Feykir - 19.01.2012, Side 9
03/2012 Feykir 9
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is
Bertha Kristín og Erling kokka
Indverskur matur – besta sem fjölskyldan fær
AÐALRÉTTUR
Indverskur réttur
Fyrir 4-6 persónur
4 kjúklingabringur, skornar í
munnbita (eða annað
kjötmeti)
2 msk olía
1 laukur, skorinn í bita
2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 rauð paprika (má sleppa)
1 tsk cuminduft
– ath. ekki kúmen
1 tsk túrmerik
½ tsk engifer
½ tsk pipar
½ tsk chilipipar
1 tsk kanill
1 dós niðursoðnir tómatar,
maukaðir með töfrasprota
1 dós kókosmjólk
Kjötkraftur
Salt og svartur pipar
Möndluflögur
Fersk kóríander, skraut
(má sleppa)
Kjúklingur steiktur á pönnu. Sett
til hliðar.Laukar og paprika mýkt
í olíu í potti. Tómatar eru þar næst
settir útá ásamt kókosmjólk og
öðrum efnum. Kjúklingur settur
í sósuna í pottinum og leyft að
malla saman í nokkrar mínútur.
Bragðbætt með salti, svörtum
pipar og kjötkrafti. Kóríander
dreift yfir áður en borið er fram.
(Ef notaður er fiskur þá er hann
lagður í fat, sósu hellt yfir og sett
Matgæðingar vikunnar
að þessu sinni eru þau
Bertha Kristín Óskarsdóttir
og Erling Valdimarsson
tannlæknir á Hvammstanga.
Þau skora á Ölmu Láru
Hólmsteinsdóttur og Leó
Örn Þorleifsson.
„Það er alltaf gaman að
fá áskorun og auðvitað
skorast maður ekki undan
slíku. Rjómalegin eftir
hátíðarnar var farið í gegnum
uppskriftabunkann, en
alltaf hafði hugsunin um
eitthvað einfalt, fljótlegt og
hollt yfirhöndina, enda hefur
krefjandi nám húsmóðurinnar
og vinna tannlæknisins gert
það að verkum að lítill tími gefst
fyrir eldamennsku. En maginn
má samt sem áður ekki vera
tómur og þegar okkur gefst
tími í eldhúsinu þá reynum við
að gera allan mat frá grunni, en
samt á auðveldan og fljótlegan
máta og ekki er verra ef börnin
þrjú geta aðstoðað.
Eitt það besta sem
fjölskyldan fær er indverskur
matur og ætlum við að deila
með ykkur rétt sem er mjög
vinsæll á heimilinu. Sósan
í aðalréttinum gengur með
mörgum kjöttegundum
og höfum við prufað hana
með kjúklingi, fiski og
hreindýragúllasi – Allt mjög
gott. Við ætlum líka að deila
með ykkur indverskum
flatkökum sem við höfum
gjarnan með, okkar útgáfu
af Raita sósu og svo eftirrétt í
hollari kantinum.
inn 180°C heitan ofn í 20-30
mín., eða þar til eldað í gegn.)
MEÐLÆTI
Indverskar
flatkökur, Raita,
brún hrísgrjón og
ferskt salat
Indverskar flatkökur (Naan
brauð)
500 g fínmalað spelt
1 ½ tsk salt
2 tsk þurrger
250 ml vatn
1 tsk cuminduft
½ tsk kóríander
Nokkrir dropar af kókosolíu
eða annarri olíu til að
strjúka yfir pönnuna.
Allt sett í hrærivél og hnoðað
saman. Látið hefast undir
rökum klút í rúmlega 1 klst.
Deiginu skipt í 10-14 bita.
Fletjið hvern bita í kringlótta
köku með kökukefli. Passið að
hafa smá spelti/hveiti undir og
yfir kökunni svo hún klístrist
ekki við borðið þegar er rúllað
yfir með kökukeflinu. Pannan
er hituð vel og strokið yfir hana
með kókosolíu og brauðið
steikt þar til kominn er góður
litur á það og blöðrur koma í
deigið, þá er snúið við og steikt
hinum megin. (Gott að nota
pönnukökuspaða til að þrýsta
kökunni niður á pönnuna).
Raita sósa letingjans:
500 ml Ab-mjólk
Smá maldon salt
1 hvítlauksgeiri, pressaður eða
hvítlauksduft
Nokkrir dropar af sítrónusafa
1/2 tsk cuminduft
Öllu hrært saman í skál.
EFTIRRÉTTUR
Kaka í hollari
kantinum
200 g möndluflögur
100 g döðlur
100 g kókosmjöl
1 tsk kanill
Döðlur mýktar í vatni í
nokkrar mínútur.
Teknar úr vatni.
Allt hráefni sett í matvinnsluvél
og maukað vel saman. Sett í 22
sm sílikon mót eða venjulegt
kökumót sem er búið að þekja
með bökunarpappír. Sett í kæli
í ca 30 mín.
Krem:
1 plata 70% súkkulaði
2-3 msk kókosolía
¼ dl agave síróp (má sleppa)
Kókosolía og súkkulaði brætt
saman við lágan hita og
bragðbætt með agave-sírópi.
Kælt örlítið og hellt yfir kalda
kökuna. Kakan á að geymast í
kæli.
Verði ykkur að góðu!
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
Gleðilegt ár kæru
Skagfirðingar og
nærsveitamenn.
Undanfarnar vikur
og mánuði hefur mér
fundist athyglisvert
að fylgjast með
umræðu um menn
og málefni líðandi
stundar á netinu.
Upp eru að spretta
sjálfskipaðir
sérfræðingar á öllu
milli himins og jarðar
sem finna hjá sér
þörf til að tjá sig um
ólíklegustu hluti sem
oftast koma þeim
ekkert við, hvað þá að
þeir hafi vit á þeim.
Þetta má glöggt sjá
á samskiptamiðlum
eins og fésbók og
á athugasemda
kerfum í net útgáfum
dagblaðanna. Það sem
einkennir þessi skrif
er oftast dómharka
og dónaskapur, allir
hafa skoðun og finnst
hún það merkileg að
hún eigi erindi við
aðra. Ég held að það
sé stundum ágætt að
minna sig á þennan
ágæta boðskap sem
ég sá oft þegar ég bjó
í Bretlandi „Opinions
are like assholes.
Everybody's got one
and everyone thinks
everyone else's stinks,“
í lauslegri þýðingu:
„Skoðun er eins og
rassgat, allir eru með
eitt, en finna bara
óþefinn hjá öðrum.“
Nokkra af þessum sem
eru hvað duglegastir
að koma skoðunum
sínum á framfæri
þekki ég persónulega.
Þetta eru dagfarsprúðir
einstaklingar sem
augliti til auglitis virðast
hvers manns hugljúfi,
svo fara þeir heim
til sín og setjast við
tölvuna og breytast í
netskrímslið ógurlega
sem spúir fúkyrðum
og dónaskap. Hvað er
það sem fær menn til
að halda að almennar
reglur um kurteisi og
tillitsemi við náungann
gildi allsstaðar nema á
netinu?
Með þessum orðum
óska ég hér með
eftir meiri kærleik og
nærgætni á nýju ári,
bæði í netheimum
og almennum
samskiptum.
- - - - -
Þar sem þetta er
skrifað á afmælisdegi
frænda míns Stefáns
Vagns skora ég hér
með á hann í næsta
pistil, enda grunar
mig að þar sé afburða
penni á ferð.
Óskar Páll Sveinsson frá Sauðárkróki
Óskar eftir meiri kærleik og nærgætni