrahópsins hafi þarna gert
gæfumuninn. „Þetta er frábær hópur
og þeir hafa svo sannarlega unnið fyrir
þessum árangri,“ segir Kári sem þjálfað
hefur hópinn síðustu tvö árin. Strákarnir
byrjuðu hjá Anítu Sveinsdóttur en
Aníta sem nú býr í Grindavík, var
ein fjölmargra sem lögð leið sína í
Hafnafjörðinn um helgina en gaman
er frá því að segja að Tindastóll sem
lék á útivelli átti fleiri stuðningsmenn í
húsinu en heimamenn í Haukum.
Eftir ræðuhöld heiðursgesta, blóma-
afhendingu og fleira yfirgáfu foreldrar
og gestir samkvæmið og strákarnir urðu
einir eftir þar sem þeir fögnuðu ásamt
Kára þjálfara sínum fram eftir kvöldi.
Leikur Tindastóls og Hauka var
æsispennandi en Stólarnir náðu
ágætu forskoti fyrir hlé og leiddu 29-
23 í hálfleik. Haukar komu sterkir til
Fyrstu bikarmeistarar
karla í körfuknattleik hjá Tindastól
FramtíðarleikmennSparisjóðs-liðakeppnin – smali/skeið úrslit
Tryggvi sigraði skeiðið
Á föstudagskvöldið
var keppt í öðru
móti Sparisjóðs-
liðakeppninnar er
keppt var í smala og
skeiði á Blönduósi.
Góð þátttaka var og
mótið skemmtilegt og
spennandi í alla staði,
að sögn mótsshaldara.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Unglingaflokkur
1. Rakel Ólafsdóttir og Rós frá
Grafarkoti 286 stig
2. Stefán Logi Grímsson og
Kæla frá Bergsst. 280 stig
3. Kristófer Smári Gunnarsson
og Kofri frá Efri-Þverá 242 stig
3. flokkur
1. Kristján Jónsson og Bróðir
frá Stekkjardal 300 stig
2. Sigurbjörg Þórunn
Marteinsdóttir og Eldur frá
Birkihlíð 270 stig
3. Rúnar Guðmundsson og
Tvinni frá Sveinsst. 266 stig
2. flokkur
1. Halldór Pálsson og Lyfting
frá Súluvöllum 280 stig
2. Atli Helgason og
Kúabúsblakkur frá Kýrholti
258 stig
3. Guðrún Ósk
Steinbjörnsdóttir og Óvissa frá
Galtanesi 242 stig
1. flokkur
1. Tryggvi Björnsson og Álfur
frá Grafarkoti 258 stig
2. Ragnar Stefánsson og Hvöt
frá Miðsitju 252 stig
3. Elvar Logi Friðriksson og
Hvinur frá Sólh. 242 stig
Skeið
1. Tryggvi Björnsson og Gjafar
frá Þingeyrum 3,59
2. Elvar Einarsson og Kóngur
frá Lækjarmóti 3,65
3. Ásta Björnsdóttir og Lukka
frá Gýgjarhóli 3,71
Ístölt á Hnjúkatjörn
Hörkukeppni á
frábærum ís
Keppt var í ístölti á Hnjúkatjörn við
Blönduós sl. sunnudag á frábærum
ís og í ágætu veðri. Mótið þótti
takast vel í alla staði og vill
mótanefnd koma þakklæti til allra
þeirra fjölmörgu er að mótinu kom.
Úrslit urðu þessi:
Barnaflokkur
1. Sigurður Bj. Aadnegard og Óviss frá Reykjum
2. Leon Paul Suska og Neisti frá Bolungarvík
3. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Hnakkur frá
Reykjum
Unglingaflokkur
1. Friða M. Halldórsd. og Sómi frá Böðvarsh.
2. Eydís Anna Kristófersd. og Renna frá Efri-Þverá
3. Hanna Ægisdóttir og Skeifa frá Stekkjardal
Áhugamannaflokkur
1. Selma Svavarsdóttir og Hátíð frá Blönduósi
2. Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi
3. Jón Árni Magnússon og Gleypnir frá Steinnesi
Opinn flokkur
1. Jón Kristófer Sigmarsson og Duld frá Hæli
2. Tryggvi Björnsson og Stimpill frá Vatni
3. Patrek Snær Bjarnason og Gammur frá
Steinnesi
Sigurvegarar í opnum flokki. Mynd Neisti.net
leiks í þriðja leikhluta en á sama tíma
gekk hvorki né rak hjá okkar strákum
og fór svo að Haukar höfðu betur í
fjórðungnum, 15-5.
Pétur Rúnar hóf fjórða leikhlutann
af krafti, setti fimm stig niður í röð og
Bjarni hélt áfram að hirða sóknarfráköst,
en alls tók kappinn sá 9 sóknarfráköst
í leiknum og 14 alls. Það var allt í
járnum síðustu mínúturnar og þegar
1.20 voru eftir minnkuðu Haukarnir
muninn í 47-45. Kristinn setti þá enn
einn þristinn og staðan 50-45 og ein
mínúta eftir. Haukarnir klikkuðu á
þriggja stiga skoti og brotið var á Pétri
þegar 8.9 sekúndur voru eftir. Hann
setti annað vítið niður og innsiglaði þar
með fyrsta bikarmeistaratitil karlaliðs í
sögu Tindastóls.
Pétur Rúnar Birgisson var valinn
maður leiksins, en hann var með 17
stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar.
Foreldrar og góðir gestir tóku á móti strákunum sem
fóru hjá sér við móttökurnar.
Hér eru orð óþörf – myndin talar sínu máli.