Feykir


Feykir - 03.03.2011, Page 10

Feykir - 03.03.2011, Page 10
10 Feykir 09/2011 Steggjauppboð & saga víbratorsins Konukvöld Tindastóls Vinkonurnar Vala Hrönn Margeirsdóttir, Sara Pálmadóttir og Gyða Kristjánsdóttir, nemar í Tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands stóðu sl. laugardagskvöld fyrir konukvöldi til styrkar körfuknattleiksdeildar Tindastóls, en konukvöldið var verkefni þeirra í viðburðastjórnun. „Okkur langaði að halda einhvers konar styrktarkvöld og varð þetta verkefni fyrir valinu,“ sagði Vala Hrönn í samtali við Feyki. Um 110 prúðbúnar konur mættu til leiks en húsið opnaði kl. 20 með fordrykk í boði Mælifells og voru það nokkrir leikmenn í meistaraflokki Tindastóls sem tóku á móti dömunum og færðu þeim drykkinn. „Dagskráin sjálf byrjaði síðan um hálf níu og vorum við mjög ánægðar með hversu fjölbreytta við náðum að hafa hana. Í upphafi kvölds tók hún Margrét Petra sigurlagið sitt í söngkeppni NFNV sem verður framlag skólans í söngkeppni framhaldsskólanna 9. apríl nk. Þá breyttum við í sam-vinnu við Móðis, Wanitu og Tískuhúsið útliti tveggja kvenna auk þess sem önnur þeirra fékk neglur frá Önnu Láru Friðfinnsdóttur. Við buðum upp á tískusýningu á íþrótta- vörum frá Jako og Pure lime og svo M-design, sem eru glæsilegar prjónavörur,“ út- skýrir Vala Hrönn. Sigga Dögg kynfræðingur gerði allt vitlaust með fyrirlestri sínum um sögu víbratorsin s og í kjölfarið stigu þeir Andri Már Sigurðarson, Gísli Þór Ólafsson og Jón Gestur Atlason á svið og tóku lagið fyrir konurnar kátu. 30 heppnar konur voru dregnar út í happdrætti auk þess sem steggur var boðinn upp og var hann sleginn á 30 þúsund krónur. Eftir að konurnar höfðu skemmt sér saman var strákunum hleyp inn og fjölgaði þá um rúmlega helming í salnum og skemmtu gestir sér fram á nótt undir skífuþeytingi þeirra Dj Rivers og Dj StArnar. Allur aðgangseyrir rann til körfuknattleiksdeildar Tinda- stóls og náðu stúlkurnar að safna 250 þúsund krónum. „Við viljum þakka Mælifelli, Dögun, Verkfræðistofunni Stoð, Kaupfélagi Skagfirðinga og öllum þeim sem styrktu okkur að einhverju leyti, hvort sem það voru peningastyrkir, vinningar eða með vinnu sinni, kærlega fyrir stuðninginn og hjálpina. Og svo auðvitað öllum sem mættu því annars hefði þetta ekki orðið svona flott og skemmtilegt. Við erum alveg í skýjunum með kvöldið og allar þær jákvæðu undirtektir sem við fengum,“ segir Vala Hrönn að lokum.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.