Feykir - 23.02.2012, Side 8
8 Feykir 08/2012
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is
Birgitta Hrönn og Sigurður Ingi kokka
Fljótlegur forréttur
og kjúklingur í karrí
FORRÉTTUR
Fljótlegur forréttur
8 harðsoðin egg
300 gr rjómaostur
krydd eftir smekk
½ tsk sinnep
pipar og salt
annað sem ykkur finnst gott
Aðferð: Skerið eggin í tvennt.
Takið rauðurnar og stappið
þær. Blandið ostinum, sinnepi
og kryddi saman við og
sprautið í hvíturnar. Berið fram
með salati og sítrónu. Gott að
borða með ristuðu brauði með
hvítlaukssmjöri.
AÐALRÉTTUR
Kjúklingur í karrí
1 kjúklingur
2-3 msk smjör
4 dl vatn
1 laukur
1 grænt epli
2 ½ tsk karrí
1 tsk Season All
1/2 tsk salt
1 dl vatn
1 tsk kjúklingakraftur
200 g sýrður rjómi
2 msk mango-chutney
3 tsk sósujafnari
Aðferð: Hreinsið kjúklinginn
og skiptið í tíu hluta. Brúnið
bitana í smjörinu. Stráið yfir
Season All og salti og setjið í
pott ásamt 4 dl af vatni og látið
sjóða. Saxið laukinn og eplið
og látið krauma á pönnunni
í afganginum af smjörinu.
Stráið karrí yfir og látið
krauma í 2 mín. Hellið vatni
ásamt krafti, sýrðum rjóma og
mango-chutney út á pönnuna
og látið sjóða við lítinn hita í
ca. 5 mín. Hellið sósunni af
pönnunni í pottinn og jafnið
með sósujafnaranum. Notið
sósujafnara fyrir ljósa sósu.
Smakkið og bragðbætið að
vild. Borið fram með soðnum
hrísgrjónum.
EFTIRRÉTTUR
Ávextir
Aðferð: Skerið niður ferska
ávexti, t.d. jarðarber, bláber,
kíví og það sem ykkur langar í.
Raðið fallega á diska eða í glös
og hellið sósunni yfir. Í staðinn
fyrir líkjör má nota einhvern
safa sem ykkur finnst góður,
t.d. ananas.
Sósa
300 gr rjómaostur
½ bolli sýrður rjómi
½ bolli sykur
2-3 msk af líkjör að eigin vali,
t.d. möndlulíkjör
Verði ykkur að góðu!
Birgitta Hrönn Halldórsdóttir rithöfundur og Sigurður
Ingi Guðmundsson bóndi frá Syðri-Löngumýri eru
matgæðingar vikunnar að þessu sinni og deila með
lesendum Feykis gómsætar og fljótlegar uppskriftir úr
farteski sínu.
„Við skorum á vini okkar og matgæðingana Herdísi
Jakobsdóttur og Óskar Ólafsson á Steiná II í Svartárdal.“
Mikið fjör og kátína ríkti í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á
þriðjudag þegar hin árlega Íþróttahátíð Árskóla fór fram. Þar
komu allir bekkir skólans saman og brugðu á leik og spreyttu
sig við hinar ýmsu íþróttagreinar. Krakkarnir kepptu bæði
innbyrðis eða við kennara og starfsfólk skólans en þar voru
einnig nokkrir leikmenn úr körfuboltaliði Tindastóls mættir
til leiks.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum skemmtu allir
krakkar, sem fullorðnir, sér konunglega og endaði hátíðin með
árvissum körfuboltaleik kennara og 10. bekkinga og er óhætt að
segja að þar mættust stálin stinn. En niðurstaðan var sú að lið
kennara lögðu lið 10. bekkinga að velli eftir hörku leik. /BÞ
Íþróttahátíð Árskóla
Brugðið á leik
Fyrsta mót Húnvetnsku
liðakeppninnar fór fram
föstudaginn 17. febrúar og
samkvæmt heimasíðu
Hestamannafélagsins Þyts
stóð það vel undir væntingum.
Keppt var í fjórgangi og eftir
fyrsta mót er lið 3 efst með
56,5 stig. Lið 1 er næst með
43,5 stig, lið 2 í þriðja sæti
með 39,5 stig og í fjórða sæti
er lið 4 með 28,5 stig.
Næsta mót liðakeppninnar
verður Smali/Skeið og mun
Hestamannafélagið Neisti sjá
um mótið. Það verður haldið í
Reiðhöllinni Arnargerði á
Blönduósi nk. laugardag, þann
25. febrúar nk. kl. 14.00. Þá
verður keppt í unglingaflokki
(fædd 1995 og seinna), 3. flokki,
2. flokki og 1. flokki. Í 1. og 2.
flokki fá 9 hestar að fara brautina
aftur en 5 hestar fara brautina
aftur í úrslitum í 3. flokki og
unglingaflokki. Nánari
upplýsingar má nálgast á Feyki.is
og heimasíðu Þyts. /PF
Húnvetnska liðakeppnin
Lið 3
efst