Feykir - 24.04.2012, Page 2
2 Feykir 16/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Lífsins gæði og gleði
Í fyrsta sinn í áratugi
verður engin bíómynd
sýnd í Sæluviku í
Króksbíói. Kemur það til
af því að sýningartækin
hafa ekki fylgt tækni-
þróuninni.
Sigurbjörn Björnsson
bíóstjóri segir að kvikmyndir
komi ekki lengur á filmu
heldur á rafrænu formi og til
þess þurfi sér sýningavél.
-Það sem hefur bjargað
okkur undanfarið er að
íslensku myndirnar eru á
„blu ray“ diskum og einstaka
barnamyndir. Þá sýnum við
með gamla geislaspilaranum.
Sigurbjörn segir að unnið sé
að því að fjármagna kaup á
nýrri sýningarvél og er
pólitískur vilji sveitarfélagsins
til að koma inn í það mál.
Stefán Vagn Stefánsson
formaður byggðaráðs stað-
festir það og segir ákveðna
hugmynd komna upp sem
vonandi gangi upp. /PF
Nútímatæknivandi
Króksbíós
Ekkert bíó
í Sæluviku
Nú er atvinnulífssýning framundan á Sauðárkróki og mörg
fyrirtæki hafa tilkynnt komu sína í Íþróttahúsið. Haldin var
samskonar sýning fyrir tveimur árum síðan sem heppnaðist
mjög vel í alla staði. Mest kom á óvart hversu mörg sprota-,
og smáfyrirtæki eru starfandi í héraðinu eða var það bara
magnað að sjá þau öll á sama staðnum. Skagafjörðurinn
hefur upp á margt að bjóða og þar geta sprotafyrirtæki
haslað sér völl ef rétta tækifærið er gripið. Margir spennandi
hlutir eru í gangi og tækifærin mörg t.d. í ferðaþjónustunni.
Vísinda-, og hátækniþekking ásamt góðum skólum á öllum
stigum er mikilvægur þáttur sem og yfirgripsmikil iðnaðar-
og verktakaþekking fyrir atvinnulífið og óhætt að fullyrða
að framtíðin sé björt með batnandi tíð. Þá er fagnaðarefni að
stærsta fyrirtæki héraðsins skilaði góðum hagnaði á seinasta
ári og má segja að það sé kjölfestan í blómlegu samfélagi
Skagafjarðar. Kæru lesendur nær og fjær: Gleðilegt sumar!
Páll Friðriksson
ritstjóri
Hvammstangi
Skrúðganga í
fallegu veðri
Sumardeginum fyrsta var
fagnað alls staðar á landinu
fimmtudaginn 19. Apríl sl.
og voru Hvammstangabúar
engir eftirbátar annarra í
gleðinni.
Á Norðanáttinni segir að
íbúar Húnaþings vestra hafi
fengið afar fallegt veður til að
fagna sumrinu og kveðja
veturinn; sól, heiðskíran
himinn og logn að kalla. Hægt
er að skoða myndir í kringum
skrúðgönguna sem farin var frá
Félagsheimilinu Hvammstanga
á Norðanátt.is. /PF
Fyrirtækið Greenstone ehf.
sem hafði milligöngu fyrir
uppbyggingu gagnavers á
Blönduósi hefur sagt sig frá
verkinu en fyrirtækið hefur
unnið að því að reisa
gagnaver hér á landi, fyrir
hönd bandarísks fyrirtækis,
frá árinu 2008. Bæjaryfirvöld
á Blönduósi hafa unnið
hörðum höndum sl. ár að
undirbúningi fyrir komu
gagnaversins og að sögn
Arnars Þórs Sævarssonar
bæjarstjóra Blönduóss hefur
þetta engin áhrif á
skuldbindingu þeirra í að
koma því á laggirnar.
„Bandaríska fyrirtækið sem
hefur í hyggju að reisa hér
gagnaver hefur tjáð okkur að
þeir hafa ekki látið af áformum
sínum,“ segir Arnar Þór í
samtali við Feyki. Þó svo að
Greenstone treysti sér ekki í að
halda málinu til streitu og sagt
sig frá verkinu segir Arnar Þór
að viðræður munu halda áfram
án milligönguaðila. „Gagna-
verið mun hafa mikla þýðingu
fyrir allt Norðurland vestra og
Ísland í heild. Störfum fjölgar á
svæðinu, sprotafyrirtæki koma
til með að spretta upp í
tengslum við starfsemina og
þannig skapast gjaldeyristekjur
í þjóðarbúið,“ segir Arnar Þór.
Arnar Þór segir gagnaver vera
mjög eftirsóttan iðnað í
mörgum löndum. Margar
þjóðir hafa fjárfest háar fjár-
hæðir til að laða að slíkan
iðnað. Jafnframt sagði hann
vera staðreynd að Ísland var
ekki samkeppnishæft til að
taka við gagnaverum fyrr en
gerðar voru breytingar á
reglum um virðisaukaskatt til
slíks iðnaðar en þær tóku gildi
áramótin 2010-2011. „Við
teljum að staðan í dag sé góð og
við munum halda áfram okkar
striki, enda eru staðarkostirnir
fyrir hendi,“ bætir hann við.
Blönduós er tilvalin staður
fyrir gagnaver fyrir margar
sakir. Arnar Þór segir nokkur
atriði vega þar þyngst en þau
eru: Góðar raforkutengingar,
mikið öryggi að hafa Blöndu-
virkjun nálægt gagnveri, góðar
ljósleiðartengingar, skipulagt
gagnaverssvæði í eigu sveit-
arfélagsins og lítil náttúruvá.
Forsvarsmenn Greenstone
voru á sama máli því þeir
skoðuðu fjölmarga álitlega
staði víða um land áður en þeir
festu augastað sinn á Blönduós,
fyrir hönd bandaríska fyrir-
tækisins. Að sögn Arnars Þórs
hafa fleiri aðilar sýnt áhuga á að
reisa gagnaver á svæðinu en
ekkert af því er í hendi. /BÞ
Greenstone segir sig frá áformum
um uppbyggingu gagnavers
Blönduósingar
halda sínu striki
Hljóp á snærið hjá Nemendafélagi FNV
Tengill styrkir NFNV
Það hljóp heldur betur á
snærið hjá Nemendafélagi
FNV fyrir helgi en þá fengu
formaður og verðandi
formaður félagsins afhenda
myndvél frá Tengli ehf. sem
styrkir þá í kaupunum.
Pálmi Geir Jónsson
formaður NFNV segir þetta sér
vel til að taka upp myndir af
viðburðum á vegum skólans og
vill hann koma þökkum til
Tengilsmanna.
-Þetta er Canon EOS 600
flottasta græjan á markaðnum,
færð ekki flottari vél en þetta,
sagði Pálmi Geir ánægður með
gripinn og upplýsir blaðamann
að samskonar vél hafi verið
notuð til að taka upp tvö
síðustu áramótaskaup. /PF
Nú um helgina verður
atvinnulífssýningin
Skagafjörður – Lífsins gæði
og gleði haldin í íþrótta-
húsinu á Sauðárkróki. Þá
verður einnig hin góðkunna
Sæluvika sett á sunnu-
daginn við hátíðlega athöfn
í íþróttahúsinu kl. 14:00.
Að vanda verður nóg um
að vera og byrja herlegheitin
með miklum látum. Sossa og
Tolli opna myndlistar-
sýningu í Safnahúsinu,
Draumaraddir norðursins
verða með tónleika og
skemmtun í Miðgarði og að
kvöldi sunnudags frumsýnir
Leikfélag Sauðárkróks leik-
ritið Tveir tvöfaldir. Síðan
rekur hver viðburðurinn ann-
an og má nefna Kirkjukvödið,
Molduxa-mótið, opnun Ljós-
myndavefs Skagafjarðar,
Multi Musica stendur fyrir
skemmtun á föstudag, Kóra-
mót Rökkurkórsins og
Heimis verður í Miðgarði og
svo mætti lengi telja.
Sæluvikudagskráin er á
leið í hús og þar má finna alla
dagskrá Sæluvikunnar. /ÓAB
Sæluvika Skagfirðinga
Verður sett
á sunnu-
daginn
Gísli Sigurðsson afhendir Pálma Geir formannni NFNV Canon myndavél. Milli þeirra stendur Ísak
Finnbogason, næsti formaður NFNV.
Smá í Feyki ::
Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSINGAR
Hryssa tapaðist
Hryssa tapaðist frá Flugumýri í september sl. Dökkjörp og faxrýr, tamin
og frekar gæf. Örmerki 352206000060838, ekki eyrnamerkt.
Þeir sem verða hryssunnar varir vinsamlegast hafið samband í síma
864 8257 eða 453 8257.
Stemning á Hvammstanga. Mynd: Norðanátt.is