Feykir - 19.01.2012, Page 5
03/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Körfubolti
Flottur sigur í
Ljónagryfjunni
ICELAND EXPRESS DEILDIN
NJARÐVÍK 85
TINDASTÓLL 93
Tindastólsmenn gerðu góða
ferð suður með sjó í síðustu
viku en þangað heimsóttu
þeir lið Njarðvíkur í Iceland
Express-deildinni. Stólarnir
höfðu yfirhöndina nánast
allan leikinn þó sjaldan væri
munurinn mikill og lönduðu
sætum sigri, 85-93, og eru nú
í 6. – 9. sæti í deildinni með
10 stig.
Helgi Rafn sagði eftir
síðasta leik að næst ætluðu
Stólarnir að hefja leik í fyrsta
leikhluta í stað þess fjórða og
vísaði til þess að lið Tindastóls
virtist ekki taka við sér fyrr en
í lokafjórðungi leikja. Piltarnir
stóðu við stóru orðin því
Tindastólsmenn byrjuðu vel,
komust í 0-9 með körfum frá
Allen og Luttman. Um miðjan
leikhlutann var staðan 9-16 og
næstu 9 stig Stólanna gerði
Rikki með þremur 3ja stiga
skotum og staðan 14-25 en að
loknum fyrsta fjórðungi var
staðan 20-27. Annar leikhluti
var jafnari en sá fyrri en
Stólarnir náðu þó mest 13
stiga forystu og voru að hitta
vel fyrir utan 3ja stiga línu;
Rikki bætti við tveimur og
Hreinsi og Þröstur settu sitt
hvora. Staðan í hálfleik 41-49.
Njarðvíkingar voru þó ekki
búnir að gefast upp frekar en
við var að búast, skiptu úr
svæðisvörn yfir í maður á
mann vörn og minnkuðu
muninn í þrjú stig í upphafi
þriðja leikhluta. Þeir náðu
síðan að jafna, 55-55, um
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Nafn: Hallgrímur Ingi Jónsson.
Heimili: Eins og er í Árósum
í Danaveldi, en annars er það
Sæmundargatan á Króknum
Starf: Er í Skóla
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Manchester United, simply the
best!
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Já heldur betur
við einhverja villutrúarmenn eins
og Liverpool, Arsenal og Chelsea
aðdáendur.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Ryan Giggs er
klárlega maðurinn, sigursælasti
leikmaður ensku úrvalsdeild-
arinnar og hefur verið að skeina
mönnum þar síðan ´91 og er
enn að!
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Hálf skammarlegt að segja
frá því en nei, þetta kemur á
næstu árum.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já helling, húfur,
treyjur, könnur og
alveg fullt í viðbót.
Hvernig gengur
að ala aðra
fjölskyldumeð-
limi upp í
s t u ð n i n g i
við liðið? Það
Næ frá lofti og
niður í gólf
gengur bara vel, allir grjótharðir
United menn í minni fjölskyldu, og
vinn markvisst í þessu með yngri
kynslóðinni og gengur vonum
framar.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei maður
svíkur aldrei málstaðinn!
Uppáhalds málsháttur? Pain is
just for a moment but honor is
forever.
Einhver góð saga úr boltanum?
Allt sumarið í sumar er bara ein
stór og góð saga!
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
Ég hef nú bara sloppið heldur vel
í því að vera hrekktur og ætla ekki
að fara að ljóstra upp neinum
hrekkjum sem ég hef framkvæmt
vegna öryggisástæðna!
Spurning frá Árna Einari. – Hvað
ertu stór?
Svar... Ég næ frá lofti og niður í
gólf ;)
Hvern viltu sjá svara þessum
spurningum? Óskar Smára
Haraldsson.
Hvaða spurningu
viltu lauma að
v i ð k o m a n d i ?
Hvenær ætlar þú
að viðurkenna
að Giovani Dos
Santos getur
ekki neitt ?
miðjan leikhlutann og
komust síðan yfir í fyrsta
sinn í leiknum, 60-58. Nú var
stál í stál og jafnt á flestum
tölum en síðustu tvær körfur
3ja leikhluta gerðu Þröstur
Leó og Allen og gáfu
Stólunum smá forskot, 64-
68.
Svabbi byrjaði fjórða leik-
hluta með glæsibrag og setti
niður tvær 3ja stiga körfur,
heimamenn minnkuðu
muninn en Svabbi bætti við
einni til viðbótar og staðan
71-78 þegar 6 mínútur voru
til leiksloka. Það sem eftir
lifði leiks náðu Njarðvíkingar
aldrei að minnka muninn
niður fyrir 6 stig og leikmenn
Tindastóls sigldu heim með
stigin 2, lokatölur 85-93.
Lið Tindastóls átti skín-
andi leik, sex leikmenn voru
að skora yfir 10 stig og
liðsheildin sjaldan verið
sterkari. Nú hafa strákarnir
snúið við ömurlegri byrjun á
tímabilinu og unnið 5 af
síðustu 6 leikjum, aðeins
naumur sigur Snæfells í
framlengingu sem skemmir
statistikina. Næsti leikur
Tindastóls er í Garðabænum
19. janúar en Stjörnumenn
hafa farið frekar illa með
Stólana í vetur – það væri
ekki leiðinlegt að lagfæra það
aðeins.
Tindastóll: Curtis Allen 21/8 fráköst,
Friðrik Hreinsson 15, Svavar Atli
Birgisson 13, Maurice Miller 11/5
fráköst/11 stoðsendingar, Þröstur Leó
Jóhannsson 11/8 fráköst, Myles
Luttman 11/9 fráköst, Helgi Freyr
Margeirsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson
4, Helgi Rafn Viggósson 2. /ÓAB
Úr leik Tindastóls og Snæfells sem fram fór á dögunum.
Þann 22. janúar nk. verður
Dagur snjósins haldinn
hátíðlegur um víða veröld
og verður skíðasvæði
Tindastóls þar ekki
undanskilið.
Tilgangurinn er að hvetja
foreldra til að koma með
börnin í fjöllin og njóta þar
hollrar útivistar í hreinleika
fjallanna. Sjá nánar á
heimasíðu Tindastóls.
Bikarinn í körfunni
Á sunnudaginn fá Stólarnir
síðan Njarðvík í heimsókn í
Síkið en leikurinn er liður í 8
liða úrslitum í Powerade-
bikarnum. Stuðningsmenn
eru hvattir til að fjölmenna.
Um helgina
Dagur
snjósins
Stjórn knattspyrnudeildar
Tindastóls samþykkti á
síðasta fundi sínum sl.
sunnudag að stefna á það
að senda “nýtt” lið til
keppni í 3. deild í
meistaraflokki karla
sumarið 2012. Er þetta
gert þar sem ekki verður
starfræktur 2. flokkur á
vegum félagsins.
Á vef Tindastóls segir að
ekki séu allir leikmenn
Tindastóls tilbúnir í það
verkefni að leika í 1. deild en
eins og allir vita náði
sameiginlegt lið Tindastóls og
Hvatar að komast upp í þá
deild en mikill styrkleika-
munur á þessum deildum.
Stjórn deildarinnar var á
þeirri skoðun að finna verði
verðugt verkefni fyrir þá
einstaklinga sem ekki eru
tilbúnir í 1. deildina og því var
sú ákvörðun tekin að stefna á
að senda lið til keppni í 3.
deild.
Að öllum líkindum verður
leikið undir merkjum Þryms,
en Þrymur hélt úti liði í fjórðu
deildinni sem þá hét og má
segja að slagorðið sem notað
var þá rætist en það var
„Þrymur í þriðju deild“.
Tindastóll mun lána
leikmenn í þetta verkefni með
Þrym og getur því kallað á þá
til baka ef þörf er á. Með þessu
fá leikmenn verðugt verkefni
og alvöru leiki til að takast á
við. /PF
Knattspyrna
Tvíefldir Stólar
Björgvin Björgvinsson, einn
fremsti alpagreinaskíða-
maður landsins, hefur verið
ráðinn þjálfari hjá Skíða-
deild Tindastóls.
Að sögn Viggós Jónssonar
staðarhaldara skíðasvæðisins
ríkir mikil ánægja með
ráðninguna hjá Skíðadeildinni
og mikill fengur í því að fá
slíkan reynslubolta til liðs við
Skagfirðinga.
Einnig hefur Snjólaug
Jónsdóttir frá Blönduósi
gengið til liðs við Skíðadeild-
ina og mun þjálfa yngstu
krakkanna. Hún á einnig
rætur að rekja til Dalvíkur en
hún er dóttir Jóns Hall-
dórssonar skíðafrumkvöðuls
á Dalvík, „þannig að genin
ættu að vera í lagi þar“, segir á
heimasíðu Skíðadeildarinnar.
/BÞ
Skíðadeild Tindastóls
Björgvin þjálfar