Feykir - 23.02.2012, Blaðsíða 5
08/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Bikarkeppni FRÍ í frjáls-
íþróttum fór fram í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík sl.
laugardag, þann 18.
febrúar. Samkvæmt
heimasíðu Tindastóls var
keppnin jöfn og spennandi,
en alls tóku sex lið þátt,
þau voru Norðurland, FH,
HSK, ÍR A- og B-lið og BÁF,
sameiginlegt lið Breiða-
bliks, Ármanns og Fjölnis.
FH sigraði í stigakeppni
karla með 61 stig, ÍR hlaut 48,5
stig og Norðurland varð í 3.
sæti með 42 stig. Í stigakeppni
kvenna sigraði ÍR með 54 stig,
Norðurland varð í 2. sæti með
48 stig og FH í 3. sæti með 46
stig. Það voru því FH-ingar sem
sigruðu í samanlagðri stiga-
keppni með 107 stig, ÍR-A í 2.
sæti með 102,5 og Norð-
lendingar höfnuðu í 3. sæti
með 90 stig.
Skagfirðingarnir í liði Norð-
urlands stóðu sig vel, þar á
meðal sigraði Björn Margeirs-
son í 1500m hlaupi (4:12,11
mín), Jóhann Björn Sigur-
björnsson varð í 3. sæti í 60m
hlaupi (7,32sek) og Halldór
Örn Kristjánsson varð í 6. sæti í
þrístökki (11,75m). /BÞ
Bikarkeppni FRÍ
Norðurland í 3. sæti
Nokkrar mannabreytingar
hafa orðið í herbúðum
Tindastólsmanna í
fótboltanum undanfarið,
menn koma og menn fara
eins og gengur en verið er
að styrkja liðið til þess að
takast á við erfiða fyrstu
deild í sumar. Bjarki Már Árnason hinn
eitilharði varnarmaður og
fyrrverandi fyrirliði Tinda-
stóls er genginn í raðir KF sem
er sameiginlegt lið Siglfirðinga
og Ólafsfirðinga. Sömu leið fer
Dejan Miljokovic sem lék um
áraraðir með Hvöt og nú
síðast Tindastóli/Hvöt. Þá hef-
ur Gísli Eyland hinn magnaði
markvörður Stólanna ákveðið
að leggja bæði skó og hanska á
hilluna.
Nýir og gamlir leikmenn
hafa skrifað undir samninga
og eru komnir í raðir Tinda-
stóls en þar ber fyrstan að
nefna Edvard Börk Ótthars-
son, en hann spilaði með liði
T/H á síðustu leiktíð, en var þá
á láni frá Valsmönnum. Eddi
gegndi lykilhlutverki í 2.
flokks liðinu á síðustu leiktíð,
en spilaði einnig 5. leiki fyrir
meistaraflokkinn. Næstur til
að skrifa undir var Blönduós-
ingurinn Hilmar Þór Kárason.
Hilmar spilaði 13 leiki og
skoraði eitt mark með sam-
eiginlegu liði T/H á síðustu
leiktíð. Þar sem Hvatarmenn
senda ekki inn lið til keppni
Knattspyrna
Tindastóll styrkist
fyrir fótboltavertíðina
Tindastólsmenn geta
gengið fjallbrattir frá fyrsta
úrslitaleik sínum í
Powerade bikarkeppni KKÍ
sem háður var síðastliðinn
laugardag þrátt fyrir tap.
Keflvíkingar náðu yfir-
höndinni um miðjan fyrsta
leikhluta og þrátt fyrir ágæta
takta þá náðu Stólarnir aldrei
almennilega í skottið á Suður-
nesjapiltunum. Þeir voru þó
allan tímann inni í leiknum og
góður fjórði leikhluti dugði
ekki til, munurinn varð
minnstur 2 stig og það var
eftir fáránleikakörfu Þrastar
Leós á síðustu sekúndunni.
Lokatölur 97-95 fyrir Keflavík.
Það vantaði ekkert upp á
stuðninginn sem Stólarnir
fengu í leiknum en mætustu
menn halda því fram að yfir
Powerade bikarinn : Keflavík - Tindastóll 97-95
Spennandi bikarleikur
1000 stuðningsmenn Tinda-
stóls hafi verið á pöllunum
Síðustu mínúturnar voru
æsispennandi, Keflvíkingar 11
stigum yfir þegar 5 mínútur
voru eftir og þeir voru 12
stigum yfir, 95-83 þegar 3 og
hálf mínúta var eftir. Þá tróð
Allen og átti síðan 3ja stiga
körfu skömmu síðar og hann
tróð aftur og minnkaði
muninn í 5 stig þegar ein og
hálf mínúta var eftir. Helgi
Rafn braut ísinn þegar
skammt var eftir, 95-92, og nú
neyddust Stólarnir til að brjóta
til að tíminn rynni ekki út.
Maggi Gunn fór á línuna og
skoraði úr báðum skotum
sínum og tryggði Keflvíking-
um bikarinn. Áður en tíminn
rann út gerði Þröstur Leó þó
körfu leiksins, skoraði með
skoti frá eigin vítateig og yfir
endilangan völlinn. Lokatölur
97-95.
Þrátt fyrir ósigur voru
stuðningsmenn Tindastóls
ánægðir og stoltir af sínum
mönnum sem geta borið
höfuðið hátt. /ÓAB
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Guðmundur St. Sigurðsson / kórstjóri
Hefur dreymt um
að vera Vivaldi
Guðmundur St. Sigurðsson
er fæddur 1953 og ólst upp í
Víðidalstungu II í Víðidal Vestur
Húnavatnssýslu. Orgelið er
hljóðfærið sem Guðmundur
velur að spila á en hans
helstu tónlistarafrek er að
vera organisti frá 1984-2006
ásamt því að stjórna karlakór
frá 2003.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Barokk og 1963-
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana? Allt
sem er nýtt.
Hvers konar tónlist var hlustað
á á þínu heimili? Allt sem var á
“Gömlu gufunni”.
Hver var fyrsta platan/
diskurinn/kasettan/niðurhalið
sem þú keyptir þér? Trúbrot
1969.
Hvaða græjur varstu þá með?
Philips.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
Aríu úr Töfraflautunni.
Wham! eða Duran? Hvorugt.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Led
Zeppelin.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Bach.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella
þér á tónleika. Hvert færirðu,
hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Hljómsveitina YES, tæki
Andra Pál son minn með, hann
þarf að læra að meta þá.
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera? Vivaldi.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Lifun
með Trúbrot.
þetta árið, þá skipti Hilmar
yfir ásamt félaga sínum Benja-
mín Gunnlaugarsyni frá
Blönduósi en hann spilaði 20
leiki með meistaraflokknum á
síðustu leiktíð. Fjórði leikmað-
urinn hafði tímabundin fél-
agaskipti yfir í Tindastól, en
hann heitir Magnús Örn
Þórsson og kemur frá Vals-
mönnum. Magnús spilaði 19
leiki og skoraði 3 mörk fyrir
Njarðvík á síðustu leiktíð.
Í gær var það svo staðfest
að Tindastóll hefur fengið
sóknarmanninn Fannar Frey
Gíslason að láni frá Skaga-
mönnum en hann er alinn
upp á Króknum og lék með
Tindastóli í yngri flokkunum
áður en hann fór til ÍA árið
2010.
Meiri breytinga er að vænta
í herbúðum Tindastóls á
næstunni og verður gaman að
fylgjast með hvernig þau mál
þróast. /PF
Um helgina léku strákarnir í drengjaflokki
Tindastóls tvo leiki í Íslandsmótinu þar
sem þeir lögðu Valsmenn á föstudag en
lutu í lægra haldi á laugardag fyrir toppliði
Njarðvíkinga.
Á Tindastóll.is segir að strákarnir hafi unnið
þægilegan sigur á Valsmönnum 79-63. Stigin
skoruðu Ingvi 26, Pálmi Geir 23, Páll Bárðar 16,
Pétur 6 og Sigurður, Friðrik Þór, Kristinn og
Pálmi Bjarni 2 hver. Á laugardag skruppu
strákarnir hins vegar í Ljónagryfjuna í Njarðvík
og töpuðu þar naumlega fyrir toppliði Njarð-
víkur 79-83. Stigaskorið var svona; Ingvi 30,
Pálmi Geir 26, Pétur 13, Páll 6 og Pálmi Bjarni og
Friðrik Þór 2 hvor.
Næsti leikur strákanna verður á laugardaginn
kl. 17.15 þegar Breiðablik kemur í heimsókn í
Síkið. Tindastóll situr nú í 2. sæti með 18 stig
tveimur stigum á eftir Njarðvík. /PF
Bikarkeppni FRÍ
Sigur og tap hjá drengjaflokki
Eyjólfur Sverrisson,
landsliðsþjálfari U21 karla,
hefur gert breytingu á
landsliðshópnum fyrir leik
Íslands og Aserbaídsjan.
Leikurinn fer fram ytra
þann 29. febrúar í undankeppni
EM. Rúnar Már Sigurjónsson
úr Val kemur inn í hópinn í stað
Eiðs Arons Sigurbjörnssonar
sem er meiddur.
Rúnar Már er Sauðkræk-
ingur og uppalinn í yngri
flokkum Tindastóls en fór
ungur á mála hjá HK árið 2007
en hefur verið síðustu ár hjá
Val. Þar á bæ segja menn að
Rúnar sé duglegur miðju-
maður sem hefur staðið sig
mjög vel og eigi sannarlega
framtíðina fyrir sér. /PF
Knattspyrna
Rúnar Már í U21